Sunnudagur, 25. maí 2003
Gísli Marteinn vann eurovision. Hann rokkar. "og koma svo!"
Annars fannst okkur "má þetta?" best þegar stigin voru gefin frá.. man ekki frá hvaða landi en konan var í blúndukjól sem var ekkert að fela neitt mikið. Við vorum í kasti. Hann fær líka plús fyrir að segja "helvítis" þó hann hafi breytt því í "ansans" stuttu seinna. Hvað er að því að segja helvítis í sjónvarpinu?
Næst legg ég til að Gísli Marteinn og Logi Bergmann lýsi þessu báðir í beinni. Ég gæti trúað að það myndi slá í gegn.
Ég sá ekkert athugavert við Birgittu, fannst hún standa sig mjög vel en persónulega féll ég fyrir "I'm not afraid to move on" með Jostein Hasselgård, enda er ég ballöðukona.. hlusta m.a. á.. hvað heitir hann nú aftur.. djö.. ég man það ekki...
Bretland var magnað. Manni fannst þau syngja í rangri tóntegund allan tíman, nema þegar undirspilið dó í smá stund.. ótrúlegt. Það var allavega eitthvað MIKIÐ að í þeim flutningi. Fengu þau stig?
Bláa konan sem fetti sig og bretti... what the fuck? Manni leið illa...
Verð að vera sammála tatú stelpunum.. sú þýska var eins og lukkutröll úr rammagerðinni. Ef ég liti svona út myndi ég forðast að vera í sviðsljósinu í lengstu lög. Ég myndi líka ekki segja að ég væri 39 ára... ef maður lítur svona út á maður að segjast vera 93 ára og vona að fólki finnist maður líta vel út miðað við aldur.
Tóti var búin að ákveða að Tatú ætti að vinna. Á hverju hann byggði þessa ákvörðun veit ég ekki, ekki hafði hann heyrt lagið, held að hann hafi verið að vonast til að þær sýndu einhverja lessu tilburði á sviðinu. Hann er forfallinn lessu action aðdáandi. Þær voru óspennandi og fluttu lagið illa. Fannst óborganlegt að salurinn skyldi púa á þær þegar rússland fékk 10-12 stig. Eftir úrslitin sagði Tóti: "Evrópa hatar samkynhneigða"
Hmm... o ætli það.
Það var áhugavert hvað mörg lög voru skelfilega illa flutt og hvað það er endalaust vinsælt að vera með bakraddasöngkonur sem fækka fötum. Já.. hvað er eiginlega í gangi með konurnar í þessari keppni?? Í sumum tilfellum hefðu þær allt eins getað verið naktar. Ég hef bara eitt við þetta að athuga. Af hverju voru þá allir karlmennirnir í fötum? Ósanngjarnt í meira lagi.
Fórum úr breiðholtinu á eggertsgötu í partý á 2 fm. Tóti var í stöðugu símasambandi við Siggu sem var í partýinu hans Gumms. Það sem við erum á hausnum höfðum við bara efni á að taka leigara upp í breiðholt. Billi keypti okkur niður á eggertsgötu.. annars hefðum við þurft að labba heim, húkka far eða gista hjá vinafólki okkar sem hélt eurovisionpartíið. Það var þessvegna aldrei í spilunum að taka leigubíl út á Arnarnes. Klúður því ég drakk ekki dropa í eurovisionpartíinu og hefði því alveg geta verið á bíl. Það er eitthvað í mér sem hindrar að ég geti drukkið þar sem ungabörn eru, mér finnst það ekki fara saman.
Fékk mér í glas á eggertsgötunni en hefði getað keyrt þaðan líka...
Verð að viðurkenna að alla helgina hef ég verið upptekin af nýju badabing.is síðunni sem ég er að html-a og ekki skemmdi fyrir þegar tengdamamma bauð krökkunum í sveitina yfir helgina.
Ég sendi Tóta út á lífið á föstudagskvöldið og sat við tölvuna til klukkan fimm. Þá sofnaði ég í stólnum og svaf til 11. Settist ég upp og hélt áfram.
Ég þoli ekki Netscape.
Alveg rétt. Barry Manilow. Can't smile without you... Þegar ég heyri það lag þá fer um mig einhver skrítin tilfinning... minnir mig á þann tíma sem ég trúði á riddara á hvítum hestum og að ástin sigri allt. Ég var víst bara barn.