www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Spegill spegill
Föstudagur, 25. apríl 2003

Þegar ég leit í spegil í morgun var eins og einhver hefði verið að leika sér með image levels í photoshop og klúðrað málunum hrikalega. Ég var græn í framan. Svartir baugarnir voru á sínum stað ásamt bólunni sem ég fékk á hökuna um daginn og virðist vera komin til að vera. Ég er búin að sitja við tölvuna í öllum frístundum síðan á miðvikudaginn og ég hefði ekki komist upp með að mæta í vinnuna án þess að fara í bað.

Í baði velti ég því fyrir mér hvort það væri rétt, fyrst ég er græn í framan, að kaupa grænt meik því eins og allar konur vita á að kaupa meik sem er einum tón ljósari en sá sem er á skinninu á manni. Ég nota lit sem heitir Blonde og er frá... christ.. ég man það ekki í augnablikinu. Ætli maður geti fengi minnisleysi metið sem örorku? Allavega. Meikið heitir Blonde og ég er allt annað en Blonde. Tilraunir mínar til að vera blonde hafa allar mistekist hraparlega og ég má í raun og veru þakka fyrir að vera ennþá með hár á hausnum en það er önnur saga. Mér var ekki ætlað að vera ljóshærð. Það er húðin á mér sem er ljós, nánast hvít. Ef ég fer hinsvegar í ljós þá verður hún grá. -eða með svona grá svörtum tón. Þessvegna fer ég ekki í ljós. Skárra að vera hvítur en grár. En er ekki skárra að vera grár en grænn? Oh the agony of choice...

Auðvitað veit ég af hverju ég er græn. Ég er græn af svefnleysi og gamma geyslum frá skjánum mínum og óhollu matarræði og kókþambi og loftleysi og hreyfingarleysi. Ekkert sem er ekki hægt að breyta til betri vegar en ekki fyrr en ég klára heimasíðuna mína.

Klassískt að fá svona productive kast og eyða því í heimasíðugerð þegar ég ætti að vera að læra fyrir próf.


| anna | 11:23 |
comments

sour [angry] silent silent silent silent silent silent silent silent silent silent silent silent silent weepy weepy thumb up clown clown angel angel angel weepy [eyebrows] cool sad silent nerdy nerdy nerdy nerdy nerdy [angry] sick pirate angel clown [eyebrows] pirate angel weepy clown thumb down wave drunk [angry] sour what cool cool cool cool cool

Nr. 1 | posted by: hreinn | 22.12.2003 | 20:53:53 | [+] |

Voðalega eru smælarnir þínir vinsælir.

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 23.12.2003 | 0:51:52 | [+] |

Svona líka rosalega! laughing

Nr. 3 | posted by: anna | 23.12.2003 | 1:54:31 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web