Miðvikudagur, 06. nóvember 2002
ok ég er ekki að grínast þegar ég segi að ég er búin að vera að DREPAST úr harðsperrum síðan í tímanum hjá henni Fjólu á mánudagskvöldið. Að vissu leyti er ég glöð og ánægð yfir því að finna fyrir því að ég er með vöðva og allt það... bara.. göngulagið mitt er eins og ég sé búin að... ég veit ekki hvað... [ég veit það alveg, og þú veist það líka... ég ætla bara ekki að skrifa það] og það er ekkert gaman!
Ég lifi samt í voninni um að eftir tíman í kvöld þá skáni limaburðurinn hjá mér. Það er varla að ég þori að ganga upp í Þrekhús því ég gæti orðið örmagna á leiðinni heim...
Annars fórum við að sjá myndina Halloween Resurrection í gær. Það var ljóta upplifunin. Mér brá í stórutá í einu atriði eftir hlé annars var þetta bara c mynda fílingur in a bad way. Fær skull
Held að fólkið í salnum hafi verið meira hrætt við mig þegar ég skakklappaðist út úr salnum þegar myndin var búin...