Fimmtudagur, 24. apríl 2003
Ég get brjálast á sjálfri mér. Ég er búin að vera að vinna í nýju síðunni minni. BTW þá byrjaði ég á enn einni því "nýja" síðan mín var búin að vera svo lengi í vinnslu að ég var orðin leið á henni. Ég hætti þessvegna við að hafa hana og er að byrja á enn einni. Mér gengur nú samt töluvert betur en venjulega af því að ég ákvað að gera þetta skipulega í þetta skipti. Nú. Eitt af því sem ég vil hafa á forsíðunni er uppfletting í símaskrá af því ég nota síðuna sem upphafssíðu og nota uppflettinguna í símaskránni heilmikið í vinnunni til að fletta upp póstnúmerum hjá fólki sem þykir sjálfsagt að maður viti hvað póstnúmerið er hjá þeim. Ég veit að það er 200 í Kópavogi og 201 í nýju hverfunum þar. Ég veit ca hvar 101 er, 107 og 105. That's it folks. Þar með er póstnúmeraviska mín uppurin og ég mun aldrei leggja póstnúmer á minnið. Aldrei. Ég er búin að eyða sem samsvarar tveimur klukkutímum í að ná helvítis uppflettingunni réttri því hún opnaði alltaf tvo glugga. Christ. Ég er að vinna í undirsíðunum og fattaði allt í einu að ég vildi ekkert hafa uppflettinguna á undirsíðunum. SVO ÉG EYDDI ÚT TVEGGJA TÍMA VINNU. Ógeðslega pirrandi. Ég er samt komin ótrúlega langt miðað við vinnuna sem ég er búin að leggja í þetta. Ég fer að taka að mér heimasíðugerð í MT fyrir sanngjarnt* verð. Ekki bætir úr skák að Dórið sendir mér sms á klukkutíma fresti og skammar mig fyrir að uppfæra ekki song of the week sem er synd því ég var búin að finna lag og alles. Ég bara nenni ekki að eyða tíu mínútum í það.
Ég verð ekkert smá fegin þegar ég er búin að setja síðuna upp í MT það sparar ekkert smá mikla vinnu við að halda þessu við. Ef þetta væri ekki svona andlega hreinsandi myndi ég ekki nenna þessu. Já, hirð Tóta, ég er búin að laga kommentin hjá mér svo þið getið ekki kvartað yfir því lengur. Permalinkarnir sem einhver var að væla yfir koma ekki fyrr en hin síðan mín kemur upp. hehehe.. dettur mér í hug. Hmmm... jebb.. geri það.
*uppsprengt