www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Maid in Manhattan
Miðvikudagur, 19. mars 2003

Ég fór á Maid in Manhattan í gær. Myndin er ágæt per se en endirinn er kolómögulegur. Ef þú átt eftir að fara á myndina þá skaltu ekki lesa lengra. Ef þér leiðast öskubuskusögur og ætlar ekki á Mad in Manhattan þá máttu alveg lesa lengra en ég efast um að þú hafir gaman af því.

Ég bjó til nýjan endir á myndina. Minn endir hefst þegar Chris, þingmaðurinn okkar, heldur blaðamannafundinn á hótelinu en í stað þess að sonur Maris, Ty, mæti á svæðið og pimpi mömmu sína þá verður Chris litið á þernu í miðri ræðu sem hefur sama baksvip og okkar kona. Honum verður starsýnt á hana, missir málið og áttar sig skyndilega á því að auðvitað er þetta konan sem uppfyllir alla hans drauma. Hann stekkur niður af sviðinu og skilur blaðamennina eftir forviða, eltir þernuna en kemst að því að þetta er ekki Maris. Hann hleypur út á götu, nær sér í taxa og fer beint á Bedford hótelið þar sem hann hittir hjálparmýsnar hennar (þernurnar þrjár) og fær upplýsingar um hvar Maris á heima, fer þangað (sena þar sem hann pirrast í leigubílnum út af traffic, ekki myndinni traffic.. æi þú veist hvað ég meina) en þegar hann kemur heim til hennar er Maris ekki þar. Hann finnur nágranna hennar sem segir honum að Maris sé á skólaskemmtun hjá Ty.

Nú verður þú að átta þig á því, lesandi góður, að þegar menn fá svona moment of clarity þar sem þeir átta sig á því hverjum þeir vilja eyða restinni af ævinni með, þá geta þeir ekkert beðið með að komast að því hvort að hinn aðilinn vilji það líka.

Nú, Chris kemst loksins í skólann þar sem skemmtunin er byrjuð, hann svipast um eftir Maris en í þann mund stígur Ty á svið. Chris hættir að leita og horfir á þegar Ty gengur að púltinu, setur báðar hendur á það og lítur yfir salinn, og... frýs. Kemur ekki upp orði. Ty stendur upp á sviði og sér Chris. Chris brosir og rennir hendinni í vasann (að ná í bréfaklemmu) sem verður til þess að Ty snappar í gírinn, gerir slíkt hið sama og byrjar að halda ræðuna óaðfinnanlega. Maris er til hliðar við sviðið að fylgjast með Ty, sér hvað Chris gerir og þegar Ty hefur haldið ræðuna fær hann standin ovation. (æi yuck fou ef þú sérð ekki hversu dásamlega corny þetta er) Ty gengur af sviðinu í opna arma Maris og þau fagna.

Nú er rétta mómentið fyrir Chris að koma að þeim, taka í höndina á Maris, horfa í augun á henni og biðja hana að vera sín að eilífu. Hún segir ekkert en kyssir hann og þar með er The End.

Punkturinn er. Chris á að fatta það hjá sjálfum sér að hann er asni að láta Maris fara, þetta er ekki hálfviti, hann á ekki að þurfa að láta Ty gefa sér það inn með teskeið.

Að lokum hefði mátt sleppa blaðaúrklippunum í lokin, sem mér fannst hallærislegar. Áhorfendur vita að auðvitað lifðu þau hamingjusöm til æviloka. Það þarf ekki að gefa okkur neitt inn með teskeið heldur. Ef það var svona mikið atriði að sýna áhorfendum fram á að þau actually lifðu hamingjusöm til æviloka hefði verið smartast að láta myndina byrja á grátandi einstæðri móður sem vinnur á hótelinu sem fer að spjalla við eldri konu sem segir henni söguna. Þá hefði myndin endað á því að eldri konan er eiginkona forsetaframbjóðanda sem er... you said it!

Again, corny en virkar ef það er vel gert.


| anna | 15:00 |
comments

comment

Nr. 1 | posted by: gogirl22000 | 30.08.2003 | 6:04:49 | [+] |

en þetta var ömurleg mynd! Hún j. low er pathetic! Og ég er ekki að segja þetta útaf því að hún er með rass heldur hún er bara ööömurleg! Gribba... Það sést langar leiðir að hún sé frekja... FREKJA!

Öskubuskur eiga ekki að vera frekjur..
mér finnst að þetta hlutverk hefði átt að vera leikið af einhverju heilalausu súpermódeli. Þannig hefði hlutverkið verið enn sterkara þar sem hún er falleg, góð OG er þurfandi postulínsdúkka sem er algjört möst í cinderella myndum.

Eða kötturinn minn hún Emma væri líka góð í sama hlutverki..

Nr. 2 | posted by: Julia | 31.08.2003 | 17:53:28 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web