Mánudagur, 10. febrúar 2003
Ég hef fundið upp nýjan tannhreinsi-kúr sem stuðlar að minni tannskemmdum og mjórra mittismáli.
Þannig er mál með vexti að tannlæknirinn minn sagði mér að kaupa ákveðið munnskol sem á að drepa þaulsetnustu karíusana og baktusana upp í mér en ég má ekki nota munnskolið fyrr en a.m.k. hálftíma eftir að ég er búin að bursta tennurnar. Ástæðan fyrir því mun vera að tannkrem innihalda eitthvað efni sem minnkar virkni munnskolsins og mér veitir víst ekki af fullri virkni.
Þetta skapar ákveðið vandamál. Ég er vön að bursta tennurnar rétt áður en ég fer að sofa og það slítur svo í sundur svefninn hjá mér ef ég þarf að vakna eftir hálftíma til að nota munnskol. Auk þess sem ég er svo sljó þegar ég er nývöknuð að ég gæti kyngt þessu dóti en það er víst baneitrað og ekki ætlað til manneldis.
Ég þori ekki öðru en að hlýða tannlækninum því hann sagðist ætla að bíta mig ef ég reyndi einhver brögð svo ég varð að finna lausn á þessu.
Já, ég gleymdi. Hann sagði mér líka að nota tannþráð. Ég er ekki svona manneskja sem nýt þess að standa upp á endann inná baði, nota tannþráð og tannbursta mig á eftir. Ég er almennt mjög á móti því að standa í lappirnar meira en bráðnauðsynlegt er. Jæja. Eina leiðin fyrir mig var að gera þetta á meðan ég horfði á sjónvarpið. T.d. í gær, á meðan The Practice var á Skjá einum, notaði ég tannþráð samviskusamlega út um allan munn og þegar fjórða auglýsingahléið kom þá fór ég inn á bað og tannburstaði mig.
Þetta er ég búin að gera núna í tvær vikur og viti menn! Tvö kíló farin. Þegar ég er búin að bursta tennurnar þá get ég ekki verið að borða og drekka, ja.. nema þá kannski vatn. Því ekki nenni ég að nota helv. tannþráðinn og tannburstan aftur. For-gleym-it!
Ég er sem sagt hætt að borða á kvöldin og árangurinn lætur ekki á sér standa. Ég er búin að reikna út að ég hverf eftir 63 vikur með þessu áframhaldi. Hvern ætla menn að rukka þá? MUHAHAHAHAHAHAHA