Finally
Mánudagur, 05. maí 2003
Þar kom að því að ég gat sett upp nýju síðuna. Núna er ég hinsvegar þreytt og á leiðinni upp í rúm. Góða nótt.
|
|
 |
 |
Titlar á blogg
Þriðjudagur, 06. maí 2003
Ég tók þá ákvörðun, þegar ég var að laga síðuna mína til, að hafa titla á þessu rugli sem ég skrifa hingað inn. Aðallega til að auðvelda achiving. Það sem verra er... -er að flest sem ég skrifa hefur engan sérstakan titil. Ég var að spá í að fara yfir færslurnar einhverntíman þegar sólin skín og ég hef ekkert betra að gera en áttaði mig á að titlarnir yrðu ca 5:
1. DJÖFULLINN!!!
2. Ég fór í bað...
3. Mér leiðist
4.
Já. Þeir yrðu bara þrír.
Þetta gæti valdið misskilningi fyrir þá sem eru að reyna að finna ákveðnar færslur. -Þó ekki þar sem ég efast um að það sem ég skrifa sé eitthvað sem fólk sækir í að lesa aftur og aftur og aftur... Nema kannski ég þegar ég þarf að athuga hvort ég sé búin að röfla yfir einhverju áður.
Ég hef þessvegna ákveðið að taka bara fyrstu orðin þegar ég er í óstuði, sem er mjög oft, og klína því á sem titil. Í kjölfar þessarar ákvörðunnar hef ég getað náð órofnum svefni þrjár nætur í röð.
|
|
 |
 |
Movable Type
Þriðjudagur, 06. maí 2003
Djöfull er MT flott græja. Það er hægt að leita í öllum fokking síðunum með því að endurtaka leytina sem kemur upp eftir að þú ert búin að framkvæma "leita í ravings"! I think this is a beginning of a beautiful friendship...
Næsta má á dagskrá, þegar ég er búin að klára þessa síðu, er að lappa aðeins upp á badabing.is. Allar tillögur vel þegnar.
I'm a man!?
Þriðjudagur, 06. maí 2003
Ég var að taka próf á thespark.com, "TheSpark's Amazing Gender Test, sem hefur þennan disclaimer: Guys and girls are different in ways only we realize. In fact, without asking about your clothes, grooming, or chest, our Gender Test *will* predict, with 100% accuracy, whether you're a guy or a girl.
Nú. Ég tók prófið og niðurstaðan er að það eru 80% líkur á að ég sé karlmaður...
Þetta með 100% accuracy er álíka sniðug markaðssetning og að skýra bíómynd "The neverending story". Þvílík vonbrigði fyrir mig sem það voru þegar myndin endaði.
|
|
 |
 |
Sæll Anna
Miðvikudagur, 07. maí 2003
Þegar ég byrjaði að vinna í lénabransanum fékk ég endalaust magn af pósti sem byrjaði svona:
"Sæll Anna"
Þetta fór óendanlega í taugarnar á mér því ég er ekki sæll. Ég er sæl. Alsæl undir venjulegum kringumstæðum en ég sá ástæðu til þess að láta þetta pirra mig í tíma og ótíma. Gekk þó aldrei það langt að senda "leiðréttingu" með tilheyrandi skítkasti því þetta er mér ekkert hjartans mál. Bara ágætt að hafa eitthvað til að pirrast yfir.
Í dag gerðist hinsvegar hið ótrúlega. Ég var að svara konu sem heitir Anna og sendi group reply sem fer á hina starfsmenn fyrirtækisins. Stuttu síðar kemur Óli kerfisstjóri aðvífandi og spyr: "Síðan hvenær er Anna karlmaður?". Ég ályktaði að hann hefði verið að lesa bloggið mitt og sagði: "síðan hún tók prófið á thespark.com síðunni".
Óli: Nei, þú varst að svara einhverri konu og skeytið byrjaði á "Sæll Anna".
Það hefði mátt heyra orm leysa vind svo mikil var þögnin sem kom í kjölfarið.
Ég get hvorki útskýrt né afsakað þessa gjörð mína. Fletti upp póstinum og sjá! "Sæll Anna" skrifað af minni eigin hendi. Svona verður maður af því að hafa samskipti við 5% konur og 95% karlmenn í vinnunni. Ég er svo mikið hjarðdýr að ég bara verð karlmaður og held að allar aðrar Önnur verði það líka. Magnað.
|
|
 |
 |
You are Jubilee!
Miðvikudagur, 07. maí 2003
Hver er nú það???
 You are Jubilee!
Though you may be young and inexperienced, you have great potential and will someday become an admirable figure. For that to happen, though, you must overcome your juvenile belief system and adopt a more mature view on life.
Which X-Men character are you most like? brought to you by Quizilla
|
|
 |
 |
Úff maður
Miðvikudagur, 07. maí 2003
Ég er rosalega stolt af mér núna. Búin að bæta við "eMail this entry" fítus og Tóti er byrjaður að gera allt sem hann getur til að tryggja samfellda veru mína við tölvuna svo ég klári síðuna mína sem fyrst. Þá get ég bætt öllum þessum dásamlegu fítusum á síðuna hans.
Ekki það. Fann tutorial sem virkar fyrir alla, jafnvel clueless morons, og hefði hoppað niður af svölunum ef ég hefði ekki getað gert þetta á innan við klukkutíma.
Þá hef ég bætt við site search á forsíðuna sem ég mun paste-a á allar síðurnar (þegar ég nenni) og náttúrlega eMail this entry á ravings. Bæti því líka á allt draslið þegar ég nenni.
10 manns búnir að kjósa á pollinu. Eða AlanHudson 9 sinnum. Ég horfði á kerfisstjórann minn kjósa "ömurð" í dag svo ég veit að það var ekki Alan. Ákvað að láta það bara standa þó að hann hafi bara gert það til að stríða mér. Það er örugglega fullt af fólki sem finnst síðan mín glataðasta síðan á Internetinu og það er þeirra réttur að hafa þá skoðun. Mér þykir samt vænt um allt þetta fólk.
Þetta er Anna, sátt við lífið, og á leiðinni í bað. Ójá.
|
|
 |
 |
The Road To Hell
Föstudagur, 09. maí 2003
Ég sit hér stjörf að þreytu og hlusta á The Road To Hell með Chris Rea. Þetta er svona lag sem fær mann til að píra augun örlítið til að vera cool og ímynda sér að maður sé einn að keyra eftir einhverjum highway í bandaríkjunum seint um kvöld. Vegaskilti, rusl sem fýkur um við vegakanntinn og roadkills eru það eina sem þú hefur til að halda þér vakandi.
Ég sé fyrir mér stuttan leðurjakka, leðurstígvél og gallabuxur. Belti með stórri sylgju með mynd af hauskúpu, blæjubíll, sígaretta, novelty kveikjari, hvít dekk, the occasional emergency phone, teamsters, grease ball pit stops, tattoo...
Eða
Jakkaföt, opin skjalataska í farþegasætinu, losaralegt bindi um hálsinn, cartier úr, boss gleraugu, benz, sömu skilti, sama ruslið á vegakantinum, ein hönd á stýri, aspirín í hanskahólfinu við hliðina á flösku af pepto bismol, heldur um ennið, far eftir giftingarhring á vinstri hendi og lík í skottinu.
