www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Frailty
Föstudagur, 06. desember 2002

Við horfðum á myndina Frailty í gær og ég hef ekki enn getað hætt að hugsa um hana.

Myndin fjallar um geðveika einstaklinga og einstaklinga sem fá köllun frá Guði. Sami hluturinn? Þessi mynd fær mann til að hugsa um hvort það sé munur á þessu tvennu og ef það er munur... þá þarf maður að endurskilgreina ýmislegt... [eitt skemmtilegasta orð sem ég veit um er "ef", það bíður upp á svo mikla möguleika]

Fannst strákarnir í myndinni ekkert skila sínu hlutverki of vel. Voru allavega ekki alveg nógu sannfærandi fyrir minn smekk. Mæli samt með þessari þó hún sé róleg og á köflum fyrirsjáanleg. Því þótt hún sé fyrirsjáanleg þá trúir maður stundum ekki fyrr en maður sér... auk þess sem Matthew McConaughey er góður.


| anna | 14:11 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web