www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Endurreisn
Fimmtudagur, 23. janúar 2003

I'm back.

Þessi janúar virðist ætla að vera hálfgerður endurreisnarmánuður hjá mér. Ég fór í klippingu í fyrsta skipti í hálft ár hjá Elínu vinkonu minni sem brást ekki bogalistin frekar en fyrri daginn og gerði mig æðislega flotta. Verst að ég þarf að þvo mér um hárið því ég get ekki blásið á mér hárið eins flott og hún getur...

Fór líka til tannlæknis. Þessi lota mun kosta mig 109.876,50 Euroreikningur síðasta mánaðar er líka 109.876,50, mig vantar 109.876,50 til að klára að borga yfir-yfirdráttarheimildina mína og nýjustu útreikningar mínir sýna að ég verð 109.876,50 ára þegar ég er búin að borga upp allt sem ég skulda. Mér líður eins og Otto í Der Film.

Tannlæknirinn sýndi mér karíus og baktus sem hafa numið land á tönnunum á mér. Öllum nema þeim sem þeir voru búnir að rústa gjörsamlega og ég er löngu búin að fá krónu á. Gleði. Ég þurfti að komast til tannlæknis "í gær". Þegar ég hringdi og símadaman spurði mig: "Er þér sama þótt þú fáir tíma hjá Jóni?" (en Jón er ekki minn tannlæknir) "Ef hann getur kysst á bágtið er ég sátt" svaraði ég. Hún hló og bókaði tíma samdægurs hjá Jóni. Ég ætla alltaf að vera hjá Jóni tannlækni. Hann er yngri en ég, fjallmyndalegur, fyndin, blístrar og syngur með útvarpinu. Hann talar líka sama tungumál og ég. Talar um karíus og baktus og að maður verði að nota tannþráð þó að það sé ekkert kjöt fast á milli tannanna eða appelsína. Það þarf að segja mér suma hluti svona simplified til að ég skilji þá. Án gríns. Ég er búin að fara í tvo tíma hjá honum, búin að sjá röngenmyndir af rjúkandi rústunum sem eru uppí mér og karíus og baktus berum augum. Ojojoj. Ekki gaman.

Annars þori ég að veðja fimmtíu kalli að það kosti 109.876,50 að fara í brjóstaminnkun, en það er eina lýtaaðgerðin sem ég gæti hugsað mér að fara í. Nú eða kannski permanent háreyðingu á fótleggjunum. Það kostar örugglega eina milljón níutíu og átta þúsund sjöhundruð sextíu og fimm krónur. Eða permanent háreyðingu á efri vörinni... eða nosejob.... eða fitusog... eða

Skelli mér kannski í húðhreinsun í lok mánaðarins og læt það gott heita. Vonandi fer það ekki langt yfir 9.876,50....


| anna | 22:31 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web