Eða
Ljóshærð, ilmgjafi á speglinum, elvis dillar sér á mælaborðinu, háhælaðir skór á gólfinu farþegamegin sem hún fór úr því henni finnst betra að keyra berfætt, blæjan uppi, kross í keðju um hálsinn, visine í hanskahólfinu, matvæli í skottinu, wild turkey peli á milli sætanna, sofandi barn í aftursætinu, kremlituð dragt, valíum.
Eða...
|
|
 |
 |
Hitt og þetta
Sunnudagur, 11. maí 2003
Jæja. Í hádeginu í gær fór ég í próf í íslensku sem ég held að ég hafi náð. Var að djamma í gærkvöldi með vinnufélögunum og kom heim hálf tólf. Tóti var á framboðsrölti og skilaði sér heim rétt fyrir átta í morgun. -Og ég sem var að íhuga að aflétta the D curse.
Á meðan Tóti öskraði Doors lög á markaðmógúla var ég að setja upp heimasíðu fyrir mömmu.
Ég er nú samt aðallega að setja inn þessa færslu vegna þess að mig langar að benda fólki sem hefur áhuga á heimasíðugerð á þetta hérna: Color Scheme Designer Það er draumur að vinna með þessa litlu græju.
Annars sit ég bara hér að prufa að setja upp photolog, hætt við að hafa MT photolog og búin að ákveða að taka bara galleríið sem ég er með og tweak-a það til að fella það að síðunni minni. Fann tutorial um það áðan.
Af kosningarmálum finnst mér áhugaverðast af öllu að engin flokkur hafi séð ástæðu til að berjast fyrir afnámi vertryggingar. Sú aðgerð yrði án efa stærsta kjarabót heimilana í landinu. Í kjölfarið myndi geðheilsa ungs fólks stórbatna, ríkið gæti sparað helling í heilbrigðisgeiranum og prósakkneysla landans myndi minnka verulega.
Palli, gamli bekkjafélaginn minn úr barnaskóla - eins og eiginmaður minn, er úti núna skilst mér en á ennþá von. Ég vona að hann komist á þing. Ég held að hann sé búin að stefna að því frá unga aldri og held líka að hann myndi standa sig vel. Hefði jafnvel drattast á kjörstað til að kjósa hann væri ég skráð í það kjördæmi.
Tóti lá í sófanum til tæplega tvö en gafst upp og fór að sofa. Ég sit við tölvuna mína, eins og venjulega, og er að fikta.
Árni Snævarr fær hrósið fyrir:
"hver ætli sé að naga þröskuldinn á Alþingi núna?"
Ómar Ragnarsson fær dissið fyrir að reyna að ná Steingrími en mistakast hraparlega.
Bogi fær diss fyrir að gera kosningasjónvarpið að vettvangi til að senda kveðjur til vina og vandamanna og láta vita að maður sé að horfa á kosningarsjónvarpið.
Edda fær hrós fyrir að auglýsa diet kók.
Þorsteinn J fær hrós fyrir að vera fjallmyndalegur, hafa nef fyrir hvað maður nennir að hlusta á á milli talna og vera bara overall skemmtilegur.
Útsendari stöðvar tvö í Ráðhúsinu fær diss fyrir að kunna ekki að tala íslensku og já.. búin að vera soldil umræða um það á msn hvort Árni Snævarr sé á koffeini eða einhverju sterkara? Fíla hann regardless.
Að lokum langar mig að segja stutta sögu. Í barnaskóla kenndi mér maður sem heitir Haukur. Hann var kommi, geymdi söngbækur með baráttusöngvum á kennaraborðinu, stýrði málefnalegum umræðum bekkjarins og hvatti okkur til að rísa upp gegn kerfinu. Hann var með sítt hár og gekk í blárri mussu með hvítum röndum. -Alltaf.
Þegar ég var ca 18 ára rakst ég á Hauk. Þá var hann löngu hættur að kenna og komin í gott djobb hjá Námsgagnastofnun minnir mig. Ég ætlaði hinsvegar varla að þekkja hann því hann var með klassíska herraklippingu og í jakkafötum. Ég verð sjaldan kjaftstopp en ég var kjaftstopp þá. Þegar ég var búin að jafna mig spurði ég hann: "hvar er mussan og hárið?" og hann svaraði því til að hann hefði reynt að vera með síða hárið og mussuna, en þá hlustaði engin á hann á fundum. Hann varð að klæða sig rétt og klippa sig rétt til að mark væri tekið á honum.
Ég spyr. Hvernig stendur á því að fólk sem býður sig fram til að stjórna landinu sér þann kost vænstan að gera sig endalaust að fíflum í kosningabaráttunni? Vilja Íslendingar bara kjósa trúða á þing?
|
|
 |
 |
Náttföt
Sunnudagur, 11. maí 2003
"Ég fer kannski bara næst í náttfötin" - Árni Snævarr.
Hann er nýji uppáhalds fréttamaðurinn minn. Uppáhalds blaðamaðurinn minn er náttúrlega Þórarinn Þórarinsson.
En Árni, sefurðu í alvörunni í náttfötum?
Það virðist algengt að fólk annaðhvort sofi í náttfötum eða ekki. Það fer hinsvegar bara eftir því hversu þreytt ég er í hverju ég sef. Stundum er ég svo þreytt að ég bara sofna í þeim fötum sem ég er í, og þá eru það yfirleitt hallæris joggingföt sem ég er búin að klæða mig í til tölvu setu. Þá þarf ég að fara í bað næsta morgunn. Ég get samt ekki sofið í sokkum. Sonur minn virðist hafa erft þetta frá mér því ef hann er að horfa á sjónvarpið undir teppi í stofunni þá fer hann alltaf úr sokkunum. Merkilegt. Stundum fer ég í bað og fer beint úr baði upp í rúm. Þá sef ég nakin. Ég á náttföt en ég sef ekki oft í þeim. Sef stundum í stuttermabolum, stundum í vanilla sky bol, stundum í return of the mummy bol. Hey! Ég gæti gefið return of the mummy bol í verðlaun fyrir að komast í the movie hall of fame! Held við eigum ennþá ca 10 ónotaða af þessum 50! Týpískt... ef þetta hefðu verið spiderman bolir hefðum við geta grætt formúgu á ebay!!!
Fokk.. ég heyri fuglasöng. Það þýðir ða ég þarf að fara að sofa. Djö...
|
|
 |
 |
Stickfigures
Sunnudagur, 11. maí 2003
Finnst rétt að minnast á að það eru komnar nýjar stickfigure myndir í safnið mitt.
Meira af því sama en mér finnst þetta alltaf jafn skemmtilegt. Er líklega bara svona ofbeldishneigð innan við beinið...
Nýja anna.is
Sunnudagur, 11. maí 2003
Niðurstöður úr "hvernig finnst þér nýja anna.is" pollinu eru eftirfarandi:
Alls nýttu kosningarrétt sinn 23 manneskjur.
69.6% finnst hún flott
13% finnst hún allt í lagi
8.7% finnst hún glötuð
4.3% finnst hún ömurð
og
4.3% neita að svara
|
|
 |
 |
"Ég leiddi þennan flokk"
Sunnudagur, 11. maí 2003
Það er nú eitthvað að hjá Össuri.
Hjá Agli í dag: "Ég leiddi þennan flokk í rúmlega þrjátíu prósent fylgi". HALLÓ!!!! ER EINHVER HEIMA???
Ef hann leiddi flokkinn... af hverju var þá ekki sýnt frá hans ræðu á Hótel Íslandi? Af hverju sá hann sér ekki fært að drullast upp á svið þegar Ingibjörg kynnti hann? Er Össur geimvera?
