www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Óskar
Miðvikudagur, 26. mars 2003

Tóti horfði einn á Óskarsverðlaunahátíðina aðfaranótt mánudagsins live. Ég horfði á Óskarsverðlaunahátíðina ein í kvöld á vídeói. Gat hraðspólað yfir auglýsingarnar. Mikið rosalega er Susan Sarandon glæsileg kona. Nú er tækifærið Guð! Gerðu mig svona flotta þegar ég kemst á hennar aldur og þú færð sál mína. Hehehe.. glætan spætan. Hann verður að gera mig ríka líka. Halle Berry er unbelievably hot. Hún er svo hot að ég er búin að setja hana á listann yfir þá sem ég mætti sofa hjá ef svo ólíklega vildi til að tækifærið byðist. Tóti samþykkti viðbótina með því skilyrði að hann fengi að spurja Halle hvort hann mætti horfa á.

Annars fannst mér þessi hátíð ágæt. Steve Martin var alveg ágætur en ég er ennþá í sjokki yfir að Horst Buchholz sé dáin. Nicole Kidman er farin að fara ískyggilega í taugarnar á mér, veit ekki af hverju, held að það sé feimnisbrosið. Fer henni svo miklu betur að vera full sjálfstrausts, hrokafull jafnvel! Fannst Nicolas Cage hrikalega flottur en Harrison Ford, christ, glataður jakki sem hann var í. Djöfull fer aldurinn rosalega illa með hann. Sean Connery er ennþá flottur, 107 ára, og sannar að sumir þurfa ekki að deyja ungir til að vera flottir í gröfinni. Zeta Jones er mögnuð. Vildi að ég liti svona vel út komin á steypirinn. Ég er hinsvegar búin að vinna hörðum höndum að útrýmingu allra mynda sem teknar voru af mér óléttri. Sú staðreynd að ég fór úr 50 kg í 80 kg á fyrstu meðgöngunni ætti að segja meira en þúsund orð. Ég var spurð að því úti á götu hvort ég væri súmóglímukappi!!

Bowling for Colombine kallinn var langflottastur, nei, Brody var flottari þegar hann sussaði á hljómsveitina. Brody er flottur gæi. Hefði ekkert á móti því að fara í fótanudd hjá honum. Chris Cooper átti óskarinn sinn fyllilega skilið. Maðurinn er frábær í Adaptation. Ég hef ekki séð Píanistann en djöfull má hún vera góð til að vinna Adaptation adaptation-ina.

Helvítis reykskynjarinn inn í svefnherbergi er low on batteries og vælir með korters millibili á okkur að skipta um batterí. Við þessar aðstæður sefur maðurinn minn ásamt tveimur börnum okkar. Ég er að velta því fyrir mér að sofa inní stofu. Glætan að ég nenni að klæða mig, ná í stól og taka niður reykskynjarann. Ég fór nebblinlega í bað áðan, allt of heitt, beint upp í rúm á eftir, sveipaði mig sæng þegar ég fór framúr og er búin að fara í gegnum allan óskarinn sitjandi innpökkuð í sæng einni fata. Ég er hrædd um að ég myndi missa sængina niður um mig við að taka reykskynjarann niður og ég vil ekki gera honum Lárusi í næstu blokk það til geðs. Ekki í kvöld Lárus. Later.. much later. Ég hef það eftir áræðanlegum heimildum að Roman Polanski hafi verið í svipuðum klæðnaði þegar hann horfði á óskarinn. Nema að hann hafi verið að ljúga að mér áðan.

Eminem vann! Þvílík gargandi snilld. Þetta lag er hrikalega flott hjá honum og bara gleðihrollurinn sem fór um mig þegar U2 vann ekki er ólýsanlegur. Ég bara þoli ekki Bono. Jack Nicholson getur pullað off að vera með sólgleraunu en Bono getur það ekki.

Djöfull getur Jay Leno verið annoying stundum.

Að lokum, ef þér finnst lífið leiðinlegt, finnst þú líta illa út og vera overall ömurð, legg ég til að þú farir á Google, sláir inn "stars without makeup" og sjáir hvernig þetta gríðarlega fallega fólk lítur út í raun og veru. Það sem mig langar að vita.. hvar fá þær meik sem hylur svona vel! Ef ríkisstjórnin lækkar skatta fer minn ágóði í að ráða full time stílista sem getur haft mig presentable 24-7. Að vísu þaggar það yfirleitt niður í fólki sem segir hluti eins og "mikið ertu þreytuleg" eða "gastu ekkert sofið í nótt" að segja: "Maðurinn minn dó í nótt í svona freak accident, hann var að klippa táneglurnar og klippti sig óvart í slagæð og blæddi út yfir allt sófasettið." Þegar viðkomandi starir opinmynntur á mann bætir maður við: "veistu hvað er erfitt á ná blóði úr plush áklæði?". Maður verður að vera tilbúin þegar neikvætt fólk herjar á mann. Þessvegna giftist ég Tóta. To stay on my toes.

Magnað. Var að lesa badabing.is og komst að því að Tóti svaf líka á sófanum þegar hann var búin að horfa á óskarinn. Ef við hefðum horft saman á óskarinn hefðum við þá sofið saman í sófanum? Rosalega erum við alltaf að fara á mis við hvort annað...


| anna | 23:11 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web