www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Brenndur matur
Mánudagur, 21. apríl 2003

Það er með ólíkindum hvað mér finnst brennt ristað brauð gott á bragðið og þá er ég að tala um brauð sem er svart báðu megin. Að sama skapi fer fátt eins mikið í taugarnar á mér þegar aðrir fjölskyldumeðlimir fikta í brauðristarstillingunum og brauðið mitt hoppar upp úr ristinni hlandvolgt og náfölt. Nágrannar mínir vita upp á hár hvenær ég fæ mér þetta góðgæti vegna þess að ég á reykskynjara sem virkar.

Brennt brauð er ekki eina brennda fóðrið sem mér finnst gott. Brennt poppkorn er með því betra sem ég fæ en bara þetta sem ég bý til sjálf í stóra popp pottinum mínum. Ég hef reynt að ná sama árangri með örbylgjupoppi en það verður yfirleitt bara að ösku eða einum samanbrenndum popp hnullungi sem meira að segja mér finnst ólystugur. Svo er það blessað lambakjötið. Ég hef komið mér upp aðferð við að grilla lambakjöt sem skilar mér sneiðunum nákvæmlega eins og ég vil hafa þær. Öðru megin lítur sneiðin mín út fyrir að vera til manneldis en hinu megin er hún kol-bika-svört. Best þykir mér svo ef kjötið er hálf hrátt að innan. Þetta eru kannski bara leifar af fyrra lífi mínu sem hellisbúi að experimenta með eld með misjöfnum árangri.

Annars er þetta er nú allt gott og blessað nema að ég las um daginn, eða heyrði, að brenndur matur innihéldi mökk af krabbameini og fólk sem leggði sér svona brunarústir til munns væri í bráðri lífshættu. Það kemur samt ekki að sök þar sem ég kann því vel að "live on the edge". Maður á líka að "vera" það sem maður borðar. Þá er ég viðbrunnin eða jafnvel burnout... það er ekki eins gaman.

Líklega er þetta eitthvað chemical imbalance í líkamanum eða þá að ég er að búa mig undir vistina í neðra.


| anna | 14:11 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web