www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Af klósettsetum
Föstudagur, 20. desember 2002

Það er komin föstudagur.

Ég sit hér við vélina mína í góðum félagsskap Bacardi, Coke og Camel Lights. Ég er búin að vera hriiiikalega upptekin síðan ég horfði á Frailty. Aðallega við að hugsa um myndina og analísa. Vonandi fattar vinnuveitandi minn það ekki því ég er búin að hringja inn veik á hverjum degi síðan og sé ekki fram á að mæta aftur í bráð. Flókin mynd maður!

Þetta var náttúrlega haugalygi allt saman. Horfði hinsvegar á Donny Darko um daginn og ef einhver getur útskýrt fyrir mér hvað hún þýðir.. ef eitthvað.. þá væri ég þakklát. Creepy kanína.

Síðasti föstudagur, föstudagurinn 13. desember, var mjög viðburðaríkur hjá mér sem var ekki leiðinlegt. Ég byrjaði á því að mæta til vinnu. Það veit aldrei á gott. Þegar klukkan var fimm fór ég heim, byrjaði reyndar á því að koma við í Melabúðinni og versla mér Coke og Camel Lights því ég var að fara á Þingvelli á jólahlaðborð í boði vinnustaðar mannsins míns. Tengdamamma var búin að sækja krakkana, kallinn ennþá í vinnunni svo ég sá fram á a.m.k. tvo quality klukkutíma ein með sjálfri mér.

Skellti mér í bað. Að því loknu blandaði ég mér í glas og kveikti mér í unaðslegri sígarettu sem ég reykti í hægindarstólnum inní stofu. Allt var hljótt nema snarkið í glóðinni. Það er á svona stundum sem maður spyr sjálfa sig: "Hvað var maður nú að gifta sig og eignast börn þegar maður getur haft það svona gott ein með sjálfri sér?"

Setti killer playlista af stað og tjúnaði í botn. Fór í "Ég er Jennifer Lopez" mode og setti á mig andlit. Í GÓÐUM fíling. Kallin kom heim, fór í bað. Ég var komin á annað glasið í góðum fíling, eins og komið hefur fram, og ákvað að setjast hjá honum og kjafta við hann á meðan hann var í baði. BIG MISTAKE.

Ég svíf inn á baðherbergi og hlamma mér niður á klósettið. KRATZ! Festingin á klósettsetunni gaf sig og ég datt næstum ofan í klósettið.

Tóti: "Af hverju varstu nú að þessu?"
[ég þoli ekki þegar hann gerir þetta. Ég geri ekki svona lagað af ásettu ráði]
"Ég braut klósettið" styn ég svo loks upp þegar ég átta mig á því hvað hefur gerst. Rýk fram og kíki í "full body length" spegilinn okkar og sjá.. ég lít ekki út fyrir að vera kona sem brýtur klósett með því að setjast á þau. Mér líður aðeins betur. Fer inn á bað. Setan og lokið lafa niður af annarri klósett hliðinni. Shitt maður, segi ég og reyni að lappa aðeins upp á settið. Djöfull. "Braustu klósettið?" spyr Tóti vantrúaður blindur án gleraugna í baðinu.
"Já, ég braut klósettið" segi ég í forundran. "Magnað."

Ég náði mér fljótlega og taldi mér og Tóta trú um að það væri örugglega hægt að kaupa svona klósettsetu-festingar í BYKO, en það vill einmitt svo skemmtilega til að þessi ákveðna klósettseta, ásamt festingum, var keypt í BYKO fyrir ekki svo löngu síðan.

Við tókum gleði okkar og héldum af stað í geimið. Geimið byrjaði á rútuferð til Þingvalla. Eins og hjá venjulegum íslenskum vinnustaða hóp, sem fer í rútu með mökum, var lítið um stuð á leiðinni á Þingvelli. Áður en við lögðum af stað var nikótín plástrum dreift á þá sem töldu sig þurfa á þeim að halda. Allir fengu sér nikótín, enda í boði hú.. rútunnar.

Þegar á Þingvelli var komið var haldið beint á barinn. Fékk mér Bacardi og hot shot. Kjaftaði við fólk. Fékk mér Bacardi. Kjaftaði við fólk. Fékk mér Bacar.. ha? er komin matur? Fengum okkur sæti og gerðum okkur tilbúin fyrir Oliver Twist fílingin sem er óumdeilanlegur fylgifiskur hlaðborða. Allavega fyrir þann sem lendir í því að uppstúfið með kartöflunum er búið þegar röðin er komin að honum og viðkomandi má standa með diskinn sinn og bíða eftir að kokkurinn komi færandi hendi með meira. Í þetta skipti var það mitt hlutskipti í lífinu. Ég beið og uppskar uppstúf og eina kartöflu.

Í heildina veiddi ég hálft laufabrauð, Barbie stærð af paté, tvær áleggsþunnar hangikjötsneiðar og uppstúf með einni kartöflu á diskinn minn.

Þetta segir meira um mig en hlaðborðið á Þingvöllum.

Þegar ég var búin með allt nema paté-ið var ég dregin á barinn af manninum mínum. Fékk mér Bacardi. Kjaftaði við fólk. Fékk mér Bacardi. Kjaftaði við fólk. Ha? Er rútan að fara? Ertekkað djóka? Hvað er klukkan? Ég gleymdi að borða meira! Bömmer...

Haldið var í bæinn og Laugarvegurinn þræddur með viðkomu á helstu börum sem ég veit ekkert hvað heita. Fékk mér Bacardi. Kjaftaði við fólk.

Við hjónin komum heim klukkan fimm um nóttina og hvað gerðum við? Við pöntuðum okkur pizzu. Snilldar endir á snilldar kvöldi.

Verð að láta kveðju fylgja til hans Odds hjá lagnadeild BYKO í Kópavogi, sem átti festingar á setuna sem ég braut, seldi mér þær og var hrikalega myndalegur á meðan. Var eitthvað að setja út á að ég lét kallinn borga, en Oddur vissi ekki... að það var ég sem fékk að skipta um festingarnar...


| anna | 23:27 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web