www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ísland?
Miðvikudagur, 05. mars 2003

Ég rankaði við mér í hádeginu heima hjá mér að borða afganginn af baunasúpunni sem ég hef einhvernvegin orðið mér út um í gær. Magnað. Jæja, ég fann gamalt Dagblað og þegar ég var að lesa það rakst ég á mjög áhugaverða grein. Ég man ekkert hver skrifaði hana en viðkomandi blöskrar íhaldsemi íslendinga og vill að við breytum nafni landsins í eitthvað aðeins meira aðlaðandi fyrir túrista en ís-land. Ég veit ekki af hverju nafnið pirrar manninn svona gríðarlega. Nú. Þó að mér þyki vænt um nafnið Ísland þá er ég alveg sammála þessum manni en vil ganga skrefi lengra. Ég segi að við tökum upp nýtt nafn og kennitölu fyrir landið. Setjum "Ísland" í gjaldþrot og byrjum upp á nýtt. Ég get ekki betur séð en að það sé það þjóðlegasta sem við getum gert í stöðunni og ekki væri úr vegi að lækka skatta í framhaldinu. Svo má ekki má gleyma öllum túristunum sem hægt verður að lokka aftur í heimsókn hingað sem fatta ekki að við höfum bara breytt um nafn. Þá er bara spurningin um hvað skerið á að heita, einhverjar tillögur?


| anna | 15:26 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web