www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Annan á bak við anna.is
Sunnudagur, 18. maí 2003


Rakst á þessa síðu hérna áðan og áttaði mig á því að ef þetta er rétt, atriði nr 4, þá er kannski fólk þarna úti sem finnst miður að vita ekki hver Annan á bak við anna.is er.

En skiptir máli hver ég er?

Mér fannst Dórið komast nálægt því að lýsa innihaldi bloggsins míns þegar ég msn-aðist við hann í morgun:
H@11d0r says:
"læsilegt og grípandi efni úr engu"

Ég er ekki heldur viss um að ég flokkist sem columnist en það má vel vera. Ég skrifa hinsvegar ekki um þjóðmál.. ég skrifa meira um hvað ég fer oft í bað og hversu blönk ég er. Flokkast það sem columnist??

Mér finnst það frekar fráhrindandi hugmynd að koma með bio á síðuna mína þar sem þetta er meira vettvangur fyrir mig að bulla og röfla en ekki staður þar sem ég.. jah.. æi ég veit það ekki. Lesendur mínir sem hafa lágmarks heilastarfsemi geta bara sett saman eigin prófíl. Er frekt af mér að fara fram á það?

Ef ég tek ákvörðun um að skrifa svona bio enda ég líklega á því að skrifa fjögur mismunandi bio eins og thorsteinngudmundsson.is gerir svo brilliantly á sinni síðu og fólk verður að sjálfsögðu engu nær... því þegar öllu er á botnin hvolft þá skiptir það ekki höfuðmáli hver ég er.. það sem skiptir máli er hver ég kýs að vera á anna.is.

Læt svo flakka restina af samræðum okkar Dóra frá klukkan sjö í morgun fyrir þá sem vantar profiler material.

H@11d0r says: farðu að sofa !

gaim says: bráðum. ég er að skrifa um ekkert, ætla að klára það, svo fer ég í bað og svo að sofa

H@11d0r says: bað ?

gaim says: já bað

H@11d0r says: sjís, skrítnar tímasetningar

gaim says: á maður ekki að fara í bað á morgnanna?

H@11d0r says: við erum að fara að upplifa Pure Morning einsog Placebo söng um

gaim says: HEF ÉG LIFAÐ Í BLEKKINGU ÖLL ÞESSI ÁR?

H@11d0r says: nei

H@11d0r says: kannski þú ættir að fra í bað

gaim says: ef þú fyndir lyktina af mér þá myndi þú ekki spyrja af hverju ég ætla að fara í bað.

H@11d0r says: man ekki eftir mynd með titilinn The stink of a woman

gaim says: ég er búin að nærast á kóki og sígarettum síðustu 24 tímana og nú er þetta farið að úsa út um svitaholurnar

H@11d0r says: takk fyrir mental picture

gaim says: það var ekkert

H@11d0r says: mentallly ruining picture more like

gaim says: viltu símann á kleppi? ég er með hann í speed dial hjá mér

H@11d0r says: speed dial, nr 3 hérna megin

gaim says: ertu að fara að lúlla?

H@11d0r says: amm

gaim says: ok

H@11d0r says: sofa í 5 tíma no more og svo sund

gaim says: syntu smá fyrir mig ok?

H@11d0r says: ollrætí

H@11d0r says: ætlar þú ekki að synda ?

H@11d0r says: ekki það sem þú meintir með að skrapa botninn ?

H@11d0r says: múhoho

gaim says: wahahahaha

gaim says: nei ég er svo spéhrædd

H@11d0r says: annað segja grannarnir í blokkinni á móti

H@11d0r says: nætí næt snúggums

gaim says: nætí næt


| anna | 17:40 |
comments

Er/var Helen Fielding columnist?

Hún skrifaði að vísu um B, Jones í dagblað. En ekki fer nú geðveikt mikið fyrir þjóðmálaumræðum á þeim bænum B)

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 19:31:22 | [+] |

Arg X( Akkuru ertu með ,,Remember personal info?" defult ,No' ?
:(

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 19:33:08 | [+] |

Þetta dót vill bara ekki muna hver ég er. Ég er hneykslaður :x .

M.a.o. það vantaði eitt ,a' þarna áðan, setjist þar sem við á. :guilty:

Sumir þessir smælingjar eru dulítið skrýtnir í litarhaftinu :flirt:

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 19:36:40 | [+] |

Hmmm... er það default á no? Kíki á það!

