Af þrifum
Laugardagur, 12. apríl 2003
Ahhhhhhhhhhh
Ég er búin að taka til í allri íbúðinni og klukkan ekki orðin þrjú! Ég er að hlusta á Sir Duke með Stevie Wonder og rifjast ekki upp fyrir mér auglýsingin frá Landssímanum þar sem þeir notuðu þetta lag við myndskeið af stelpu með gamaldags vasadiskó að fíla sig í strædó og slagorðið var "mannstu þegar þú hafðir engar áhyggjur?" Ég brosi út að eyrum og fæ tár í augun þegar ég sé þessa auglýsingu því hún capturar nákvæmlega þetta tímabil, þegar maður hafði ekki áhyggjur. You can feel it all over....