www.anna.is
ravings of a lunatic í janúar 2003
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Endurreisn
Fimmtudagur, 23. janúar 2003

I'm back.

Þessi janúar virðist ætla að vera hálfgerður endurreisnarmánuður hjá mér. Ég fór í klippingu í fyrsta skipti í hálft ár hjá Elínu vinkonu minni sem brást ekki bogalistin frekar en fyrri daginn og gerði mig æðislega flotta. Verst að ég þarf að þvo mér um hárið því ég get ekki blásið á mér hárið eins flott og hún getur...

Fór líka til tannlæknis. Þessi lota mun kosta mig 109.876,50 Euroreikningur síðasta mánaðar er líka 109.876,50, mig vantar 109.876,50 til að klára að borga yfir-yfirdráttarheimildina mína og nýjustu útreikningar mínir sýna að ég verð 109.876,50 ára þegar ég er búin að borga upp allt sem ég skulda. Mér líður eins og Otto í Der Film.

Tannlæknirinn sýndi mér karíus og baktus sem hafa numið land á tönnunum á mér. Öllum nema þeim sem þeir voru búnir að rústa gjörsamlega og ég er löngu búin að fá krónu á. Gleði. Ég þurfti að komast til tannlæknis "í gær". Þegar ég hringdi og símadaman spurði mig: "Er þér sama þótt þú fáir tíma hjá Jóni?" (en Jón er ekki minn tannlæknir) "Ef hann getur kysst á bágtið er ég sátt" svaraði ég. Hún hló og bókaði tíma samdægurs hjá Jóni. Ég ætla alltaf að vera hjá Jóni tannlækni. Hann er yngri en ég, fjallmyndalegur, fyndin, blístrar og syngur með útvarpinu. Hann talar líka sama tungumál og ég. Talar um karíus og baktus og að maður verði að nota tannþráð þó að það sé ekkert kjöt fast á milli tannanna eða appelsína. Það þarf að segja mér suma hluti svona simplified til að ég skilji þá. Án gríns. Ég er búin að fara í tvo tíma hjá honum, búin að sjá röngenmyndir af rjúkandi rústunum sem eru uppí mér og karíus og baktus berum augum. Ojojoj. Ekki gaman.

Annars þori ég að veðja fimmtíu kalli að það kosti 109.876,50 að fara í brjóstaminnkun, en það er eina lýtaaðgerðin sem ég gæti hugsað mér að fara í. Nú eða kannski permanent háreyðingu á fótleggjunum. Það kostar örugglega eina milljón níutíu og átta þúsund sjöhundruð sextíu og fimm krónur. Eða permanent háreyðingu á efri vörinni... eða nosejob.... eða fitusog... eða

Skelli mér kannski í húðhreinsun í lok mánaðarins og læt það gott heita. Vonandi fer það ekki langt yfir 9.876,50....


| anna | 22:31 | permalink | comments (0) |
þakkir
Fimmtudagur, 23. janúar 2003

BTW. Bókabúð Jónasar á Akureyri rokkar. Takk fyrir mig.


| anna | 22:47 | permalink | comments (0) |
skilningur
Föstudagur, 24. janúar 2003

Þegar ég og maðurinn minn rífumst á hann til að segja eftirfarandi setningu í tilheyrandi uppgjafatón: "Ég bara skil þig ekki." Ég hef þessvegna skráð mig í fjarnám í tjáningu í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Ég vonast til þess að þegar þessum áfanga er lokið geti ég rifist skýrt og skilmerkilega við hann. Ég kemst að minnsta kosti að því hvort það er talsmáti minn sem hann skilur ekki eða innihald þess sem ég er að segja...


| anna | 19:34 | permalink | comments (0) |
Hella
Föstudagur, 24. janúar 2003

Eins og ég hef minst á hér á síðunni er ég í yfirhalningu hjá tannlækni. Aðdragandi þess að ég endaði í stóli kvalarans var að ein tönnin í mér brotnaði fyrir einhverju síðan. Á Þorláksmessu fór ég að fá verk í hægra eyrað. Ég vissi ósköp vel að þetta voru byrjunareinkenni á tannpínu dauðans svo ég hringdi í heimilislækninn minn og bað hann um að skrifa upp á verkjatöflur fyrir mig. Ég tók sérstaklega fram að ég vildi ekki vera slefandi í lyfjarússi yfir Jólin og stakk hann upp á "combo"; parkodin og ibufen. Gleði.

