www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Viltu vinna milljón
Sunnudagur, 30. mars 2003

Úff maður. Þvílíkt spennufall. Ég var að horfa á Viltu vinna milljón á einn skemmtilegasta keppandann so far, hann Paolo. Það hefði mátt heyra saumnál detta á parketgólfið svo hljótt höfðum við krakkarnir þegar spurningin var hvernig augun á fullþroska skúfönd eru á litinn. Fagnaðarlætinn sem brutust út hjá okkur krökkunum voru rosaleg, við dönsuðum um stofuna. Það mætti halda að við hefðum verið að vinna fimm milljónir! Doddi var í sinni venjulegu keppni, ef valkostur D er valinn og er réttur þá vinnur hann ef valkostur A er valinn og er réttur þá vinn ég. Tóti og Jóhanna geta ekki verið með, obviously. Í hans augum vann ég lotuna.

Úff, ég held ég fari bara að sofa. Rosaleg orka fer í svona spennu. Held ég hafi aldrei lifað mig svona inní þáttinn fyrr. Fannst ekkert merkilegt þegar presturinn vann forðum daga enda voru allar krúsjal spurningar liggur við beint úr Biblíunni í þeim þætti. Það var líka greinilegt að einhver átti að fá fimmuna á næstunni því spurningarnar voru auðveldari en venjulega, samt, ég hefði ekki getað svarað nærri öllum spurningunum sem Paolo svaraði en hann fór létt með þetta! Frábært. Ótrúlega fróður um Ísland. Bravó Paolo! Þú ert vel að þessum vinningi kominn og yndislegur keppandi!

Ég myndi fara í heitt róandi bað ef ég væri ekki nýbúin að naglalakka mig...


| anna | 20:38 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web