Þessum spurningum verður aldrei svarað.
Til hamingju samfylkingarfólk! Mér fannst magnað að sjá loksins meðframbjóðendur Ingibjargar á sviðinu á Hótel Íslandi. Þau sáu sér fært að mæta upp á svið og ég sá þau... nánast í fyrsta sinn...
Ég leiddi þennan flokk my ass... Er Össur þá the ultimate maðurinn á bakvið tjöldin? Bíðum bara! Kannski koma fleiri fram á sjónarsviðið sem telja sig hafa leitt samfylkinguna til sigurs. Hver veit! Kannski gerði ég það!
Finnst leiðinlegt að Margrét Sverrisdóttir og Páll Magnússon hafi ekki náð inn.
|
|
 |
 |
PS2
Mánudagur, 12. maí 2003
COOLNESS!!!
Ég var að fá þær fréttir að mér stendur til boða aukavinna við að spila PS2 leiki! Það finnst mér ekki leiðinlegt.
|
|
 |
 |
T-shirt humor
Mánudagur, 12. maí 2003
Ég gleymdi að setja inn svona calendar eins og Tóti er með á badabing.is. Það hjálpar mér kannski að muna hvað tímanum líður almennt.
Annars er allt gott að frétta. Ég misreiknaði mig þó í prófmálum og er að fara í próf á morgunn, ekki hinn. Þarna hefði dagatal komið sér vel! Oh well... shit happens and life's a bitch - and then you die. I'm a looser baby so why don't you kill me... eða eitthvað. Dettur mér í hug gamall vörulisti sem mér áskotnaðist í US of A í gamladaga sem hafði upp á flotta T-boli að bjóða með ýmsum fyndnum slagorðum. Eitt af þeim, sem er mér ofarlega i minni, er:
Roses are red
Violets are blue
I'm schizophrenic
-and so am I
Best að ég athugi hvað ég myndi fá í einkunn ef ég ætti að "taka próf" í T-shirt slagorðum. Ég fæ eitt stig fyrir hvert slógan sem ég man, þar með talið þetta hér að ofan. Get svo blúsað yfir því af hverju heilinn á mér tekur T-shirt slogans framyfir gagnlegar upplýsingar seinna.
Never try to teach a pig to sing
You´ll be wasting your time
and annoying the pig
Þessi er soldið í Lebowsky andanum:
I can't decide weither to kill myself or go bowling
My lawyer can beat up yoru lawyer
If I follow you home, will you keep me?
Feel safe tonight, sleep with a cop!
Your not drunk as long as you can hold on to the floor.
Just when you thought you won the rat race
along came faster rats.
Þessi er klassík:
If I was any lazier
I'd slip into a coma.
og þessi líka:
This is the earliest I've ever been late
ÚHÚ!! Ég fæ 10 í "hvað man anna marga gamla T-shirt slógans" prófinu!!!
Það sem er scary er að ég man fleiri
...eins og þessa klassík sem kom mér á sporið áðan:
shit happens
eða
yuck fou
eða
I don't forget a face, but in your case I'm willing to make an exception
eða
You're perverted twisted and sick... -I like that in a person
Christ... best að fara að læra undir próf...
ps. Hvað er þitt uppáhalds T-shirt slogan?
|
|
 |
 |
Litla Bláa Kannan
Mánudagur, 12. maí 2003
Ég mun aldrei skilja af hverju allir voru svona vondir við litlu bláu könnuna og vildu ekki hjálpa henni niður af hillunni.
Hvaða boðskapur er í þessari sögu??? Hvað græða börnin á að heyra af litlu bláu könnunni?
Er það:
"Ef þú ert þunglyndur, ekki hóta sjálfsmorði þegar þú biður um hálp því engin mun veita þér hjálp og ef þú hendir þér fram af svölunum þá brotnar þú bara í þúsund mola og endar farlama"
eða
"Sættu þig við þitt hlutskipti í lífinu. Ef þú gerir það ekki muntu verða farlama"
eða
"Þó þú sért dapur er alltaf hægt að sökkva neðar. Þú gætir endað farlama"
I don't get it...
|
|
 |
 |
Réttindi í nýju ljósi
Þriðjudagur, 13. maí 2003
Ég eyddi einhverjum klukkutímum í það á kosninganótt að setja upp heimasíðu fyrir mömmu. Hún eyddi síðunni í kvöld. Óvart. Tók hana innan við 30 sek. I have seen the power of the dark side.
Þetta er líklega lesson nr 1 í notendafræðum og réttindum þeirra og ég féll.
Auðvitað átti ég ekki að setja aðganginn hennar upp með þessum freistandi "Delete weblog" takka. Hvernig í fjandanum átti hún að reikna með því að hún gæti eytt öllu út bara með því að ýta á þenna takka? Hún veit að notendur hafa ekki slíkt vald, auk þess sem hún ætlaði bara að eyða út einni færslu!
Þessi mistök skrifast á mig. Not that strong, the power is, in that one...
Ég búin að setja síðuna upp aftur og fjarlægja takkann. Permanently.
Þetta atvik hefur opnað augu mín og dýpkað trú mína og skilning á að ég vinn með snillingum, enda hafa þeir ósjaldan predikað yfir mér að það bara má ekki láta notendur fá of mikil réttindi. Þá fer allt í fokk. Notendur eru og verða réttindalausir. Hjá þessum mönnum er ég notandi. Þeir meta færni mína og útdeila mér réttindum accordingly.
Í gær sendi ég póst á kerfisstjórann minn og bað um að fá aðgan að skrám sem mig langaði að fikta aðeins í. Ég tók fram að ég væri búin að taka backup sem ég gæti sett inn ef fiktið yrði ekki successful. Hann gaf grænt ljós og ég fékk aðgang að skránum. Ég semsagt þokast hægt og bítandi í áttina að -rwxrwxrwx og er talin traustsins verð.
Oh mighty root, lord of CHMOD 777, your power is emence. If only some day, by some divine intervention, you and I could become one!
Ég er fallin í næringarfræði. Það getur ekkert hjálpað mér núna nema full réttindi inn á kerfi skólans þar sem ég get skoðað prófið. Er ekki viss um að það myndi gagnast mér heldur... I'm beyond saving eins og heimasíðan sem mamma eyddi út í kvöld.. - eru það ekki annars sígarettur og kók sem gera kraftaverk fyrir neglurnar og hárið eða var það bjór?
|
|
 |
 |
Tómt tjón
Miðvikudagur, 14. maí 2003
Ég brilleraði í vinnunni í dag. Gerði hverja innsláttarvilluna á fætur annarri. Hver hefur heyrt um nafnaþjón sem heitir ns1@anna.is?
Ég þurfti að setja inn orginal á einum stað og ég bara gat það ekki. Skrifaði alltaf original, alveg sama hvað ég reyndi. Furðulegt. Var að fokka í gestabókinni minni, preppa broskallana mína, sagan endalausa því ég virðist ekki geta komist að niðurstöðu um það hvernig þeir eiga að vera á litinn. Bögger. Ég var að bræða það með mér að setja þá í kommentkerfið hjá mér. Það er ekki alveg bráðnað ennþá. Best ég sjóði mér pasta. Missti af matnum áðan með fjölskyldunni, var fjarverandi í cyberspace að laga gestabókina mína sem ég hafði gjörsamlega fokkað upp. Ég náði að "af fokka" hana á mettíma. Snillingur ég.
