www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
div class="Simon"
Laugardagur, 17. maí 2003

Af hverju save-a ég ekki hluti þegar þeir virka? Jafnvel þó að þeir virki partially? Hrikalegur ókostur. Vona að þetta verði leiðrétt í anna 6.42

Ég er með "Let's Get It On" í headphones í hægra eyra og The Matrix í hinu í steríó á stöð 2. Ég get huggað mig við það að ég er multitasking. Hrikalega er þetta góð mynd. Þakka guði fyrir að hafa verið orðin fullorðin þegar ég sá hana... annars væri ég latexklædd mótorhjólagella og ef ég á að koma með kalt mat þá held ég að endingartíminn yrði tops sex vikur. Ég tek of marga sénsa til að endast á mótorhjóli.

Af hverju á div að virka inní div án þess að brjóta línuna en virkar ekki hjá mér? Why? Why? WHY?!

Búin að berja hausnum svo mikið við lyklaborðið að ég er komin með space á ennið. Ekki það.. nóg pláss þar fyrir. Lyklaborðið er hinsvegar orðið waste of space. Ég er of þreytt til að pæla í þessu. Langar að sparka í Rasmusen píuna. Það sem hún getur jarmað manneskjan. Blew dog í þættinum í kvöld og átti skilið að detta út. Læddist inn á fox og sá hverjir eru tveir eftir. Kom ekki á óvart.

Annars átti ég áhugaverðar samræður við vinkonu mína í dag á msn. Hún byrjaði á að segja að hún þoldi ekki Simon en myndi fuck him anyway! Ég verð því miður að vera sammála. Þó að ég hafi ekki trú á að hann sé eftirminnilegur in the sack. Hvað veldur því að við viljum sofa hjá honum in the first place??? Ég skil það ekki. -Enda skil ég ekki konur eins og sumir. Mér heyrist þetta vera almenna viðhorfið hjá konum gagnvart Simon. Ég tek fram að Jude Law er.. nei ég myndi ekki einu sinni leggjast með honum. Hann er meira eins og fallegt jólaskraut, til að dáðst að. Auk þess.. ef hann myndi ekki standa sig þá væru það bara of mikil vonbrigði.

Ég á náttúrlega eftir að run this by my therapist en er með tillögu að skýringu. Getur verið að þetta sé bara í eðli konunnar að heillast að svona.. jah.. ruddalegum karlmanni? Verð að skjóta inní aðeins. Einhverra hluta vegna turnar það mér on að sjá karlmann í ermalausum bol. Ekki hlýrabol, ekki stuttermabol.. ermalausum. Af hverju í andskotanum spyr ég nú bara? Og það virðist engu máli skipta hvernig þeir líta út. Jah.. innan skynsamlegra marka náttúrlega. Efast um að hringarinn í Notra Dame gæti kveikt í mér með bera handleggi eina að vopni. En erum við konur í alvöru svona basic? Og ef við erum svona basic, af hverju skilja okkur svona fáir? Er þetta spurningin um að vera svo bleeding obvious að allir halda að við séum trick question og fara að "leysa gátuna"?

Simon er dónalegur ruddi sem gerir lítið úr fólki sem á það reyndar skilið í flestum tilfellum og ef hann og Paula eru ekki having it off on the side þá veit ég ekki hvað. Ég held að það sé þetta "hard to get" attitude og ruddaskapurinn sem höfði til kvenna í fari hans. Æi ég veit það ekki. Ég held líka að þetta sé spurning um muninn á fantasíu og raunveruleika. Ef Simon kæmi upp að mér á Kaffibarnum og segði: ..nei annars STOP!

Smá innskot. Ég er að fatta að það myndi skipta höfuðmáli hvað hann segir. Ef hann byrjar á "darlin'" eða "sugar" .. no sale. HINSVEGAR.. og þetta er magnað. Ef hann myndi segja: "I'd take off the glasses if I was expecting action tonight" ÞAÐ myndi vekja áhuga minn. AF HVERJU????? Kannski af því að þá væri hann í karakter. Ég veit það ekki. Ég hef ice-að menn fyrir minna en Simon kæmist upp með að móðga mig og walk away. -Með mig upp á arminn.

Svo er það his blunt stare. Dásamlegt alveg. Segir meira en þúsund orð. Líka bara hvernig hann ber sig almennt. Sá hann hjá Jay Leno þegar Tóti var channel hopping eitt kvöldið og skikkaði hann (Tóta) at gunpoint að stilla á Jay Leno. Einusinni er allt fyrst. Þarna sat Simon í svona "hér er ég og ég rúla" stellingu og boys.. það bara virkar. Ég verð fúl út í Ryan Seacrest þegar hann er að dissa Simon. Helvítis viðrini sem hann er. Þ.e.a.s. Ryan.

