1. apríl
Þriðjudagur, 01. apríl 2003
Doddi var að uppgvötva 1. apríl í dag. Hann plataði okkur non stop og við höfum ekki hlegið og haft svona gaman lengi.
Doddi: "Mamma, það er einhver að kalla í þig"
Anna: "ha"
Doddi: "Fyrsti apríl!"
Doddi: "Pabbi, ég pissaði í baðið"
Tóti: "Æi Doddi!"
Doddi: "Fyrsti apríl!"
Tóti átti samt lang besta gabbið þegar hann var að elda. Hann opnaði einn skápinn og hrópaði upp yfir sig: "Vaá! Rosalega stórt páskaegg! Ég ætla að borða það einn!" Doddi hljóp til hans og sagði "ég má líka!" -Fyrsti apríl! og allir fóru að hlæja.
Annars hefði ég verið tilvalið fórnarlamb fyrri part dags því ég fattaði ekki að það væri 1. apríl í dag. Það gabbaði mig samt engin. Af hverju datt mér ekki í hug að ræna banka 1. apríl? Snilldar bragð.
Ég var að horfa á Innlit Útlit og þar voru hjón að sýna húsið sitt. Aftur og aftur gáfu þau innanhúsarkitekt kredit fyrir að hafa stungið upp á þessu og hinu og þau fengu verslunarstjóra í húsgagnaverslun til að finna flest húsgögnin fyrir sig. Allt í einu datt mér í hug að þetta fyndist mér glatað ef þetta væri húsið mitt. Ég vil velja sjálf og fá sjálf hugmyndir af því hvernig heimilið mitt lítur út. Mér fyndist glatað að segja: "já hún eitthvað sagði mér að gera þetta svona og hafa þetta svona og hinsegin. Og málarinn sagði mér að hafa eldhúsið svona á litinn" o.s.frv. Heldur fólk að það hafi svona glataðan smekk? Fyrir hvern er fólk að stílisera heimilið sitt? Ég las einhverstaðar að það hefðu ekki allir góðan smekk, og þeir sem hafa hann ekki eiga að stæla þá sem hafa hann. Hvað er góður smekkur annars? Er það eitthvað sem innanhúsarkitektar hafa bara? Hvað gerist ef þú færð þér innanhúsarkitekt með glataðan smekk? Er það sjálfkrafa góður smekkur af því þetta er innanhúsarkitekt? En ef þú fílar ekki stofnana gráa litinn sem arkitektinn velur? Ertu glataður ef þú velur annan lit? Áttu á hættu að missa vini? Sem betur fer er takmark mitt í lífinu ekki að koma heimilinu mínu að í Innlit Útlit eða Hús og Hýbýli. Þetta er mitt eigið heimili og ég kæri mig ekkert um að bjóða alla sem annaðhvort horfa á þátt í sjónvarpinu eða eyða 800 kalli í eitthvað blað velkomna þar inn. En nú fengi ég engin verðlaun frá Atvinnusköpunnarsjóði því hvað ættu allir innanhúsarkitektarnir að gera ef það væru eintómar Önnur þarna úti? BTW.. mér finnst glatað að hafa myndirnar svona lágt á veggnum. Ef það drepur þig að líta upp þegar þú situr þá áttu við vandamál að stríða og ættir að leita til læknis...