www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lip gloss
Sunnudagur, 30. mars 2003

Ég naglalakka mig, therefore I am.

Ég naglalakka mig endalaust. Enda hef ég komist að því að eina leiðin fyrir mig að hafa fallegar neglur er að hafa alltaf naglalakk á þeim. Ég hef auk þess komist að því að þegar ég er blue öðlast ég instant recovery ef ég kaupi mér nýtt naglalakk, eða tösku.

Við hjónin erum búin að vera blönk undanfarið vegna þess að ég borgaði tannlækninum í einni slummu 109 þúsund kall og ég hef ekki haft pening til að kaupa mér naglalakk. Eins og þú getur ímyndað þér lesandi góður, þá á ég naglalakkglös í tugatali. Ég er búin að vera veik og þar af leiðandi blue og hef ekki einu sinni komist út í Apótek til að kaupa naglalakk þó að ég hafi getað nurlað saman fyrir því. Þá fer anna að blanda saman naglalökkum. Ég hef náð töluverðri færni í þessu, löngu komin yfir það stig að standa uppi með fimm glös af drullubrúnu naglalakki. Ég tók mér fyrir hendur að blanda lit sem færi vel við glossinn sem ég keypti um daginn sem ég verð eiginlega að blogga um.

Tóti hefur sjaldan eða aldrei skammast sín jafn mikið fyrir "konansín" eins og þetta skipti sem við fórum út í Apótek að kaupa sjampó eða eitthvað álíka eðlilegt þegar mér datt í hug Lara Flynn Boyle vinkona mín úr þáttunum Practice.
Hún er með svo hrikalega flottar varir alltaf í þessum þáttum, með bleikum gloss, svo ég spurði afgreiðsludömuna hvort hún hefði séð þættina og vissi hvað ég var að tala um. Það hljóp mikið kapp í hana því hún vissi hvað ég var að tala um og við færðum okkur að gloss deildinni þar sem við fórum að prufa og skoða glossa og varaliti. Þvílíkt fjör hjá okkur. Við duttum niður á litinn, sem ég keypti, og gekk út úr Apótekinu in high spirits.

Þegar við Tóti komum út í bíl gat hann loksins mælt, en ég hafði ekki gert mér grein fyrir hversu hræðileg lífsreynsla þetta var fyrir hann. "Hefurðu séð Lara Flynn Boyle í Practice?" hvæsti hann, "Það er ekki í lagi með þig!".
"Ha?" spurði ég hissa. Það fór algjörlega framhjá honum hvað við, afgreiðsludaman og ég, höfðum gaman af þessu, enda... Þetta er Apótek. Er ekki skemmtilegra að fá challege eins og að finna varalitinn sem Lara Flynn Boyle notar í Practice þáttunum en að aðstoða fólk með endaþarmsleka, nefrennsli, líkþorn, leggangaþurrk eða eitthvað álíka? Ég sagði allavega við hann að í versta falli gerði ég mig að fífli, ekki hann. Hann er nefninlega ekki ég og ég er ekki hann og hvorugt okkar er afgreiðsludama í Apóteki. Hann þagði í tvo daga á eftir.

Ég sem sagt ákvað að blanda naglalakk sem passar við þennan frábæra gloss sem ég keypti og það tókst! Verst að ég bjó til svo lítið af því að ég kláraði það á öðrum degi, enda er ég alltaf að naglalakka mig. Ég hef komist að því að ef ég er sínkt og heilagt með blautar neglur slepp ég við þrif, matseld og ýmislegt annað annoying. Allavega þangað til Tóti sleppir sér, fer að tæta hár sitt og skegg og hóta að klippa neglurnar af mér þegar ég sef. Hann reyndi að hóta mér, um daginn, að fara að naglalakka sig sjálfur og ég færði honum naglalakk skúffuna. Ég veit betur en svo að það yrði kaldur dagur í helvíti þegar Tóti fer að mæta naglalakkaður í vinnuna. Það dugar honum, for now, að gera grín af mér þegar ég baða út höndunum og hristi þær fram á aftur til að þurrka naglalakkið.

Á morgun fæ ég útborgað og ég fer beint strik niður í Apóteki að leita að afgreiðslukonunni góðu til að finna naglalakk sem passar við Flynn Boyle glossinn minn. Ég mun ekki taka Tóta með...


| anna | 10:48 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web