Ég er búin að hugsa málið og held að ég myndi ekkert vilja sofa hjá Simon. Hann hefur ekkert sem maðurinn minn hefur ekki. -In a good way.


| anna | 2:32 |
comments

Ermalausir bolir? Hvernig á maður að skilja ykkur... hvað með skálmalausar buxur?

Nóg heimspeki í bili, best að snúa sér að bjórnum og Dan Brown.

Ps, fyndist (findist? findyst? nei það er ekki rétt) við hæfi að umskýra 'forget me' í 'forgive me'. Þetta er bíner skriftarstóll er það ekki?

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 3:16:50 | [+] |

Anna:

Bestu þakkir fyrir að setja Ashley Judd þarna á listan þinn.

Hvernig datt þér í hug að hún væri góður bólfélagi?

Nr. 2 | posted by: Organistinn | 17.05.2003 | 3:57:13 | [+] |

80% líkur á að ég sé karlmaður.. must count for somethin'

Nr. 3 | posted by: anna.is | 17.05.2003 | 4:00:51 | [+] |

Hva, maður fær ekki allt svarið sitt birt á Movie Hall of Fame. Þetta var nú allt vel meint.

Nr. 4 | posted by: Organistinn | 17.05.2003 | 4:01:55 | [+] |

Ok, svo þú ert líka hrifinn af henn.

Ashley Judd er mest sexí þegar hún er að því komin að gráta og andlitið hennar contorterast allt saman. Vulnerable konur eru mest sexí.

Nr. 5 | posted by: Organistinn | 17.05.2003 | 4:04:46 | [+] |

Ég verð að vera þér sammála þarna. Ég held að munurinn á venjulegum konum og leikkonum er að þær eru fallegar þegar þær gráta. Þannig pikka þeir þær út og gera að stjörnum. En harmonerar það ekki við það sem ég var að segja áðan? Erum við ekki basically þannig að karlmaðurinn á að vera sterkur og konan veik? (eins gott að femínistar komist ekki í þetta hjá mér.. mér til varnar.. ah.. hef ekkert mér til varnar..)

Nr. 6 | posted by: anna.is | 17.05.2003 | 4:07:45 | [+] |

Ég bara get ekki látið þetta vera...

En kona sem er að prjóna og fer að gráta?

Nr. 7 | posted by: anna.is | 17.05.2003 | 4:10:12 | [+] |

Já eiginlega var ég að því. Engin ástæða til að breyta þessu. Er þetta ekki rétt hjá mér.

Ég hélt kannski að Organistinn hefði krossað línuna með því að gera Tóta að Tóta Soprano og þú værir að hlífa mér fyrir að fá hitman í heimsókn. Eða harmónikuleikara.

Nr. 8 | posted by: Organistinn | 17.05.2003 | 4:10:56 | [+] |

Organistinn er sentímentalli en ég hélt. Það er Guðbergur í okkur öllum. Ég hlakka til að lesa um bólfarirnar með Ms. Judd, hvort sem þær voru astral eða ekki.

Að allt öðru. Ég þarf að skreppa heim, og viti menn, það borgar sig að fljúga til London, drekka Guinnes í einn dag (krítiskur partur af planinu) og svo heim með Iceland Express. Sparar $300 lágmark á háannatíma. So long Icelandair eða hvað þetta okurdót heitir.

Ertu búin að breyta hnappnum í 'forge me'? Eða sé ég ennþá einfalt?

Nr. 9 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 4:15:48 | [+] |

Nei ég var að hlífa Tóta. Ég hló svo mikið þegar ég las þetta að ég grét. (er ekki viss um að það hafi verið sexý) Vildi ekki að hann héldi að ég vildi honum svona illt, að missa eistun. Veit að honum þykir mjög vænt um þau og mér reyndar líka. Gleymdi í smá stund að hann hefur eðalhúmor eins og við, greinilega, og fannst þetta óborganlegt. Þú ættir að leggja þetta fyrir þig! Ertu kannski með handrit í vinnslu úti?

Nr. 10 | posted by: anna.is | 17.05.2003 | 4:16:01 | [+] |

Nei þegar þær prjóna verða þær að vera ákafar við að klára peysuna til að gleðja manninn og það gengur ekki ef þær eru grátandi. Þetta er annars konar sex appeal.

Talandi um vulnerable konur og sex. Bestu sex senurnar í bíómyndum nýlega voru einmitt í Monsters Ball (ok ég veit þú fílar ekki Billy Bob Thornton) þar sem Halle Berry var grátandi.

Ok, þið Tóti hafið sennilega rétt fyrir ykkur. Organistinn var og er perri.

