www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á Esjunni
Mánudagur, 19. maí 2003

Eftirfarandi samræður áttu sér stað fyrir utan ónefndan "garð" í reykjavík klukkan 16:02 í dag:

Zippy: Það verður sólmyrkvi aðfaranótt 31. maí.
Anna: Nú?
Zippy: Já.
Anna: Ætti maður að fylgjast með honum?
Zippy: Þú verður að fara upp á Esju til þess. Þetta sést ekki nema þaðan.
Anna: Og ætlar þú upp á Esju til að sjá þetta?
Zippy: Ég er nú bara alvarlega að hugsa um það, svona gerist í mesta lagi tvisvar á mannsævinni.

smá þögn

Anna: Annars finnast mér svona myrkvar og þannig náttúruundur soldið eins og bad sex.. þú fyllist eftirvæntingar og svo þegar það kemur að stóru stundinni þá er allt búið á nokkrum mínútum.
Zippy: Já, en það er nauðsynlegt að upplifa bad sex öðru hvoru, þá kann maður betur að meta það sem maður hefur.
Anna: já.

smá þögn

Anna: Já. Svo þú ert á leiðinni á Esjunna að hafa bad sex um mánaðarmótin?


| anna | 16:35 |
comments

Refurinn Loki virðist vera búinn að kjósa; James Gandolfini er búinn að fá eitt atkvæði.

Nr. 1 | posted by: Organistinn | 19.05.2003 | 23:25:10 | [+] |

Neibb. Það var mamma.

Ég hélt að Carmela og Furio hefðu verið eitthvað saman? Svo er hann bara farin aftur til Ítalíu. Aumingja Carmela. Ég finn svo til með henni...
sad

Nr. 2 | posted by: anna | 19.05.2003 | 23:45:05 | [+] |

Já, svo þetta affinity fyrir mafíósatýpum er bara í genunum hjá þér! Eins gott að mamma sé með sterkt hjónarúm -- ekkert IKEA jönk.

Nr. 3 | posted by: Organistinn | 19.05.2003 | 23:52:07 | [+] |

Manstu eftir Wöndu í Fish Called Wanda?

Ég er með sama problem og hún... nema hjá mér er það enska með Jersey hreim... Hrikalega hallærislegt en engu að síður staðreynd.

Mamma er engin mafíósi. Hún bara veit ekki hverjir hinir eru..

Nr. 4 | posted by: anna | 20.05.2003 | 0:07:28 | [+] |

Aha - 'hinir', eru það 'þeir'?

Vek annars áhuga tónlistarmannsins okkar á að á tonlist.is má hlusta á prýðis tónlistarstrauma. T.d. fyrirtaks íslenskan jazz. Leikur Organistinn einhverntíma jazz á orgelið?

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 20.05.2003 | 0:18:31 | [+] |

Alan: því miður Allan, Organistinn er bölvaður auli þegar kemur að tónlist. Kannski ekki svo ólíkur nafna sínum og fyrirmynd úr Atómstöðinni.

Nr. 6 | posted by: Organistinn | 20.05.2003 | 0:25:56 | [+] |

Sorry, hvað ég var slow. Nú fatta ég það: Tóti talar ítölsku fyrir þig á krítískum augnablikum.

Þú ættir nú að gleðja hirðina með því að taka það upp og setja sem fæl á síðuna þína.

Nr. 7 | posted by: Organistinn | 20.05.2003 | 0:41:10 | [+] |

Nei ég hef ekki séð Life as a house en er búin að lesa um hana á IMdB og hún er næst á dagskrá á leigunni.

Kevin Cline er frábær og brilliant sem Ottó. Ég get horft endalaust á Fish Called Wanda og var einmitt um daginn að sinna uppeldishlutverki mínu með að sýna eldra afkvæminu mínu þessa snilldarræmu!

Alan:

Hvernig Jazz hlustar þú mest á? Hver er í uppáhaldi og hvaða tegund?

Nr. 8 | posted by: anna | 20.05.2003 | 0:47:00 | [+] |

Neibb.. Ítalska virkar ekki. Franska virkar ekki. Rússnenska virkar ekki... bara enska með Jersey hreim... ég bara skil ekki af hverju!

Nr. 9 | posted by: anna | 20.05.2003 | 0:49:16 | [+] |

Ok, settu þá hljóðfæl á síðuna þína: Tóti seducerar anna-punktur-is með Jersey hreim a.la. Ottó. Annars er open season að við skrifum þetta inní næsta Sópranó þátt.

Organistinn og Anna eru bara að lifa parallel lífi, eða þannig, því ég naut einmitt Wöndu með syni mínum, sem fílaði hana í botn.

Life as a house er ekki kómedía, en mjög góð. Reyndar gerist sagan í nálægð við Organistann í fleiri en einni merkingu.

Nr. 10 | posted by: Organistinn | 20.05.2003 | 1:00:55 | [+] |

Alan: ég er að prófa þetta, tonlist.is er flott. Ertu tengdur þessu á einhvern hátt?