Var að "horfa" á Nigellu áðan með öðru eyranu og finnst frábært hvað hún er dugleg að hrósa því sem hún er að gera. Fólk ætti að taka hana til fyrirmyndar og reyna að vera soldið ánægt með sig once in a blue moon. Jah.. fyrir utan þá sem eru *of* ánægðir með sig alltaf eins og... Bono. Maður legst samt í þunglyndi af því að horfa á hana elda. Maður verður svo svangur og vorkennir sér svo hryllilega fyrir að hafa ekki efni á að fara út að borða og fá svona mat, eða að vera svo latur að maður nennir ekki að elda svona mat. Toppurinn á aumingjaskapnum að leggjast í sjálfsvorkun yfir eigin leti. Ég er ennþá soldið blue af tilhugsuninni um brennda kjötið sem hún grillaði.. oh.. akkúrat eins og ég hef lýst yfir að ég vilji hafa kjötið mitt. Brennt að utan og hrátt að innan. Þvílík örlög. Ég sat og slefaði við sjónvarpið og gaf frá mér lágt grrrrrr hljóð á meðan ég horfið á hana og vini hennar gleypa þetta í sig. Ég kýs þann flokk í næstu kosningum sem hefur það hátt á stefnuskránni að banna svona sjónvarpsþætti. Annars nenni ég ekki að blúsa yfir þessu. Letin sigrar sjálfsvorkunina in a weird way.
Búin að lesa mannkynssöguna yfir og held að ég sé í góðum málum fyrir utan hvimleiðan minnisleka sem hefur gert vart við sig í heilabúinu á mér undanfarið. Hefur þó ekki náð að grassera eins mikið og þegar ég var stödd í banka hér um árið og gleymdi hvað ég hét. Varð að biðja bankadömuna um ökuskírteinið mitt til baka svo ég gæti tékka á nafninu. Djöfull langaði hana að hringja á lögregluna. Það vildi til að myndin í skírteininu var augljóslega af mér. Það, og þegar ég var búin að segja henni að ég væri á sterkum lyfjum skv. læknisráði og með aðsetur á Kleppi gerði gæfumuninn. Flutti svo öll mín bankaviðskipti í annan banka daginn eftir...
Ég sendi Tóta í bíó áðan því ég er að lesa fyrir próf og það minnkar úrval afþreyingar sem Tóti getur valið sér inná heimilinu því ég vil helst hafa slökkt á sjónvarpinu og öllum ljósum nema vasaljósinu sem ég nota til að lesa við. Hann var að hugsa um að fara inn í rúm að lesa bók en ég vissi að ef hann gerði það þá myndi ég ekki hafa eirð í mér að læra því mér finnst svo gaman að tala við hann. Sérstaklega þegar hann er að lesa. Með þessu hef ég búið til súperpower hjá honum því hann getur talað við mig og lesið á sama tíma. Auðvitað passa stundum svörin hans ekki við það sem ég segi. Hann hefur komið sér upp ca fjórum default svörum sem hann notar randomly. Og auðvitað geri ég mér grein fyrir að hann er ekkert að hlusta á mig. Það er bara svo skrítið að ég fyllist athyglissýki þegar hann er að lesa og ef hann ignorar mig fækka ég fötum.
Hann fór líka í bíó í gær, á svo leiðinlega mynd að hann sá ástæðu til að senda mér sms í miðri mynd sem hljóðaði einfaldlega svona: "Boring". Það væri nú soldið smart að skrifa dóm um mynd sem samanstæði af þessu eina orði. Segir þetta ekki líka allt sem segja þarf? En nú leiðist mér og ég sé eftir að hafa sent hann í bíó. On the plus side þá lofaði hann mér að kaupa handa mér popp. Hann ætlaði að gera það í gær, kaupa popp í bíó fyrir mig, en gleymdi því. Ég svaf í sófanum...
Án gríns. Ég svaf í sófanum. Ekki af því ég ætlaði að gera það... bara lognaðist út af yfir coupling á stöð tvö og vaknaði lurkum laminn í morgunn, ennþá í sófanum. Svaf sitjandi með stóran púða við bakið á mér og í fötunum, öllu nema sokkum.. Tóti hélt að orsök útlegðar minnar hefði verið að hann gleymdi að kaupa popp en ég leiðrétti þann misskilning og við skildum sátt í morgun á leið í vinnuna. Hann heldur stundum að ég sé algjör dork.
Það verður ljúft að sofna undir sæng í rúminu sínu á eftir og vonandi losna við þreytuna sem hefur þjakað mig í allan dag eftir þessa hræðilegu sófanótt. Ekki það, hef oft sofið í sófanum áður með góðum árangri en aldrei sitjandi.
|
|
 |
 |
Tooth fairy
Fimmtudagur, 15. maí 2003
Tóti er komin heim úr bíó.
Tóti: Æ, maður ætti nú að gera eitthvað uppbyggilegra á kvöldin en að fara á svona rusl myndir.
Anna: Já var þetta svona leiðinleg mynd?
Tóti: Darkness falls: the toothfairy on a murder spree
Anna: [dáin úr hlátri]
Tóti: jamm maður þarf að halda sig í birtunni...
|
|
 |
 |
MATRIX RELOADED
Fimmtudagur, 15. maí 2003

Til að skemma ekki söguþráðinn er mér óhætt að segja:
Of hæg, of löng, of fyrirsjáanleg, of mikið star wars, of mikið mtv, of fáir áhugaverðir karakterar, of feitur rass á Morpheusi, ekki nógu góð tónlist, ekki nógu þétt atburðarás, ekki nógu fyndin, ekki nógu mörg *flott* bardagaatriði, of mikið sló mó, of lítið action, ekki nógu góð choreography á slagsmálunum og... leðurfrakkinn var betri.
Ég fór á myndina með low expectations en ekki nógu low.
Geyspaði tvisvar, kíkti á klukkuna tvisvar og eyddi 7 mín í að plokka tyggjó af rassinum á mér.
On the plus side.
Konurnar í myndinni rokka og það var ekkert hlé.
Það er mín einlæga von að þessi lesning verði til þess að þú njótir myndarinnar betur en ég.

|
|
 |
 |
Yndislegt líf
Föstudagur, 16. maí 2003
(15:54:14) H@11dór: Trallalalala og jibbídídú !
(15:54:18) H@11dór: Lífið er yndislegt
(15:54:23) H@11dór: ....allaveganna í korter
(15:54:54) gaim: jebb sammála. Mitt korter var áðan...
(15:55:15) H@11dór: hehehe
(15:55:17) H@11dór: gott
(15:55:44) H@11dór: samt væri gaman ef þetta kemur fyrir aftur hjá okkur að synca korterin okkar saman, þá gætum við setið saman og brosað einsog slefandi fávitar
|
|
 |
 |
div class="Simon"
Laugardagur, 17. maí 2003
Af hverju save-a ég ekki hluti þegar þeir virka? Jafnvel þó að þeir virki partially? Hrikalegur ókostur. Vona að þetta verði leiðrétt í anna 6.42
Ég er með "Let's Get It On" í headphones í hægra eyra og The Matrix í hinu í steríó á stöð 2. Ég get huggað mig við það að ég er multitasking. Hrikalega er þetta góð mynd. Þakka guði fyrir að hafa verið orðin fullorðin þegar ég sá hana... annars væri ég latexklædd mótorhjólagella og ef ég á að koma með kalt mat þá held ég að endingartíminn yrði tops sex vikur. Ég tek of marga sénsa til að endast á mótorhjóli.