Jólin komu og fóru og verkurinn kom og fór. Verkurinn kom aftur og fór... og kom aftur og fór. Það var svo aðfaranótt mánudags í þessari viku sem verkurinn sótti verulega í sig veðrið og ég sá mig tilneydda að fara til...... háls nef og eyrnalæknis. Þrátt fyrir að undir niðri vissi ég ósköp vel að ég væri með tannpínu sem leiddi út í eyrað. Svona getur afneitun verið svakaleg. Ég mætti á Landsspítalann í Fossvogi sem ég kalla reyndar ennþá Borgarspítalann. Þar var skoðað í eyrun á mér, kokið og nefið. Þrýstingur í eyrunum var mældur og ég heyrnamæld. Fékk 10 í einkunn. Ég er við fullkomna háls, nef og eyrnaheilsu. Þegar ég kom út í bíl pantaði ég tíma hjá tannlækni og resting er history hér í fyrra bloggi.

Það furðulega gerðist hinsvegar að þegar ég var á leiðinni heim frá tannlækninum með viðgerða tönn, þá fékk ég hellu fyrir hægra eyrað sem virðist vera eins og stöð 2, "Kominn til að vera." Hellan á ég við.

Ég er sem sagt búin að hafa hellu fyrir hægra eyranu í fjóra daga og í dag, á fimmta degi, breyttist hellan í magnara. Lýsir sér þannig að eina stundina heyri ég nánast ekkert og hina má ekki hvísla nálægt mér þá er eins og öskrað sé í eyrað á mér.

Ekki er vinstra eyrað heldur al-heilbrigt þessa dagana. Ég fann eitthvað helv. þykkildi á eyrnasneplinum þegar ég var hjá mömmu í heimsókn á fimmtudagskvöldið og tel líklegt að ég muni deyja bráðlega úr krabbameini í eyra. Það væri alveg klassískt fyrir mig að deyja úr einhverju jafn asnalegu og krabbameini í eyra. Það hefur örugglega ekki komið fyrir nokkurn mann!

Rifjast ekki skyndilega upp fyrir mér atvik úr frumbernsku minni. Ég vaknaði upp einn morguninn þegar ég var u.þ.b. 17 ára og var eitthvað að klóra mér í hausnum þegar ég fann eitthvað... einhverja kúlu eða eitthvað. Ég settist upp í rúminu og vissi í hjarta mínu að ég væri komin með heilaæxli og ætti örugglega stutt eftir. Pantaði mér tíma hjá heimilislækninum og beið í ofvæni eftir að dagurinn sem ég fengi undirritaðan dauðadóm rynni upp. Þegar ég mætti hjá lækninum var ég búin að skrifa erfðarskrá og gera aðrar nauðsynlegar ráðstafanir. Systir mín erfði fötin mín og núverandi maðurinn minn plöturnar mínar. Fleiri eignir átti ég nú ekki. Ég settist í stólinn og tilkynnti honum að ég væri með heilaæxli sem yxi með ógnarhraða út úr hnakkanum á mér. Hann horfði á mig, stóð rólega á fætur og gekk hægt að mér. Hann fór að þreifa á hausnum á mér og var í heila eilífð að þukla og þreifa á hnakkanum á mér. Svo sagði hann: "Hmmm... þetta er skrítið. Þetta eru eins kúlur báðu megin." Christ. Svo hló hann bara að mér og sagði að það væri eðlilegt að vera með kúlur og misfellur á hausnum. Ég er ennþá á lífi. Skipti samt stuttu seinna um heimilislækni...


| anna | 19:59 | permalink | comments (0) |
fjarnám
Sunnudagur, 26. janúar 2003

Ég er búin að skrá mig í fjarnám í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Af hverju gerði ég það? Ég gerði það í endalausri viðleitni minni í að gera mig að betri manneskju. Líka af því það sendir mér aldrei neinn tölvupóst nema miskunnarlausir spammarar og mér leiðist að fá aldrei póst. Ég skráði mig í skólann í þrjú fög, borgaði skólagjöldin, keypti bækurnar og er byrjuð að skila verkefnum. Fyrsta verkefnið sendi ég á póstlista viðkomandi fags en ekki kennarann. Það mun vera sveimhuginn Anna að verki.

Ég taldi mig hafa skráð mig í Tjáningu, íslensku og næringarfræði. Rak þessvegna upp stór augu þegar ég fór að fá póst vegna söguáfanga sem ég taldi mig ekki vera skráða í. Þegar betur betur var að gáð kom í ljós að ég skráði mig líka í sögu, ég var bara búin að gleyma því. Magnað.

