www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Topp fimm
Mánudagur, 02. desember 2002

Fólk höfðar mis vel til mín. Leikarar eru líka fólk og leikarar höfða mis vel til mín. Topp fimm yfir glötuðustu gæja ever:

Brad Pitt. Fór honum mjög vel að vera aumingi í myndinni "True Romance". Pain in the ass í flestum öðrum myndum sem maðurinn hefur látið sjá sig í. Það sem pirrar mig mest? Augun.

Tom Cruise. Lítill, ljótur og gjörsamlega óþolandi í flestum myndum sem ég hef séð hann í NEMA "Interview with a vampire" sem ég filaði hann í. Enda var hann með ömurðina Pitt sem co star og ekki erfitt að leika hann í spað. Það sem pirrar mig mest? Brosið og nefið náttúrlega...

Russel Crowe. Átti sprett í LA Confidential en common.. gef leikstjóranum það... enda fékk Basinger Óskarinn fyrir frammistöðu sína í myndinni. Þar fyrir utan... sjálfumglaður Ástrali. Væri best geymdur í Nágrönnum. Samt.. eini maðurinn á listanum sem hægt er að kalla karlmann. Það sem pirrar mig mest? Augun.


Það er mér sönn ánægja að kynna einn glataðasta manninn á listanum: Matt Damon. Þegar hann og bakkabróðir hans Ben Affleck urðu frægir fyrir að skrifa handrit (sem ég held reyndar að þeir hafi drepið einhvað bókmenntanörd fyrir) sannfærðist ég endanlega um að allir geta orðið stjörnur. Það sem pirrar mig mest? Brosið.

Last but NOT least. Ein sú mesta ömurð sem dragnast hefur á hvíta tjaldið að mínu mati er engin annar en David Caruso. Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja við að dissa þennan mann. Ég fæ grænar bólur þegar ég sé hann. Held að það sé að hluta til að þakka mínum fyrirbænum að hann meikaði það ekki í kvikmyndum og hundskaðist aftur í sjónvarp. Maðurinn er gjörsamlga hæfileikalaus og ekkert nema tilgerðin. Ef við David værum síðustu manneskjurnar á lífi á jörðinni myndi mannkynið deyja út.
Það sem pirrar mig mest? Allur pakkinn.

Þá er það komið. Listi yfir þá flottustu næst....


| anna | 23:08 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web