www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fyrirgefnin: Niðurstaða
Þriðjudagur, 08. apríl 2003

Ég er búin að komast að niðurstöðu varðandi fyrirgefningu. Til þess að geta fyrirgefið þarftu að skilja af hverju viðkomandi gerði það sem hann gerði. Þegar þú skilur af hverju ertu komin á vegin sem liggur að fyrirgefningu.

Ég skil af hverju vinkonurnar gerðu þetta í myndinni og ég skil núna af hverju hún fyrirgaf þeim. Ég hefði gert það líka.

Dr. Sváfnir, gúrúinn minn, verður kátur þegar hann fréttir að ég sé komin að þessari niðurstöðu. Hann segir alltaf að ég sé með of mikið hatur í blóðinu.


| anna | 12:30 |
comments

Fyrirgefningin er göfug, liggur nærri sakramenti (eða er hún kannski sakramenti?) hjá kristnum. Samt væri engin fyrirgefningin ef menn gerðu aldrei neitt af sér. Ég held að trúarliðið eigi hinu illa meira að þakka en þeir gera sér grein fyrir. Ég er að hugsa um að tilheyra þessum illu öflum í framtíðinni. Mér líður betur ef einhver á mér eitthvað að þakka.

Ps, hvernig fórstu að því að skilja vinkonurnar? Ég skil konur aldrei, hvað þá vinkonur.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 9.04.2003 | 1:51:17 | [+] |

Þessi síðasta lína er tær snilld.

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 11.04.2003 | 19:28:12 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web