Miðvikudagur, 29. janúar 2003
Var hjá tannlækninum aftur í dag. Við komum að samkomulagi um að ég myndi bara mæta annan hvorn dag fram að sextugu. Það er ágætt fyrirkomulag. Verst er að ég fæ svo mikinn verk í kjálkann þegar ég þarf að hafa munninn opinn klukkutímunum saman.
Hvítu tönnunum fjölgar og er staðan orðin 26:3 þeim í vil. Þegar ég hóf píslagöngu mína í þetta skiptið var staðan 20:9. Af þessum hvítu eru fjórar krónur. Ég verð að lifa til áttrætt fyrst ég er að leggja út í svona massíft viðhald. Í dag kenndi hann mér að bursta tennurnar, eitthvað sem ég hafði aldrei lært. Magnað. Um hversu fast maður á að bursta sagði hann orðrétt: "þú ert ekki að bursta tennurnar í burtu heldur sýklana". Þetta var mér ekki kunnugt um. Þ.e. mér var ekki kunnugt um að maður þyrfti ekki að bursta mjög fast. Annaðhvort hef ég verið með hellu (ekki ólíklegt) þegar þetta var kennt í skóla eða hjá tannlækni eða eitthvað. Ég missti allavega af því.
Finnst samt eiginlega glatað að flottasta tönnin mín sé endajaxlinn vinstra megin. Hver sér það? Ræfilskúnnarnir sem komu í dag fengu allir að vita að ég talaði ekki alltaf svona, ég væri bara með deyfingu í hálfum munninum og tungunni. Svo sýndi ég þeim flottu tönnina mína og þeir fölnuðu upp og umluðu eitthvað og fóru út. Vinnufélagarnir tóku þessu miklu betur, enda vanir að eiga við mig. Svo fór deyfingin. Ó boj. Sársaukinn! Ég grét í lyklaborðið. Tók parkodin og gleði mína stuttu seinna.
Ég skilaði verkefni í söguáfanganum sem ég er í og fékk 8,5 fyrir herlegheitin. Frekar gott þar sem ég misskildi eina spurninguna og svaraði henni rétt, á mínum forsendum. Það á því sérstaklega vel við (ekki gleyma að ég er ennþá með hellu fyrir hægra eyranu) núna það sem ég sagði einhverntímann: "Það sem ég heyri rétt það misskil ég". Glatað að þetta eigi líka við um það sem ég les.
Að lokum.
Ég er með skoðun á þessu Búnaðarbanka/Norðurljósa máli. Búnaðarbanka viðskiptavinir! Söfnum liði! Ráðumst á útibúin og rífum skuldabréfin okkar!! Eitt af því gagnlegasta sem ég lærði í Iðnskólanum eftir rúmlega þriggja ára veru þar var að ef skuldabréf er rifið í tvennt þá er það ógilt. Þessir menn eru ekki heiðarlegir og þá skulum við ekki vera það heldur! Árás!!!!! Take no prisoners! KILL KILL KILL
MUHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA