www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Over achievement 2
Mánudagur, 17. mars 2003

Er ég stolt af sjálfri mér eða hvað! Ég fann eirð í hnífaparaskúffunni til að setja upp link á gamalt bloggefni. Nú er það eina sem virkar ekki á anna.is það, að þegar fólk smellir á [+] á það að fá upp viðkomandi blogg á föstum link, en ég hef eitthvað fiktað í þeirri uppsetningu svo það virkar ekki, já og einhverjar af fyrstu færslunum mínum koma upp tvisvar.

Ég bara finn ekki hjá mér þörf fyrir að laga þetta alveg strax, sérstaklega þar sem ég var byrjuð að vinna að nýrri anna.is síðu sem, ironically enough, ég kóperaði þessa linka af. Ég er semsagt farin að nota nýju síðuna til að lappa upp á þá gömlu. Sem er í sjálfu sér nógu glatað. Þetta tók mig heilar tíu mínútur í framkvæmd og ég reikna alveg eins með því að tíminn sem fari í að laga [+]-ið fari upp í heilar fimm mínútur. Þeim langar mig frekar að eyða í sófanum með sæng og finnast ég vera búin að vera uber dugleg. Verst að þá þarf ég að fara úr skónum og ég nenni því eiginlega ekki... Oh, the agony of choice!


| anna | 18:14 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web