Miðvikudagur, 04. desember 2002
Ég lá í baði áðan og Tóti var nýbúin að raka sig. Á handklæðarekkanum voru tvö handklæði. Eitt grænt og eitt hvítt, bæði meðal stór. Ég hafði gleymt handklæði, eins og vanalega og leit hýru auga á hvíta handklæðið sem Tóti var nýbúin að hengja upp eftir að hafa þurrkað sér í framan með því eftir raksturinn.
Anna: Má ég fá hvíta handklæðið sem þú varst að nota?
Tóti: Ætlar þú að þurrka þér með því?
Anna: Já.
Tóti: Ég var að nota það.
Anna: Ég veit, má ég ekki nota það á eftir þér, varstu ekki bara að þurrka þér í framan?
Tóti: Nú er það orðið hand-handklæði.
Anna: Ha?
Tóti: Þú veist, fyrir hendur.
Anna: Má ég ekki nota það? Er það skítugt?
Tóti: Viltu ekki fá stórt handklæði?
[tekur hvíta handklæðið og dustar það fram í öllu sínu veldi] Þetta er lítið.
Anna: Það er alveg nógu stórt fyrir mig.
Tóti: [brýtur það aftur vandlega saman og leggur það á handklæðastandinn aftur] Ertu að hlífa þér við niðurlægingunni að biðja mig um stórt handklæði?
Anna: [hlæjandi] Hef ég einhverntíman átt í vandræðum með að biðja þig um að ná í handklæði fyrir mig? [for the record, þá gerist það í 98% tilfella sem Anna fer í bað]
Tóti: Þetta er lítið handklæði.
Anna: Er það skítugt?
Tóti: Ég var að nota það framan í mig.
Anna: Ég veit það. Er ekki allt í lagi með það, ég meina þú skeindir þér ekki á því?
Tóti: hlær
Anna: Má ég ekki nota það?
Tóti: Það er orðið hand-handklæði.
Anna: En þetta græna? Má það ekki vera áfram hand-handklæði?
Tóti: [er komin með græna handklæðið í hendurnar] Nei, núna er græna handklæðið orðið gólf handklæði fyrir þig þegar þú kemur upp úr baði.
[breiðir úr græna handklæðinu á gólfinu fyrir framan baðið]
Anna: Hvíta handklæðið var nógu gott fyrir þig þegar þú komst upp úr baði áðan? Má ég ekki nota það líka?
Tóti: Nei ég notaði annað handklæði. Þegar ég er búin að raka mig þá nota ég hreint og þurrt handklæði því annars fer kusk og svoleiðis framan í mig, svo þegar ég er búin að þurrka mér í framan þá verður það handklæði hand-handklæði og fyrra hand-handklæðið verður gólf handklæði. Þekkir þú ekki ferlið? [réttir Önnu stórt handklæði]
Anna: Þú ert að djóka?
Tóti: hehehehehe.. ehm... nei
Anna: Hvað kemur fyrir græna handklæðið þegar ég er búin að stíga á það og þurrka mér?
Tóti: Þá fer það í þvott.
Anna: Aha... ok.