Fimmtudagur, 21. nóvember 2002
Fékk bréf í gær frá Dórinu:
"Ég legg til að og reyndar geri kröfu um að song of the week verði breytt í "Sami söngurinn" eða "Lag til frambúðar" þar sem enginn vilji virðist vera til að skipta þessu út einsog talað hafði verið um... Það má vera að viljinn sé fyrir hendi en getan virðist vera jafn víðsfjarri og fyndni hjá spaugstofunni eða heiðarleiki hjá Gunna í Krossinum.
Þessu bréfi ber að taka sem lokaviðvörun áður en til líkamlegs ofbeldis kemur.
Án virðingar,
Dóri Dásemd"
Ég svaraði:
"æi ég er að vinna í badabing.is þessa dagana og hef ekki tíma fyrir neitt annað..."
Hann svaraði um hæl:
"Þessi heimur er harður og héðan í frá gildir reglan ein afsökun, tvö kjaftshögg
Ég var ekki að auglýsa eftir afsökunum og væli heldur eingöngu að koma á framfæri kvörtun og ábendingu/lokaviðvörun."
Það er svo gott að eiga góða að.
Annars er ég líka að fara að vinna meira í anna.is. Er langt komin með badabing.is svo það ætti að styttast í það....