Af hverju á div að virka inní div án þess að brjóta línuna en virkar ekki hjá mér? Why? Why? WHY?!
Búin að berja hausnum svo mikið við lyklaborðið að ég er komin með space á ennið. Ekki það.. nóg pláss þar fyrir. Lyklaborðið er hinsvegar orðið waste of space. Ég er of þreytt til að pæla í þessu. Langar að sparka í Rasmusen píuna. Það sem hún getur jarmað manneskjan. Blew dog í þættinum í kvöld og átti skilið að detta út. Læddist inn á fox og sá hverjir eru tveir eftir. Kom ekki á óvart.
Annars átti ég áhugaverðar samræður við vinkonu mína í dag á msn. Hún byrjaði á að segja að hún þoldi ekki Simon en myndi fuck him anyway! Ég verð því miður að vera sammála. Þó að ég hafi ekki trú á að hann sé eftirminnilegur in the sack. Hvað veldur því að við viljum sofa hjá honum in the first place??? Ég skil það ekki. -Enda skil ég ekki konur eins og sumir. Mér heyrist þetta vera almenna viðhorfið hjá konum gagnvart Simon. Ég tek fram að Jude Law er.. nei ég myndi ekki einu sinni leggjast með honum. Hann er meira eins og fallegt jólaskraut, til að dáðst að. Auk þess.. ef hann myndi ekki standa sig þá væru það bara of mikil vonbrigði.
Ég á náttúrlega eftir að run this by my therapist en er með tillögu að skýringu. Getur verið að þetta sé bara í eðli konunnar að heillast að svona.. jah.. ruddalegum karlmanni? Verð að skjóta inní aðeins. Einhverra hluta vegna turnar það mér on að sjá karlmann í ermalausum bol. Ekki hlýrabol, ekki stuttermabol.. ermalausum. Af hverju í andskotanum spyr ég nú bara? Og það virðist engu máli skipta hvernig þeir líta út. Jah.. innan skynsamlegra marka náttúrlega. Efast um að hringarinn í Notra Dame gæti kveikt í mér með bera handleggi eina að vopni. En erum við konur í alvöru svona basic? Og ef við erum svona basic, af hverju skilja okkur svona fáir? Er þetta spurningin um að vera svo bleeding obvious að allir halda að við séum trick question og fara að "leysa gátuna"?
Simon er dónalegur ruddi sem gerir lítið úr fólki sem á það reyndar skilið í flestum tilfellum og ef hann og Paula eru ekki having it off on the side þá veit ég ekki hvað. Ég held að það sé þetta "hard to get" attitude og ruddaskapurinn sem höfði til kvenna í fari hans. Æi ég veit það ekki. Ég held líka að þetta sé spurning um muninn á fantasíu og raunveruleika. Ef Simon kæmi upp að mér á Kaffibarnum og segði: ..nei annars STOP!
Smá innskot. Ég er að fatta að það myndi skipta höfuðmáli hvað hann segir. Ef hann byrjar á "darlin'" eða "sugar" .. no sale. HINSVEGAR.. og þetta er magnað. Ef hann myndi segja: "I'd take off the glasses if I was expecting action tonight" ÞAÐ myndi vekja áhuga minn. AF HVERJU????? Kannski af því að þá væri hann í karakter. Ég veit það ekki. Ég hef ice-að menn fyrir minna en Simon kæmist upp með að móðga mig og walk away. -Með mig upp á arminn.
Svo er það his blunt stare. Dásamlegt alveg. Segir meira en þúsund orð. Líka bara hvernig hann ber sig almennt. Sá hann hjá Jay Leno þegar Tóti var channel hopping eitt kvöldið og skikkaði hann (Tóta) at gunpoint að stilla á Jay Leno. Einusinni er allt fyrst. Þarna sat Simon í svona "hér er ég og ég rúla" stellingu og boys.. það bara virkar. Ég verð fúl út í Ryan Seacrest þegar hann er að dissa Simon. Helvítis viðrini sem hann er. Þ.e.a.s. Ryan.
Ég er búin að hugsa málið og held að ég myndi ekkert vilja sofa hjá Simon. Hann hefur ekkert sem maðurinn minn hefur ekki. -In a good way.
|
|
 |
 |
Ahhhh....
Sunnudagur, 18. maí 2003
Smælingjarnir komnir í kommentkerfið og ég sit og velti því fyrir mér hvort ég eigi eitthvað líf.
Ekki það. Ég skemmti mér konunglega hérna ein við tölvuna en er það eitthvað líf? -nema maður fái borgað fyrir það...
Ég var að surfa áðan og sá blogg hjá totil.com þar sem hann segir að ég sé að gera "flottar stílhreinar síður" og svo hefur hann áhyggjur af því að El Gringo ofmetnis og springi eins og 300 kílóa blaðra af kúk! Tóti brjálast þegar hann kemur heim og sér að það þarf að þrífa alla íbúðina.... hehehe
Annars er ég ólíklegust allra til að ofmetnast, komplexahrúga sem ég er. (Annars held ég að allir séu komplexaðir og sumir svo illa haldnir að þeir geta ekki viðurkennt það.) Auk þess er ég í meyjarmerkinu og þjáist af fullkomnunaráráttu. Pirrar mig samt ekkert að sitja við borð með hrúgur af drasli á. Það verður hinsvegar allt að vera í röð og reglu í skúffunum mínum. Þetta er náttúrlega bilun! En ekki metin til örorku. Búin að tékka á því.
Ég er samt uber glöð að fá svona hrós frá alvöru hönnuði því ég er meira svona... jah.. áhuga hönnuður? Er komin það langt í þerapíu að ég meira að segja trúi honum... Held ég bæti honum í blogg listann hjá mér, og líka henni Þórunni Hrefnu sem er góð. Ég surfaði náttúrlega þá sem totil.com linkar á, eins og ég geri svo oft þegar ég er á netinu, og las færslu hjá Ágústi Flygenring um James litla Bulger og keðjubréfið sem við fengum um daginn.
Ég er hjartanlega sammála Ágústi þó ég hafi ekki sýnt sama frumkvæði og hann og sent group reply. Mótmælti með að henda póstinum. Glæpurinn er hræðilegur sem þessir drengir frömdu og ef ég hefði verið spurð, þegar málið var í hámæli, hvað ætti að gera við þá hefði ég stungið upp á lethal injection. Síðan hafa liðið nokkur ár og ég hef róast. Nú eru þessir drengir um tvítugt. Ég reikna með því að þeir hafi verið skoðaðir á þessum rúmu tíu árum í bak og fyrir af sálfræðingum og geðlæknum og hef það mikla trú á þeim að ég tel að þeir hljóti að vita hvað þeir eru að gera fyrst þeir leggja blessun sína yfir það að sleppa þeim út í þjóðfélagið aftur.
Mér finnst þeir auk þess ekki vera að "sleppa" neitt. Þeir þurfa báðir að eiga við eigin samvisku og hræðsluna um að einhver komist að leyndarmáli þeirra allt sitt líf. Ég myndi ekki vilja vera í þeirra sporum.
|
|
 |
 |
Annan á bak við anna.is
Sunnudagur, 18. maí 2003
Rakst á þessa síðu hérna áðan og áttaði mig á því að ef þetta er rétt, atriði nr 4, þá er kannski fólk þarna úti sem finnst miður að vita ekki hver Annan á bak við anna.is er.
En skiptir máli hver ég er?
