www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Þrif
Laugardagur, 08. mars 2003

Ég þarf að taka til heima hjá mér í dag því ég er að fá gesti í kvöld. Bömmer. Ekki bömmer að ég er að fá gesti, bömmer að ég þurfi að taka til. Næringafræðin sem ég tók í VMA er virkilega að pay off, ég er komin niður í 61 kg. Jah... eða sambland af næringarfræði og tannhreinsi-megrunnar-áætluninni minni. Ég þarf að fara að laga síðuna mína svo lesendur geti valið eldri færslur. Geri það þegar veður versnar.

Kom heim úr vinnunni í gær með dúndrandi hausverk, fór í bað, kvaddi kallinn sem var á leiðinni út á lífið og lagðist upp í rúm með börnunum. Vaknaði klukkan korter yfir ellefu, með hausverkinn, og fékk taugaáfall því ég átti eftir að vinna verkefni í sögu sem átti að skila fyrir 7. mars. Átti í raun og veru að skila því fyrir 5. mars en eyddi póstinum óvart í vinnunni með verkefninu og eyddi því þar með úr harða disknum í hausnum á mér. Fékk frest til að skila til 7. Ég tók parkodín og íbúfen með kóki og settist niður að vinna verkefnið, sem ég kláraði 12 mín yfir miðnætti. Annar bömmer. Las verkefnið yfir og sendi það til kennarans og signdi mig just in case þó ég trúi ekki á Guð. Tóti kom heim klukkan hálf eitt lyktandi af sígarettulykt sem ég fann þvert yfir stofuna svo mig dauðlangaði í sígarettu. Fékk mér fimm nikótíntyggjó og tuggði þangað til mér varð óglatt. Fór að sofa klukkan hálf þrjú.


| anna | 13:17 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web