Laugardagur, 05. apríl 2003
Ég er 60 kg. Ef ég verð orðin 55 kg í júní þá vinn ég veðmálið sem ég gerði við Ingvar og hann verður að halda partý. Hann er búin að segjast vera á leiðinni að halda partý á þriðja ár og ég er orðin frekar leið á að bíða. Grey hann. Ég veðja aldrei nema þegar ég veit að ég vinn. Tóti þolir það ekki, enda er hann löngu hættur að veðja við mig. Hann á það líka til að segja við mig. "You're so superior", með hæðnistón, þegar ég hef rétt fyrir mér sem er alltaf. Eða í 98% tilfella ef ég á að segja satt frá. Ég get ekki farið að taka afhonum tvö prósentin. Það væri einfaldlega ljótt.
Ég velti því fyrir mér hvaða hljóð þetta er sem berst öðru hvoru frá einhverri íbúð hérna í húsinu. Hljómar eins og að einhver hafi tekið mjög, mjög þungan hlut og hent honum þvert yfir stofuna. Í gær nótt, á meðan ég spilaði í playstation, hlustaði ég á par rífast við sundlaugina og einhverja óknyttastráka brjóta flöskur í gríð og erg. Djöfuls ribbalda hverfi sem þetta er að verða...
Annaðhvort það, eða ég er bara orðin svona gömul. hehehe