Sunnudagur, 26. janúar 2003
Ég er búin að skrá mig í fjarnám í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Af hverju gerði ég það? Ég gerði það í endalausri viðleitni minni í að gera mig að betri manneskju. Líka af því það sendir mér aldrei neinn tölvupóst nema miskunnarlausir spammarar og mér leiðist að fá aldrei póst. Ég skráði mig í skólann í þrjú fög, borgaði skólagjöldin, keypti bækurnar og er byrjuð að skila verkefnum. Fyrsta verkefnið sendi ég á póstlista viðkomandi fags en ekki kennarann. Það mun vera sveimhuginn Anna að verki.
Ég taldi mig hafa skráð mig í Tjáningu, íslensku og næringarfræði. Rak þessvegna upp stór augu þegar ég fór að fá póst vegna söguáfanga sem ég taldi mig ekki vera skráða í. Þegar betur betur var að gáð kom í ljós að ég skráði mig líka í sögu, ég var bara búin að gleyma því. Magnað.
Ég er hinsvegar búin að kaupa sögubókina og búin að skila fyrsta verkefninu til kennarana, á rétt netfang og allt! Anna dugleg í dag hehehe Nú er ekkert annað að gera en að finna eitthvað fyrir börnin að taka til svo GameBoy losni og ég geti leikið mér....
oj hvað maður er vondur.