www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Af veðri
Miðvikudagur, 12. febrúar 2003

Hvernig er hægt að kalla það sem gengur á fyrir utan gluggana hérna hvassa suðaustanátt og rigningu? Mér finnst ég vera í miðjum hvirfilbyl sem er við það að ná hámarki!

Ég væri ekki svona stressuð ef svalahurðin væri ekki búin að fjúka upp 5 sinnum í roki hérna. Búið að lappa upp á hana með styrktar stál plötum og fleira fíneríi. Við hættum að geta lokað hurðinni, með þar til gerðu handfangi sem upprunalega "fylgdi" henni, í fyrra. Þá voru settar á hurðina tvær gluggakrækjur og þær eru það eina sem eiga að koma í veg fyrir að hurðin fjúki upp og hvirfilbylurinn komi inn í stofu til mín. Gaman, gaman.

Það bíður mín sem sagt andvökunótt. Ég gæti grátið. Djöfull öfunda ég Tóta og krakkana þar sem þau hrjóta steinsofandi upp í rúmi og hafa ekki grænan grun um að það sé veður dauðans úti.


| anna | 1:00 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web