www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
"Ég leiddi þennan flokk"
Sunnudagur, 11. maí 2003

Það er nú eitthvað að hjá Össuri.

Hjá Agli í dag: "Ég leiddi þennan flokk í rúmlega þrjátíu prósent fylgi". HALLÓ!!!! ER EINHVER HEIMA???

Ef hann leiddi flokkinn... af hverju var þá ekki sýnt frá hans ræðu á Hótel Íslandi? Af hverju sá hann sér ekki fært að drullast upp á svið þegar Ingibjörg kynnti hann? Er Össur geimvera?

Þessum spurningum verður aldrei svarað.

Til hamingju samfylkingarfólk! Mér fannst magnað að sjá loksins meðframbjóðendur Ingibjargar á sviðinu á Hótel Íslandi. Þau sáu sér fært að mæta upp á svið og ég sá þau... nánast í fyrsta sinn...

Ég leiddi þennan flokk my ass... Er Össur þá the ultimate maðurinn á bakvið tjöldin? Bíðum bara! Kannski koma fleiri fram á sjónarsviðið sem telja sig hafa leitt samfylkinguna til sigurs. Hver veit! Kannski gerði ég það!

Finnst leiðinlegt að Margrét Sverrisdóttir og Páll Magnússon hafi ekki náð inn.


| anna | 22:16 |
comments

Ertu ekki eitthvað að misskilja, hefur ekki bara verið sagt satt og rétt að Össur hafi valdið öllu Samfylkingarfólki leiða ?

Nr. 1 | posted by: Halldór E | 11.05.2003 | 22:38:27 | [+] |

Jamm, huldiherinn undir forystu leysingjans úr Borginni.... þetta er umhugsunarvert. Ég er nú meira að spökulera í fjármálum þeirra svilanna, hvað skyldi auglýsingakostnaðurinn verða mikill þegar upp verður staðið og talið í buddunni? Og hver skyldi nú koma Samfylkingunni til bjargar? Er kannski verið að svindla á okkur í Lottóinu?? Ég bara spyr... það er ekki einleikið hvað potturinn gengur sjaldan út, bara í 4-6 hvert skipti! Er Össur kannski Norðmaður? Eða Sólrún... heja Norge??

Nr. 2 | posted by: Jóhanna | 12.05.2003 | 22:22:01 | [+] |

ER VERIÐ AÐ SVINDLA Á OKKUR Í LOTTÓINU? MAMMA MÍA!

Nr. 3 | posted by: anna.is | 13.05.2003 | 0:56:45 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web