Nr. 4 | posted by: anna | 18.05.2003 | 19:38:59 | [+] |

djö.. ég finn ekkert út úr þessu!!!! :boggled:

Er búin að hafa samband við æðri máttarvöld... man þetta dót ekki eftir þér þó þú setjir á yes og póstir?

Já, þetta með litarhaftið... ég er ennþá að spá í að hafa þá alla með guluna bara... smile

Nr. 5 | posted by: anna | 18.05.2003 | 20:03:00 | [+] |

Það gerði það amk ekki áðan, ég reyni aftur.

Testing

one

two

three

Nr. 6 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 20:23:59 | [+] |

Neibb. Skrýtið, er eiginlega viss að þetta virkaði á hinni tölvunni í gær eða hvenær sem ég var að fimbulfama eitthavð. :guilty: To sekunder ég kveiki á hinni vélinni

Nr. 7 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 20:26:06 | [+] |

hmmm... þú ert ekkert með slökkt á cookies á þessari vél er það?

Nr. 8 | posted by: anna | 18.05.2003 | 20:35:30 | [+] |

Hérna virkar þetta fínt þannig að þetta er sennilega eitthvað helvítis fokk í IE5, ég er með það á borðvélinni minni, nenni aldrei að uppfæra það afþví ég þarf að strauja harða diskinn við tækifæri. Búið að standa til núna í 2 mánuði eða svo :miffed: Sem sagt ekki þér að kenna, þykir leitt að hafa kennt þér um þetta að ósekju :guilty: En þú mátt sem sé búast við böggi frá IE5 notendum.

Nr. 9 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 20:35:46 | [+] |

fari hann (IE5) í fúlan pytt!! :o)

Á ég ekki að bæta við ör efst í navigation örvunum þar sem þú getur farið neðst á síðuna til að setja komment? Ég held það bara....

Nr. 10 | posted by: anna | 18.05.2003 | 20:39:50 | [+] |

Líst vel á það. XD

Af hverju er ,XD' = ,slaphappy' ? :eek:

Nr. 11 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 20:44:22 | [+] |

Þetta átti semsagt að verða xD en ekki smælinginn...

Nr. 12 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 20:45:13 | [+] |

æi ég veit það ekki.. en hvað finnst þér um þessa smælingja:

smilesilent[biggrin]winkcoolspeechless0toungueembarassedhappysad[dissappointed][weteyes]pirate[suspicious]sourdoubtlaughingsick[shades]oogle[eyebrows]confused

Nr. 13 | posted by: anna | 18.05.2003 | 20:59:49 | [+] |

Flottir B)

Nr. 14 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 21:03:45 | [+] |

BTW þá er ,smælingi' ferlega fyndið orð yfir broskalla. :smirk:

Nr. 15 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 21:04:52 | [+] |

Helvíti kemurðu sterkur inn í getrauninni. Með aka nafnið og alles! Held upp á þessa mynd. Minnir mig á þegar ég ólst upp á heimili foreldra minna...

Nr. 16 | posted by: anna | 18.05.2003 | 21:17:16 | [+] |

Er búinn að skella inn Operu þar virkar þetta, þannig að öll bönd berast að skilgetnu afkvæmi andskotans og Bill Gates IE 5 X(

Nr. 17 | posted by: beggi.dot.com | 18.05.2003 | 21:18:50 | [+] |

Verð að viðurkenna að ég vissi ekki aka nafnið, fór á IMDB til að athuga hvort þetta væri ekki rétt hjá mér, mundi reyndar alls ekki hvað ráðgjafinn hét. Sá þá mér að óvörum að myndin hét The Ref, hún hét örugglega Hostile Hostages í Evrópu. Skrítið :o)

Nr. 18 | posted by: beggi.dot.com | 18.05.2003 | 21:25:16 | [+] |

Hverning væri að hafa autoresponsið líka á Íslensku? Ég er mikill áhugamaður um Íslensku og finnst alltaf svolítið leiðinlegt að fá póst á ensku frá íslendingum. Ég lít sem sé þannig á að pósturinn sé frá þér þótt hann sé sendur sjálfvirkt.

Nr. 19 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 21:28:48 | [+] |

Þetta er rétt hjá þér, hún hét Hostile hostages í evrópu. Snilldar ræma.

