www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Af góðverkum
Miðvikudagur, 09. apríl 2003

Ég byrjaði daginn í dag á góðverki og er þar með búin að brjóta áramótaheit mitt um að gera engin góðverk á þessu ári. Ég gaf manni í hverfinu start því hann var rafmagnslaus. [Æi ég nenni ekki að skrifa þetta politically correct eins og bíllin var rafmagnslaus.] Þetta er Bens og þegar ég kom að honum, manninum, var hann að rembast við að fá start frá WV Golf og ekkert gekk. Ég var ekkert rosalega hissa.

Kom ekki Anna to the rescue og þegar hann var búin að tengja startkaplana í Peugeot-inn minn þá rauk Bensinn í gang. Ég er ekki frá því að mér hafi liðið eins og Láka þegar hann gerði góðverk í fyrsta skipti. Fann undarlega ánægjutilfinningu sem ég kannast ekki við að hafa upplifað áður... eða var það þegar ég hleypti úr dekkinu hjá honum þegar hann var að aftengja kaplana?


| anna | 17:49 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web