Nr. 11 | posted by: Organistinn | 17.05.2003 | 4:17:40 | [+] |

Tek undir þetta. Organistinn er gott efni (Guðbergur að ofan var ekki út í bláinn). Hélt lengi að hann og Refurinn væru Alter Ego, en hef skipt um skoðun. Þeir eru báðir pennafærir í meðallagi. Hefði gaman af að gefa ykkur viskí og fylgjast með umræðunum í framhaldinu.

Nr. 12 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 4:19:28 | [+] |

Já það! hahahaha Er þetta sérstakt áhugamál þitt? Ég á eftir að sync-a kommentakerfið. Er núna að gera annað. Er búin að ákveða að leyfa broskalla í kerfinu því flestir nota ekki preview þegar þeir pósta og til þess að ég geti sett smælingjana inn verð ég að taka út preview-ið.

Nr. 13 | posted by: anna.is | 17.05.2003 | 4:21:04 | [+] |

Fannst persónusköpunin í Monster Ball vond, t.d. hvernig Halle skiptir allt í einu um skoðun á böðlinum í miðju atriði. Ekki traustvekjandi. En frú Alan var mjög hrifin. Henni er líka alveg sama þó eitthvað vanti upp á lógíkina (hún les þetta ekki)

Nr. 14 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 4:21:52 | [+] |

Alan: Því miður Judd er out of my leage!

Nei, Organistinn hefur ekki smitast af neinni Hollywood veiki. En hún er rampant hérna og annar hver maður telur sig geta skrifað handrit.

Nr. 15 | posted by: Organistinn | 17.05.2003 | 4:23:33 | [+] |

Nei, en þessi hnappur er gróflega stór og bíður eftir því að á hann sé ýtt. Þetta er eins og gullfiskablenderdæmið þarna einhversstaðar, einhver ýtir á hnappinn fyrr en síðar.

Nr. 16 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 4:23:43 | [+] |

Ah, svo ég hafði rétt fyrir mér með General Grant!

Nr. 17 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 4:24:44 | [+] |

Ég verð að vera sammála Alan hérna. Ég fór einmitt á myndina BARA til að sjá þessar rosalegu kynlífssenur en þær voru bara ekki að gera það fyrir mig. Billy Bob ber það með sér að hann er skíthæll. Hann myndi ekki turna mér on þó að hann væri á hlýralausum bol. Og þó... hehehe

Nr. 18 | posted by: anna.is | 17.05.2003 | 4:25:06 | [+] |

Ermalaus bolur myndi heldur ekki meika það fyrir mig þegar hann á í hlut. Halle myndi hins vegar alveg ganga, jafnvel með ermum.

Nr. 19 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 4:27:04 | [+] |

Myndi Halle ekki "gera það" fyrir alla.. konan er out of this world!

Nr. 20 | posted by: anna.is | 17.05.2003 | 4:28:47 | [+] |

Just to put the record straight: höfundur Organistans er enginn perri.

Jæja, tími til að fara heim. Þakka ykkur gott spjall Anna og Alan!

Nr. 21 | posted by: Organistinn | 17.05.2003 | 4:30:19 | [+] |

Sennilega, ef maður tæki niður gleraugun. Appelsínugula bikiníið fór henni samt ekki sérlega vel þarna í James Bond. Gult er hennar litur.

Nr. 22 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 4:31:39 | [+] |

Sömuleiðis.

Nr. 23 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 4:33:07 | [+] |

er hún svona hideous up close and personal???

Takk sömuleiðis Organisti, góða nótt.

Nr. 24 | posted by: anna.is | 17.05.2003 | 4:34:04 | [+] |

Veit það ekki, gult klikkar bara ekki. Grænt virkar hins vegar aldrei.

Best að fara að fordæmi Organistans og helga sig bjórdrykkjunni og honum Dan.

Takk fyrir mig.

Nr. 25 | posted by: AlanHudson | 17.05.2003 | 4:35:47 | [+] |

Takk sömuleiðis, best ég skríði upp í rúm sjálf. Búin að fixa div villuna.

Nr. 26 | posted by: anna.is | 17.05.2003 | 4:37:08 | [+] |

ég líka smile

Nr. 27 | posted by: anna | 18.05.2003 | 0:57:29 | [+] |

Þeir sjást að vísu bara ef maður klikkar á linkana til hægri, ekki ef þú smellir á linkinn undir hverri færslu á bloggsíðunni... Þetta hljómar óskiljanlega hjá mér.

Nr. 28 | posted by: AlanHudson | 18.05.2003 | 1:01:24 | [+] |

ég veit, ég er að vinna í þessu wink

Nr. 29 | posted by: anna | 18.05.2003 | 1:04:43 | [+] |

Mosaic, sorry.

Nr. 30 | posted by: AlanHudson | 20.05.2003 | 6:44:44 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web