Mánudagur, 07. apríl 2003
Tóti kom við hérna heima, náði sér í bók, kallaði í Jóhönnu og gerði sig líklegan til að fara aftur. Ég spurði: "Hvað ertu að gera með þessa bók?" Hann svaraði: "Ég ætla að fara að lesa." Ég horfði á hann með spurningasvipnum mínum og hann hélt áfram: "Já, hvað á ég að gera á meðan Jóhanna er í karate, ég ætla að lesa í bílnum." Áður en hann fór sagði hann mér að útibússtjórinn í bankanum okkar hafi hringt í sig áðan út af heimild sem er að falla úr gildi. Tóti veit kannski meira en ég. Kannski er hann að venja sig við það að búa í bíl án minnar vitneskju og þá verður hann betur undir það búin þegar sá dagur kemur að við þurfum að flytja í bíl. Annars gef ég okkur eitt og hálft ár fram að gjaldþroti með þessu áframhaldi.
Ef þú vilt veðja um hvað við eigum langt eftir vil ég benda þér á Lögregluna í Reykjavík því það er bannað held ég. -Að veðja.