Mér fannst Dórið komast nálægt því að lýsa innihaldi bloggsins míns þegar ég msn-aðist við hann í morgun:
H@11d0r says:
"læsilegt og grípandi efni úr engu"
Ég er ekki heldur viss um að ég flokkist sem columnist en það má vel vera. Ég skrifa hinsvegar ekki um þjóðmál.. ég skrifa meira um hvað ég fer oft í bað og hversu blönk ég er. Flokkast það sem columnist??
Mér finnst það frekar fráhrindandi hugmynd að koma með bio á síðuna mína þar sem þetta er meira vettvangur fyrir mig að bulla og röfla en ekki staður þar sem ég.. jah.. æi ég veit það ekki. Lesendur mínir sem hafa lágmarks heilastarfsemi geta bara sett saman eigin prófíl. Er frekt af mér að fara fram á það?
Ef ég tek ákvörðun um að skrifa svona bio enda ég líklega á því að skrifa fjögur mismunandi bio eins og thorsteinngudmundsson.is gerir svo brilliantly á sinni síðu og fólk verður að sjálfsögðu engu nær... því þegar öllu er á botnin hvolft þá skiptir það ekki höfuðmáli hver ég er.. það sem skiptir máli er hver ég kýs að vera á anna.is.
Læt svo flakka restina af samræðum okkar Dóra frá klukkan sjö í morgun fyrir þá sem vantar profiler material.
H@11d0r says: farðu að sofa !
gaim says: bráðum. ég er að skrifa um ekkert, ætla að klára það, svo fer ég í bað og svo að sofa
H@11d0r says: bað ?
gaim says: já bað
H@11d0r says: sjís, skrítnar tímasetningar
gaim says: á maður ekki að fara í bað á morgnanna?
H@11d0r says: við erum að fara að upplifa Pure Morning einsog Placebo söng um
gaim says: HEF ÉG LIFAÐ Í BLEKKINGU ÖLL ÞESSI ÁR?
H@11d0r says: nei
H@11d0r says: kannski þú ættir að fra í bað
gaim says: ef þú fyndir lyktina af mér þá myndi þú ekki spyrja af hverju ég ætla að fara í bað.
H@11d0r says: man ekki eftir mynd með titilinn The stink of a woman
gaim says: ég er búin að nærast á kóki og sígarettum síðustu 24 tímana og nú er þetta farið að úsa út um svitaholurnar
H@11d0r says: takk fyrir mental picture
gaim says: það var ekkert
H@11d0r says: mentallly ruining picture more like
gaim says: viltu símann á kleppi? ég er með hann í speed dial hjá mér
H@11d0r says: speed dial, nr 3 hérna megin
gaim says: ertu að fara að lúlla?
H@11d0r says: amm
gaim says: ok
H@11d0r says: sofa í 5 tíma no more og svo sund
gaim says: syntu smá fyrir mig ok?
H@11d0r says: ollrætí
H@11d0r says: ætlar þú ekki að synda ?
H@11d0r says: ekki það sem þú meintir með að skrapa botninn ?
H@11d0r says: múhoho
gaim says: wahahahaha
gaim says: nei ég er svo spéhrædd
H@11d0r says: annað segja grannarnir í blokkinni á móti
H@11d0r says: nætí næt snúggums
gaim says: nætí næt
|
|
 |
 |
Á Esjunni
Mánudagur, 19. maí 2003
Eftirfarandi samræður áttu sér stað fyrir utan ónefndan "garð" í reykjavík klukkan 16:02 í dag:
Zippy: Það verður sólmyrkvi aðfaranótt 31. maí.
Anna: Nú?
Zippy: Já.
Anna: Ætti maður að fylgjast með honum?
Zippy: Þú verður að fara upp á Esju til þess. Þetta sést ekki nema þaðan.
Anna: Og ætlar þú upp á Esju til að sjá þetta?
Zippy: Ég er nú bara alvarlega að hugsa um það, svona gerist í mesta lagi tvisvar á mannsævinni.
smá þögn
Anna: Annars finnast mér svona myrkvar og þannig náttúruundur soldið eins og bad sex.. þú fyllist eftirvæntingar og svo þegar það kemur að stóru stundinni þá er allt búið á nokkrum mínútum.
Zippy: Já, en það er nauðsynlegt að upplifa bad sex öðru hvoru, þá kann maður betur að meta það sem maður hefur.
Anna: já.
smá þögn
Anna: Já. Svo þú ert á leiðinni á Esjunna að hafa bad sex um mánaðarmótin?
|
|
 |
 |
trallalla...
Miðvikudagur, 21. maí 2003
Ég náði öllum prófum. Skreið í einu með 5, slapp fyrir horn í öðru með 6 og fékk 9 og 10 í hinum. Ég er sátt. Nú fæ ég líka pening frá VR. Var hætt að reikna með því miðað við gengi mitt í prófunum svo þetta eru óvænt endalok.
Búin að búa til lúkkið á badabing.is og þá er bara eftir að html-a það. Það er svona eyðimerkur, nostalgíu lúkk. Akkúrat í stíl við Tóta.
Skrifborðið mitt er orðin lífrænn öskuhaugur og ég held að það fari að líða að því að ég moki ofanaf því og út í garð, með áherslu á "það fer að líða að"...
Ég hef aldrei getað vanið mig á að lesa þegar ég er inná baði. Af hverju ætli það sé? OG af hverju ætli það séu svona margir sem gera það? Eða er fólk að ljúga? Það væri sjálfsagt sniðugt og uppbyggilegt að hafa ljóðabók við hliðina á klósettinu og lesa eitt ljóð fyrir hverja klósettferð. Þá stæði maður upp, betri manneskja. En common. Þetta tekur mig ekki svona langan tíma. Þ.e. að sitja á klósettinu. Augljóslega get ég ekki lesið í baði. Eh.. það er kannski ekki augljóst... ég gleymi mér og fer með hendurnar í kaf.. þá er bókin öll blaut.. það er ekki gaman og gerir Tóta ekki hamingjusaman. -Það rímar.
Af hverju eru Laxnes bækurnar ekki gefnar út í vatnsheldri útgáfu? Af hverju er ekki hægt að kaupa sund-sokkabuxur? Af hverju klæjar mig svona í tánna?
|
|
 |
 |
Júróvision nörd
Miðvikudagur, 21. maí 2003
Ingó spyr mig í forundran hvort Tóti sé virkilega svona mikið júróvision nörd. Það er skemmst frá því að segja að þegar ég horfði á undankeppnina í RUV flúði Tóti upp í rúm til að þurfa ekki að vera í sama herbergi.
Ég hef persónulega aldrei haft mjög gaman af júróvisjón en það hefur breyst með aldrinum. Í tilbreytingasnauðu og loðmullulegu lífi mínu skapar júróvision ákveðið tækifæri til að fá pössun og skella sér í partý að hitta vini og kunningja. Svoleiðis tækifæri ætti maður aldrei að láta frá sér ónotað.
Ég skil raunar ekki af hverju Tóti er ekki útmálaður júróvisjón fanatic þar sem keppnin sjálf er endalaus uppspretta af fáránlegum hópum fólks sem (allavega í gamla daga) syngur á mis áheyrilegum tungumálum. Það er hending að það finnist grípandi lag í keppninni en kannski er það aldurinn aftur, ég er allavega farin að fíla a.m.k. eitt lag úr þessari keppni á ári. Búningarnir sem þetta fólk lætur klæða sig í eru oftar en ekki efni í sér stúdíur og það er alltaf jafn spennandi að fylgjast með kosningunni. Icland, one point, Islande, un bout.
