www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Frosting terta
Þriðjudagur, 22. apríl 2003

Ég fékk eftirfarandi bréf frá systur minni eftir að ég hafði lofað að senda henni uppskrift af frosting tertunni hennar ömmu Fanney fyrir löngu síðan:

Systir góð,

Ég hef beðið í angist minni. Nú, þegar vindar snúast til vesturs og hafið lygnir, mála ég myndir af hvítu kremi. Hvern dag er klukkan slær þrjú vaknar unnusti minn af miðdegislúr og gengur uppreistur til eldhússins. Hann þefar og lítur í kringum sig, en þegar honum er ljóst að í dag eins og aðra daga fær hann aðeins smákökur ellegar pönnukökur með bláa kaffinu sínu, skolar hann burt stírunum með söltum tárum.

Ég er miður mín, hann er þunglyndur og við bíðum og bíðum.

Bíðum og bíðum og bíðum.

Bíðum og bíðum og bíðum og bíðum,

eftir uppskrift frá þér...

Þín elskulega yngri systir,
Júlía.

Hér er uppskriftin elskulega yngri systir:

Það sem þarf í þessa köku er eftirfarandi:

Botnar:

100 g smjörlíki
200 g sykur
2 egg
200 g hveiti
3 tsk lyftiduft
3 msk kakó (Kötlu kakó)
1 tsk salt
1 tsk vanilludropar
1,5 dl mjólk

Krem:

1 bolli sykur
1 msk vatn
1 msk síróp
2 eggjahvítur

Botnar:

Smjörlíki og sykri hrært saman þangað til orðið jafnt. Þá er eggjunum bætt út í og hrært áfram. Öllu hinu jukkinu blandað saman við en þá er mjög mikilvægt að hræra rólega eftir að hveitið er komið út í svo kakan verði ekki klesst. Bakað á neðstu rim við ca 200 gráður þangað til botnin er laus frá formbrúnunum.

Krem:

ATH! Botnarnir verða að vera búnir að kólna áður en byrjað er á kreminu, annars lekur kremið af og þá er kakan ónýt.

Sykurinn, vatnið og sírópið sett saman í pott og sett á fullan hita. Á meðan þetta er að hitna, þeytir maður hvíturnar vel. Þegar sykurinn freyðir og er orðin gulllitaður lætur maður hann leka í mjórri bunu útí hvíturnar sem eiga að þeytast á meðan. Þeytt í ca mínútu eftir að allt er komið í skálina. Það þarf að setja kremið strax, eftir að þú ert hætt að þeyta, á kökuna því það verður fljótt mjög klístrað og þá er vonlaust að eiga við það.


| anna | 12:40 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web