Nr. 20 | posted by: anna | 18.05.2003 | 21:31:26 | [+] |

Er að fara að sofa. Gaman að spjalla við þig. Meðal annara orða, ef marka má skoðanakönnunina um bólfélaga þá eru karlkyns lesendur í meirihluta hjá þér. Hmm, þetta hætir nú víst að hrapa að ályktunum. Það má lesa út úr könnuninni að þeir sem lesa síðuna þína hneigist til kvenna. :innocent:

Nr. 21 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 21:38:40 | [+] |

Já, þessu get ég breytt. Gerði það ekki just in case ef einhver útlendingur myndi senda inn svar. Þó síðan mín sé öll á ísl-ensku þá datt mér ekki í hug að hafa póstinn þannig!

Stundum furða ég mig á því hvernig heilinn í mér fúnkerar og hef af því þungar áhyggjur.

Nr. 22 | posted by: anna | 18.05.2003 | 21:39:23 | [+] |

Þegar heilinn (þá sjaldan) í mér fúnkerar sé ég ekki ástæðu til að hafa áhyggjur. Þegar hann virkar ekki er ég ekki fær um að hafa áhyggur. Ergo ég hef ekki áhyggjur. :o)

Nr. 23 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 21:44:21 | [+] |

Eitt sem bætist á listann ,,Gera þegar ég hef tíma" atriði 317. Kíkja á MT :smirk:

Nr. 24 | posted by: beggi dot com | 18.05.2003 | 21:57:08 | [+] |

hahahaha... missti af kommentinu hjá þér áðan um kynhneigð lesenda minna. Var einmitt að spá í það sama í gær, en segi eins og þú... það er aldrei of varlega farið í ályktunum! wink

Nr. 25 | posted by: anna | 18.05.2003 | 22:04:13 | [+] |

Ja, en hvernig vaeri ad fa sma bio um Dorid thannig ad hirdfiflin geti unnid hann inni okkar act.

I dag i NYT (nei eg er ekki JonasK) eru tvaer skemmtilegar greinar um blogg. Tjekkadu thaer:

Dating a Blogger, Reading All About It
A New York State of Blog

Nr. 26 | posted by: organistinn | 18.05.2003 | 23:28:18 | [+] |

Já hann á það til að dýfa latexklæddum höndunum í kalt vatn. Hann trúir hinsvegar á the kindness of strangers og gerir þessvegna eins lítið af því og hann getur.

Annars vinnur hann við að selja biblíuna í farandsölu og ég hef það fyrir satt að það bíði hans sannkristin blómarós í hverju byggðarlagi - enda er hann iðulega lúbarin í klessu af illskeyttum landsbyggðar eiginmönnum vopnuðum heykvíslum og rabbabara.

cool

Nr. 27 | posted by: anna | 19.05.2003 | 1:44:37 | [+] |

Sounds a lot like TonyClifton!

BTW, allir smælingjarnir segja smile þegar með setur cursor yfir þá. Áður var hægt að sjá hvað hver merkti.

Nr. 28 | posted by: organistinn | 19.05.2003 | 1:53:28 | [+] |

En hann er ekki Tony Clifton. Ég tékkaði á IP tölunni. Clifton er erlendis, Dórinn í Garðarbæ. smile

Nr. 29 | posted by: anna | 19.05.2003 | 1:58:00 | [+] |

Já, on second thought, Clifton á líka ung börn!

Svo þið Tóti eruð auðvitað búin að átta ykkur á hverjir standa bak við dulnefnin?

Nr. 30 | posted by: organistinn | 19.05.2003 | 2:03:03 | [+] |

Nei blessaður vertu, höfum ekki clue. Þið gætuð verið gamlir skólafélagar eða total strangers. Fíla ykkur regardless...

Af hverju spyrðu annars? Á ég að geta fundið þetta allt saman út með því að fletta upp IP tölunum í þjóðskránni?

Nr. 31 | posted by: anna | 19.05.2003 | 2:14:47 | [+] |

Beggi:

They say Microsoft will make something that doesn't suck when they start manufacturing vacuum cleaners.

Nr. 32 | posted by: anna | 19.05.2003 | 2:21:02 | [+] |

Ég hef ekkert vit á þessu, en geri ráð fyrir að hægt sé að fá upplýsingar sem tengjast IP tölum. Er það rétt? Þú ert sérfræðingurinn í þessu.

Ég geri líka ráð fyrir að ef þú hefðir upplýsingar um hverjir eru internet providers fyrir t.d. mínar tölvur þá væri tiltölulega auðvelt að koma því heim og saman við mjög fáa Íslendina. Anyway, ég bara treysti því að þið leyfið Organistanum að vera Organistanum.

