Já. Þetta er orðið curse. Það sakna allir konunnar með sígarettuna úr 50's auglýsingunni -sem var í raun og veru bara mynd af mér með allt of mikið makeup um aldamótin fyrri (1999-2000) og með appelsínugult hár.
Það sem gerist þegar þú smellir á forget me er að comment kerfið hættir að muna upplýsingarnar þínar (nafn, url) og þá þarftu að slá það inn í hvert skipti sem þú kommentar á síðuna. Ég á hinsvegar eftir að breyta kommentkerfinu aðeins og forget me valmöguleikinn hverfur í kjölfarið. Mig grunar að þú verðir dapur en því miður er bara ekkert við þessu að gera. Anna með grænu slæðuna og appelsínugula hárið er farin og forget me fer bráðlega. Heimurinn versnandi fer...
Ef ,,movie hall of fame" er valið, kemur fyrirsögnin ,,recent songs" þar sem ætti væntanlega að vera ,,recent movies" eða eitthvað álíka. Textinn hægrameginn er líka dálítið vinstrisinnaður(fer ofan í línuna) í Internet Explorer 5, en hann er svo sem drasl.
Annars snilld.
Bergþór Jónsson
P.S.
Þessi nýja kvikmyndaspurning er að gera mig geðveikan.
P.P.S
Mér finnst nýja myndin í horninu flott
Ég er búin að laga recent song en það er verra mál með css stuðningin á textanum hægra megin. Næst þegar ég er í stuði þá set ég þetta í töflur. IE 5 sökkar, ótrúlegt að hann skuli ekki styðja css. -nema ég sé að nota ranga skipun.
Ég er búin að skipta út spurningunni af tillitsemi við geðheilsu þína.
Spurningin sem var að gera þig geðveikan er úr Woody Allen myndinni The Curse of the Jade Scorpion sem ég mæli með. Mikið finnst mér sorgleg tilhugsun um að Woody muni deyja einn daginn, líklega á undan mér, og snarhætta að búa til bíómyndir í kjölfarið.