www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Föstudagur
Föstudagur, 30. maí 2003

Þá er komin föstudagur, í annað sinn í þessari viku. Ég fór með nýútborguð launin í europris að kaupa sokka á afkvæmin og það rifjaðist upp fyrir mér hvað það er leiðinlegt að versla með öskrandi foreldra og grenjandi börn yfir sér.

Sem betur fer tók þetta fljótt af og ég fór út úr búðinni með 13 pör af sokkum og smá mat. Þá fór ég í 10-11 að versla mér hárlit, sem var ekki til í europris, og þegar ég var búin að setja næstum allt sem var ekki til í europris í körfuna komst ég að því að hárliturinn var ekki til í 10-11.

Ég endaði þessvegna í Nóatúni. Keypti það sem var ekki til í hinum búðunum og hélt heim á leið.

Krakkarnir vildu pulsur í matinn svo ég ruslaði þeim upp. Jóhanna sá aflitunnarefnið sem ég keypti og spurði mig mjóróma hvort ég ætlaði að lita hárið á mér ljóst. Aftur. Hún sendi frá sér gleði "hjúkk" þegar ég sagði nei. Var ég svona hörmuleg ljóshærð? Líklega..

Nú sit ég og hlusta á "It had to be you" með Tony Bennett og slaka á. Búin að þrífa eldhúsið og á leiðinni í bað... þegar og ef Tóti ratar heim úr vinnunni.


| anna | 19:22 |
comments

Hva, thu ferd bara i bad ef Toti kemur heim? Thad er eins gott ad hann fer ekki i neinar langferdir.

Nr. 1 | posted by: organistinn | 31.05.2003 | 5:33:24 | [+] |

Anna mín!
Þrettán sokkapör? En þú átt tvö börn og þrettán gengur ekki upp í tvo. Ask me, ég þurfti að stinga af í dagsskóla á gamalsaldri til að læra að reikna og ég veit að þrettán gengur engan veginn upp í tvo.. og tveir ekki heldur upp í þrettán, lærði það líka! (Ég er sko ekkert smá lærð!!)
Hver fékk þrettánda sokkaparið?? Ertu farin að kaupa undirföt fyrir sjálfa þig? Í barnadeildinni?
Hér með banna ég þér að horfa á endursýningar af Júródraslinu þar sem TATU æstu alla áhorfendur með sviðsframkomu sinni. Já, hér með ertu komin í straff, old lady!

Nr. 2 | posted by: Harpa | 1.06.2003 | 1:53:43 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web