Sunnudagur, 06. apríl 2003
Ég get ekki sofið. Ég lá uppí rúmi áðan með hendurnar ofaná sænginni og hlustaði. Sjálfsagt flestir nátthrafnar farnir að sofa, löngu búnir að rífast, og óknyttastrákar allir dauðir áfengisdauða í sófa í einhverju partýi svo ég heyrði ekki rifrildi og engar flöskur brotna bara fuglasöng og þytinn í vindinum. Ég horfði á gardínuna sogast til skiptis út um gluggann, límast við rúðuna, og blásast inn um gluggann þaninn eins og segl. Ég lokaði augunum og hlustaði á fuglasönginn í vindinum í stutta stund. Opnaði þau aftur og horfði á gardínuseglið þenja sig. Ég er svo þreytt. Hvenær sofa fuglarnir eiginlega?