En Refinum Loka, just go ahead...

Nr. 33 | posted by: organistinn | 19.05.2003 | 2:57:26 | [+] |

IP tölur eru sacred. Mín endar t.d. á 73, (amk þessi sem ég er á núna), það er árið sem faðir minn vakti mig klukkan 7 að morgni þegar það gaus í Vestmannaeyjum. Hann vakti mig bara til að segja að ég þyrfti ekki í skólann. Ég hef alltaf átt erfitt með að vakna, það eru ekki mörg ár síðan ég fyrirgaf honum þetta.

En anna.is er ágæt eins og hún er. Ég vil alls ekki vita meira um hana en þegar er, þó segir mér eitthvað að Alan og anna.is, ásamt Don Tóta, eigi eftir að hittast í gleðskap áður en langt um líður. Heimurinn er lítill og margir þekkja sama fólkið, eru skyldir, eða bara eitthvað.

Svona er þetta bara. Takk fyrir að breyta tökkunum.

Nr. 34 | posted by: AlanHudson | 19.05.2003 | 5:00:03 | [+] |

Innan skamms þýðir innan ca 10 ára. Ef allir lifa. :silent:

Nr. 35 | posted by: AlanHudson | 19.05.2003 | 5:02:46 | [+] |

Alan: en koma ekki fram upplýsingar um internet provider? Hvernig vissi Anna að Clifton er utanlands?

Nr. 36 | posted by: organistinn | 19.05.2003 | 5:58:30 | [+] |

Anna: Góður þessi með ryksuguna[eyebrows].

Ég geri ráð fyrir að þú vitir að það er (oftast) hægt að finna nokkurnveginn hvaðan IP tala kemur, en mjög ólíklegt að hægt sé að finna nákvæmlega hver hefur sent, nema auðvitað með því að sannfæra ISPinn um að maður megi skoða logginn hans.[shades] Það gengur hins vegar yfirleitt ekki nema með lögregluúrskurði[weteyes]

Nr. 37 | posted by: beggi dot com | 19.05.2003 | 8:32:46 | [+] |

Beggi hefur lög að mæla. Það er mjög auðvelt að nota IP tölu til að rekja notanda hvar sem er í heiminum.

Þetta eru samt ekki upplýsingar sem ISPar mega gefa upp nema til lögreglu eða að undangengdum dómsúrskurði, eiginlega af augljósum ástæðum. EN. Hvaða leikmaður sem er getur flett upp IP tölunni og það skilar nafni á nafnaþjóninum sem hún er skráð á og með því er t.d. er hægt að sjá í hvaða landi hann er. Ef ekki með nafnaþþjóninum, þá með IP netinu sem IP talan er hluti af.

Þó ég hafi alltaf haft aðgang að IP tölum þeirra sem kommenta á síðurnar fór ég ekki að skoða þær fyrr en ruddalega vinkona okkar, Samhverfa og vinir hennar, fóru að pósta. Það áhugaverðasta sem kom út úr þessum IP athugunum mínum er að allir þeir sem hafa sent ruddaleg komment inn á síðurnar okkar eru með isdn eða dial-up tengingu til Landssímans. Það finnst mér stórmerkilegt.

Það eina sem ég veit um Organistan er hvaða nafnaþjóna hann er að nota og það er alveg nóg fyrir mig. Ég er sammála Alan... smá mystería skemmir aldrei fyrir.

Organistinn þarf þessvegna ekki að örvænta frekar en aðrir gestir okkar Tóta og Þó ég væri búin að grafa upp allt um hann down to his shoe size myndi ég aldrei gefa það upp á síðunni. Ég gef ekki heldur upp IP tölur gesta á síðunni.

Organistinn fær að vera Organistinn í friði. Sama gildir um aðra gesti.
wink

Nr. 38 | posted by: anna | 19.05.2003 | 11:36:09 | [+] |

Organisti, þú getur gerst þín prívat internetlögga með litlu nettu tóli sem kallast 'Internet Maniac'. Með því getur þú gert allt þetta sem anna.is lýsir að ofan, and more...

Ég tel mig reyndar vita hver samhverfa og vinir hennar eru. Lesið innherja og horfið eftir ritstílnum - þú ert góður í því ekki satt organisti? Góðir pennar hafa auga fyrir slíku wink

Nr. 39 | posted by: AlanHudson | 19.05.2003 | 15:28:51 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web