Ég er hinsvegar búin að kaupa sögubókina og búin að skila fyrsta verkefninu til kennarana, á rétt netfang og allt! Anna dugleg í dag hehehe Nú er ekkert annað að gera en að finna eitthvað fyrir börnin að taka til svo GameBoy losni og ég geti leikið mér....

oj hvað maður er vondur.


| anna | 17:39 | permalink | comments (0) |
afsakanir
Sunnudagur, 26. janúar 2003

Já. Hvað varðar nýju anna.is síðuna þá er hún ennþá í vinnslu og ég reikna með því að hún verði það í einhverja mánuði í viðbót. Sé til hversu productive ég verð um páskana...


| anna | 17:44 | permalink | comments (0) |
sledge hammer
Sunnudagur, 26. janúar 2003

ó! Gleymdi að setja inn link á soldið sem heitir www.sledgehammeronline.com Snilld frá A til Ö.


| anna | 17:46 | permalink | comments (0) |
af tannlæknum
Miðvikudagur, 29. janúar 2003

Var hjá tannlækninum aftur í dag. Við komum að samkomulagi um að ég myndi bara mæta annan hvorn dag fram að sextugu. Það er ágætt fyrirkomulag. Verst er að ég fæ svo mikinn verk í kjálkann þegar ég þarf að hafa munninn opinn klukkutímunum saman.

Hvítu tönnunum fjölgar og er staðan orðin 26:3 þeim í vil. Þegar ég hóf píslagöngu mína í þetta skiptið var staðan 20:9. Af þessum hvítu eru fjórar krónur. Ég verð að lifa til áttrætt fyrst ég er að leggja út í svona massíft viðhald. Í dag kenndi hann mér að bursta tennurnar, eitthvað sem ég hafði aldrei lært. Magnað. Um hversu fast maður á að bursta sagði hann orðrétt: "þú ert ekki að bursta tennurnar í burtu heldur sýklana". Þetta var mér ekki kunnugt um. Þ.e. mér var ekki kunnugt um að maður þyrfti ekki að bursta mjög fast. Annaðhvort hef ég verið með hellu (ekki ólíklegt) þegar þetta var kennt í skóla eða hjá tannlækni eða eitthvað. Ég missti allavega af því.

Finnst samt eiginlega glatað að flottasta tönnin mín sé endajaxlinn vinstra megin. Hver sér það? Ræfilskúnnarnir sem komu í dag fengu allir að vita að ég talaði ekki alltaf svona, ég væri bara með deyfingu í hálfum munninum og tungunni. Svo sýndi ég þeim flottu tönnina mína og þeir fölnuðu upp og umluðu eitthvað og fóru út. Vinnufélagarnir tóku þessu miklu betur, enda vanir að eiga við mig. Svo fór deyfingin. Ó boj. Sársaukinn! Ég grét í lyklaborðið. Tók parkodin og gleði mína stuttu seinna.

Ég skilaði verkefni í söguáfanganum sem ég er í og fékk 8,5 fyrir herlegheitin. Frekar gott þar sem ég misskildi eina spurninguna og svaraði henni rétt, á mínum forsendum. Það á því sérstaklega vel við (ekki gleyma að ég er ennþá með hellu fyrir hægra eyranu) núna það sem ég sagði einhverntímann: "Það sem ég heyri rétt það misskil ég". Glatað að þetta eigi líka við um það sem ég les.

Að lokum.
Ég er með skoðun á þessu Búnaðarbanka/Norðurljósa máli. Búnaðarbanka viðskiptavinir! Söfnum liði! Ráðumst á útibúin og rífum skuldabréfin okkar!! Eitt af því gagnlegasta sem ég lærði í Iðnskólanum eftir rúmlega þriggja ára veru þar var að ef skuldabréf er rifið í tvennt þá er það ógilt. Þessir menn eru ekki heiðarlegir og þá skulum við ekki vera það heldur! Árás!!!!! Take no prisoners! KILL KILL KILL
MUHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA


| anna | 20:33 | permalink | comments (0) |
andleysi
Miðvikudagur, 29. janúar 2003

Já og þetta með aukalagið, getraunina og allt það.... Ég er bara eitthvað svo andlaus þessa dagana.... og ég nenni ekki að finna fleiri afsakanir í bili.


| anna | 20:34 | permalink | comments (0) |

ravings í janúar 2003
monthly archive

links
blogs
links - web