Mánudagur, 02. desember 2002
Ég á það til að elda... veit að það fer hrollur um Dórið núna en já, ég á það til að elda. Ég á það til að elda mjög góðan mat. Ég á það líka til að elda framandi mat alveg óvart.
Í minni fjölskyldu kallast "Chicken Noodle Soup" á íslensku "Ormasúpa". Gæti samt ekki hugsað mér að taka þátt í Fear Factor og efast um að krakkarnir mínir væru til í það heldur. Ég elda líka stundum krókódílakássu, eða það sem landsmenn myndu kalla pottrétt. Krakkarnir mínir borða lamba og nautakjöt líka bara... krókódílakjöt er skemmtilegra, þú skilur...
Þeir segja að börnin manns læri það sem fyrir þeim er haft. í gær, þegar ég setti heilsteiktan kjúkling á eldhúsborðið hrópaði sonur minn: "VEI! Froskur í matinn!!!