Í ár held ég að sjálfsögðu með austurríska laginu sem mér finnst óborganlega fyndið.
|
|
 |
 |
að búa til linka í html
Miðvikudagur, 21. maí 2003
Hér er micro tutorial fyrir Ingó.
Þú ert staddur á síðu sem þig dauðlangar til að linka á. Það sem þú gerir er eftirfarandi:
Þú byrjar á því að kópera URL-ið á staðinn sem þú vilt linka á, t.d. http://www.anna.is
Í færsluna sem þú vilt birta linkinn í myndir þú þá skrifa eftirfarandi texta:
<a href="http://www.anna.is">anna.is</a><br>
Það sem er bláletrað hér að ofan er sá hluti sem notandinn mun sjá.
Hér er þetta dæmi í praxís:
anna.is
Ef þú vilt linka annað, sem er ólíklegt, skiptir þú slóðinni út fyrir þá sem þú vilt linka á og breytir anna.is í eitthvað meira viðeigandi.
Ef þú vilt setja upp linka sem birtast á "sidebar" eins og tenglasafn
þá gildir sama formúla eins og að ofan um linkinn nema að fyrir aftan </a> hlutann bætir þú við <br> sem hefur sömu virkni og return/enter
<a href="http://www.anna.is">anna.is</a><br>
<a href="http://www.anna.is">anna.is</a><br>
<a href="http://www.anna.is">anna.is</a><br>
<a href="http://www.anna.is">anna.is</a><br>
<a href="http://www.anna.is">anna.is</a><br>
Dæmið að ofan lítur svona út:
anna.is
anna.is
anna.is
anna.is
anna.is
|
|
 |
 |
Af eurovision
Sunnudagur, 25. maí 2003
Gísli Marteinn vann eurovision. Hann rokkar. "og koma svo!"
Annars fannst okkur "má þetta?" best þegar stigin voru gefin frá.. man ekki frá hvaða landi en konan var í blúndukjól sem var ekkert að fela neitt mikið. Við vorum í kasti. Hann fær líka plús fyrir að segja "helvítis" þó hann hafi breytt því í "ansans" stuttu seinna. Hvað er að því að segja helvítis í sjónvarpinu?
Næst legg ég til að Gísli Marteinn og Logi Bergmann lýsi þessu báðir í beinni. Ég gæti trúað að það myndi slá í gegn.
Ég sá ekkert athugavert við Birgittu, fannst hún standa sig mjög vel en persónulega féll ég fyrir "I'm not afraid to move on" með Jostein Hasselgård, enda er ég ballöðukona.. hlusta m.a. á.. hvað heitir hann nú aftur.. djö.. ég man það ekki...
Bretland var magnað. Manni fannst þau syngja í rangri tóntegund allan tíman, nema þegar undirspilið dó í smá stund.. ótrúlegt. Það var allavega eitthvað MIKIÐ að í þeim flutningi. Fengu þau stig?
Bláa konan sem fetti sig og bretti... what the fuck? Manni leið illa...
Verð að vera sammála tatú stelpunum.. sú þýska var eins og lukkutröll úr rammagerðinni. Ef ég liti svona út myndi ég forðast að vera í sviðsljósinu í lengstu lög. Ég myndi líka ekki segja að ég væri 39 ára... ef maður lítur svona út á maður að segjast vera 93 ára og vona að fólki finnist maður líta vel út miðað við aldur.
Tóti var búin að ákveða að Tatú ætti að vinna. Á hverju hann byggði þessa ákvörðun veit ég ekki, ekki hafði hann heyrt lagið, held að hann hafi verið að vonast til að þær sýndu einhverja lessu tilburði á sviðinu. Hann er forfallinn lessu action aðdáandi. Þær voru óspennandi og fluttu lagið illa. Fannst óborganlegt að salurinn skyldi púa á þær þegar rússland fékk 10-12 stig. Eftir úrslitin sagði Tóti: "Evrópa hatar samkynhneigða"
Hmm... o ætli það.
Það var áhugavert hvað mörg lög voru skelfilega illa flutt og hvað það er endalaust vinsælt að vera með bakraddasöngkonur sem fækka fötum. Já.. hvað er eiginlega í gangi með konurnar í þessari keppni?? Í sumum tilfellum hefðu þær allt eins getað verið naktar. Ég hef bara eitt við þetta að athuga. Af hverju voru þá allir karlmennirnir í fötum? Ósanngjarnt í meira lagi.
Fórum úr breiðholtinu á eggertsgötu í partý á 2 fm. Tóti var í stöðugu símasambandi við Siggu sem var í partýinu hans Gumms. Það sem við erum á hausnum höfðum við bara efni á að taka leigara upp í breiðholt. Billi keypti okkur niður á eggertsgötu.. annars hefðum við þurft að labba heim, húkka far eða gista hjá vinafólki okkar sem hélt eurovisionpartíið. Það var þessvegna aldrei í spilunum að taka leigubíl út á Arnarnes. Klúður því ég drakk ekki dropa í eurovisionpartíinu og hefði því alveg geta verið á bíl. Það er eitthvað í mér sem hindrar að ég geti drukkið þar sem ungabörn eru, mér finnst það ekki fara saman.
Fékk mér í glas á eggertsgötunni en hefði getað keyrt þaðan líka...
Verð að viðurkenna að alla helgina hef ég verið upptekin af nýju badabing.is síðunni sem ég er að html-a og ekki skemmdi fyrir þegar tengdamamma bauð krökkunum í sveitina yfir helgina.
Ég sendi Tóta út á lífið á föstudagskvöldið og sat við tölvuna til klukkan fimm. Þá sofnaði ég í stólnum og svaf til 11. Settist ég upp og hélt áfram.
Ég þoli ekki Netscape.
Alveg rétt. Barry Manilow. Can't smile without you... Þegar ég heyri það lag þá fer um mig einhver skrítin tilfinning... minnir mig á þann tíma sem ég trúði á riddara á hvítum hestum og að ástin sigri allt. Ég var víst bara barn.
|
|
 |
 |
Uppgjör helgarinnar
Sunnudagur, 25. maí 2003
Ég er búin með badabing.is. Á bara eftir að importa gamla vefinn í nýju síðuna og setja á vefinn. Ég er búin að ofspila norska lagið svo mikið í kvöld að líklega væri fjölskyldan mín búin að ráðast á mig eða græjurnar og drepa, ef ég væri ekki með headphones. Það borgar sig. Ég læri stundum af reynslunni.
Best ég rifji upp atburði helgarinnar. Já. Var að fatta að ég er ekki búin að gera mikið sem gaman er að blaðra um hér. Nema fólk hafi brennandi áhuga á því þegar ég reyti hár mitt og skegg (er ekkert búin að plokka mig nýlega) í viðureign minni við netscape 4-6, mozilla og helvítis IE5 frá andskotanum!!! Treggáfaður browser í meira lagi. Nei, best ég ræði nú aðeins um toploader auglýsinguna, eins og ég kalla hana.
Ég var eitthvað að dissa þessari auglýsingu um daginn. Eins og komið hefur fram þá horfi ég lítið á sjónvarp, hlusta aðallega en ef eitthvað grípur athygli mína þá sný ég hausnum á áttina að sjónvarpinu og tek púlsinn. Það var einmitt það sem kom fyrir mig þegar ég heyrði toploader auglýsinguna fyrst. Því miður er ég orðin svo háöldruð að ég er farin að tapa sjón og tölvan er staðsett langt frá sjónvarpinu. Ég tók þessvegna ekki eftir því að viðkomandi auglýsing er íslensk!!