Nr. 11 | posted by: Organistinn | 20.05.2003 | 1:02:20 | [+] |

Ég las nógu mikið um hana á IMdB til að vita að hún er ekki kómedía og velti því fyrir mér á hvaða hátt, fleiri en einn, hún getur verið í nálægð við þig... hmm..

Note to self: Leigja Life as a house asap!

Jóhanna fílaði myndina líka í botn, eðalbörn sem við eigum smile

Annars verð ég að hit the hey svo ég sofi ekki aftur yfir mig á morgun...

nætí næt..

Nr. 12 | posted by: anna | 20.05.2003 | 1:10:41 | [+] |


Ég bíð eftir dómi þínum um Life as a house. Ég á við að myndin er nálægt geografískt, og að hún fjallar um tímabil í lífinu sem er nær mér en þér. Það kemur nefnilega að því, þegar Jóhanna eldist og fer að sörfa netið, að Tóti verður að hætta að nota orð eins og rúnka og brund -- og Anna-punktur-is verður annaðhvort að taka upp dulnefni eða að fara ritskoða sig. En kannski er þetta bara amrískt sentiment.

Takk fyrir spjallið og góða nótt!

Nr. 13 | posted by: Organistinn | 20.05.2003 | 1:19:32 | [+] |

Afsakið að ég skyldi ekki svara strax. Alan var að skrifast á við fólk sem hefur sameiginlegra hagsmuna að gæta. Fyrir tóman klaufaskap og aulagang þá setti hann 'reply all' á skeyti sem var eiginlega bara ætlað einum við takanda. Síðan hafa verið skrifuð mörg afsökunarskeyti. Alan er ekki viss um að hann fari aftur til Íslands. Nema náttúrulega að hann geti bara verið Alan þar líka.

Organisti, nei ég er ekkert tengdur þessu, en finnst framtakið fyrirtak. Sit í andakt og hlusta á jazz og Álftagerðisbræður. Hver kemst ekki við og tárast þegar þeir synga 'Litli vin'? Meira að segja refurinn með sína þurru hvarma kemst við (I bet).

Anna.is, ég hlusta eiginlega á allan jazz. Allt frá gamla New Orleans jazzinum yfir í jazzfönkið og fusionjazzinn. Sumt af fusionjazzinum er nú samt þannig að það sker dálítið í eyrun. Svona eins og ungabarn að sarga á fiðlu í fyrsta sinn. Jazzinn á tonlist.is gefur manni eiginlega ágætis þverskurð, en það vantar kannski meira af mýkri lögum. Davíð Þór er t.d. ekki fyrir alla - en lagið hans 'Byggja hús' sem er þarna er dásamlegt. Sérstaklega þagnirnar - þetta er auðvitað misheppnuð tilraun til gríns, lagið er framúrskarandi.

Nr. 14 | posted by: AlanHudson | 20.05.2003 | 2:21:04 | [+] |

Alan:

Ja, ja, thad ma vera ad myndin hafi hofdad svona dalitid personlulega til Organistans. Til ad mynda er eg smaborgari og orlitid design freek og thvi fylgir akvedin anaegja ad sja hus byggt. Thetta med strakinn finnst mer tho ekki vandamal, thvi thad sem hin barnlausu Hudsons vita ekki enn er ad taningar geta tekid stakkaskiptum -- sem betur fer. Og on second thought, tha tek eg til baka ad thad se ekki humor i myndinni. Mary Steenburgen sem kynsvelt fraskilin midaldra kona i Laguna/Newport Beach er kannski klisja, en engu ad sidur drep fyndin. (madur ser thessar konur herna all the time a kaffihusunum. thaer keyra um a Mercedes)

Ertu i bokmenntum? Eda raedur Alan bara ekkert vid Y litninginn sinn?

Nr. 15 | posted by: organistinn | 20.05.2003 | 5:30:34 | [+] |

Nei, engar bókmenntir nema sem neytandi, les raunar mikið.

Þó, ég fæ stundum óttalega skrifræpu eftir 2-10 bjóra. En eftir að ég uppgötvaði ritlist Organistans, þá hef ég ekki fundið sömu þörf og áður. Þarf sumsé meiri bjór núna og það er hvorki gott fyrir vaxtarlagið né morgunhressleikann.

Svo ekki sé nú minnst á frú Hudson.

Nr. 16 | posted by: AlanHudson | 20.05.2003 | 5:58:59 | [+] |

Alan: thad er afleitt ef Organistinn dregur ur ritstorfum thinum. Thu ert nu mjog snjall penni sbr. soguna um biskupinn og sjalfstaedismennina. Eg vil gjarnan sja meira.

En hvad heldur thu med Loka, er hann published rithofundur. Hann virdist oft leggja toluvert i thetta thannig ad manni grunar thad. Hvad heldur thu?

Eg vil einnig gjarnan sja skaldsogu eftir Tota. Ef Toti haetti ad drekka i eins og i 6 manudi tha gaeti hann eflaust komid thessu fra ser medfram bladamennskunni. Ekki fer neinum sogum um ad hann vaski upp eda ryksugi heima hja ser.

Nr. 17 | posted by: organistinn | 20.05.2003 | 7:08:52 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web