Ég sat í góðu yfirlæti í júróvisjón partýinu þegar þessi auglýsing kemur á skjáinn og fer að dissa þetta alltsaman þegar gestgjafinn bendir mér á þetta sem í raun er augljóst fyrir alla sjáandi. Þetta er íslensk auglýsing. Gjörsamlega magnað en breytir því ekki að hún er ömurð.
Sem minnir mig á lengstu auglýsingu sem gerð hefur verið. Ég spurði gestgjafana mína í heilar fjórar mín inní auglýsinguna hvort þetta væri í alvöru auglýsing. Það segir sig eiginlega sjálft að 6 mín auglýsing verður aldrei neitt annað en leiðinleg, nema það sé verið að auglýsa eitthvað skárra en bíla. Hver hefur gaman af því að hlusta á röflandi kellingu innan um bíla í 6 fokking mín? Þá bið ég nú frekar um ástarævintýrið í neskaffi auglýsingaseríunni. hahaha ég er hopeless romantic.
Ég komst að því the hard way að það var ekkert til að borða í kotinu á laugardaginn. Sökum leti nennti ég ekki að klæða mig til útiveru og fara út í sjoppu að kaupa mér prins póló. Borðaði þrjú ritzkex í staðin. Hefði borðað fleiri ef þau hefðu verið til. Vildi svo dásamlega til að okkur var boðið í mat í eurovisionpartýinu. Ég sýndi viðstöddum að ég er vissulega efni í nóbelsverðlaunahafa í verkfræði þegar ég eyddi 3 mín við matarborðið í að reyna að salta bökuðu kartöfluna mína, sem tókst ekki fyrr en gestgjafinn benti mér á að þetta væri venjulegur saltstaukur sem maður bara snýr á hvolf og þá kemur saltið. Ég var búin að reyna allt annað en að snúa kvikindinu á hvolf. Hélt að þetta væri kvörn..
Sem betur fer er þetta gott fólk sem myndi aldrei segja nokkrum manni frá þessu.
|
|
 |
 |
Spakmæli
Þriðjudagur, 27. maí 2003
Neyðin kennir nöktum manni á þvottavél.
-Harpa
|
|
 |
 |
Kvart og kvein og kaffibollar
Föstudagur, 30. maí 2003
Á föstudögum kaupi ég mér stundum Twix súkkulaði og borða seinnipartinn í vinnunni. Mér finnst best að bíta vænan bita af og leyfi honum að bráðna uppí mér. Það vill hinsvegar þannig til að í hvert einasta skipti sem ég geri þetta þá hringir síminn. Ég þarf að tyggja súkkulaðið með hraði og svara símanum. Gjörsamlega óþolandi og gott dæmi um að það er ekkert réttlæti til á jörðinni.
Ég minntist á það um daginn, minnir mig, að þegar ég var lítil trúði ég að prinsinn á hvíta hestinum væri til og kæmi á þeysireið einn daginn að ná í mig í kastala Engihjalla nr 3, turn 6-A.
Átti aldrei séns.. mamma lét alltaf snoða mig, hefði þurft hár til að hann gæti klifrað upp á sjöttu hæð að bjarga mér. Grét mörgum fögrum tárum. Ég hafði alltaf lakið til taks just in case... prinsar fíla kannski ekki lök..
Ég trúði lika á guð og engla og galdramenn og spákonur og miðla og dverga og álfa og stokk og steina. Hef aldrei farið til spákonu. Ekki miðils heldur.
Sem barn var ég vitni að ótal seremóníum yfir skítugum kaffibollum og sá óteljandi ofna í eldhúsum sem voru oftar en ekki skreyttir mislöngum kaffitaumum. "Það er rosalega mikið af fólki í bollanum" var vinsæll frasi. Þetta er frá þeim tíma sem eldabuskur í leikskólum elduðu matinn með sígarettuna í munnvikinu og spáðu í bolla í kaffitímum.
"Noh! Þa'bar'ekkert annað! Þú ferð í hollívúdd um helgina og kemst á sjéns!" Enn einn ánægður starfskraftur leikskóla kópavogs á leið inn á deild að vinna með vonarglætu í hjarta innan um hor, slef, kúk og klessuliti.
Ég hef ekki náðargáfuna sem þarf til að skoða kaffileifar og sjá fólk, þó ég geti elda með sígarettuna í munnvikinu. Ég trúi ekki að kaffi geti sagt til um framtíð, fortíð eða nútíð. Finnst samt alltaf jafn heillandi að fylgjast með enda oft mikil tilþrif höfð í frammi.
Þó ég trúi ekki á spákonur þá trúi ég á undirmeðvitundina og ef ég hef í huga hvað ég er einföld og auðtrúa þá er ekki hollt fyrir mig að fá uppgefin spádóm hjá spákonu sem undirmeðvitundin gæti tekið alvarlega. Auk þess trúi ég ekki á örlög. Ég held að framtíðin sé óskrifað blað og ég vil ekki vita hvað aðrir halda að standi á mínu.
|
|
 |
 |
Föstudagur
Föstudagur, 30. maí 2003
Þá er komin föstudagur, í annað sinn í þessari viku. Ég fór með nýútborguð launin í europris að kaupa sokka á afkvæmin og það rifjaðist upp fyrir mér hvað það er leiðinlegt að versla með öskrandi foreldra og grenjandi börn yfir sér.
Sem betur fer tók þetta fljótt af og ég fór út úr búðinni með 13 pör af sokkum og smá mat. Þá fór ég í 10-11 að versla mér hárlit, sem var ekki til í europris, og þegar ég var búin að setja næstum allt sem var ekki til í europris í körfuna komst ég að því að hárliturinn var ekki til í 10-11.
Ég endaði þessvegna í Nóatúni. Keypti það sem var ekki til í hinum búðunum og hélt heim á leið.
Krakkarnir vildu pulsur í matinn svo ég ruslaði þeim upp. Jóhanna sá aflitunnarefnið sem ég keypti og spurði mig mjóróma hvort ég ætlaði að lita hárið á mér ljóst. Aftur. Hún sendi frá sér gleði "hjúkk" þegar ég sagði nei. Var ég svona hörmuleg ljóshærð? Líklega..
Nú sit ég og hlusta á "It had to be you" með Tony Bennett og slaka á. Búin að þrífa eldhúsið og á leiðinni í bað... þegar og ef Tóti ratar heim úr vinnunni.
|
|
 |
 |
Fyrir kvöldið
Laugardagur, 31. maí 2003
gaim says:
ég þarf að fara að taka fram spartlið og múnderinguna fyrir kvöldið
gaim says:
ekki veitir mér af því að byrja strax
gaim says:
illa sofin og þreytuleg að vanda
gaim says:
með órakaðar lappir
Barasta Harpa says:
já gerðu það, ég vona að ég komi inn nýju kommentdóti í dag
Barasta Harpa says:
fer Tóti með þér ?
gaim says:
nei hann verður heima
gaim says:
við fáum ekki pössun
Barasta Harpa says:
heldurðu að einhver kíki á lappirnar á þér?
gaim says:
neee
gaim says:
og Tóti veit að ég held ekki frammhjá með órakaðar lappir og í ljótum nærbuxum
gaim says:
svo þetta er allt í gúddí
Barasta Harpa says:
LOL
gaim says:
styrkir hjónabandið
|
 |
|
ravings í maí 2003
monthly archive
|
|
|