www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Af súperhetjum
Fimmtudagur, 28. nóvember 2002

Doddi er hættur að vera Spiderman. Hann er orðin Batman. Þessa dagana allavega. Þegar ég kem á leikskólann að sækja hann þá hefur hann úlpuna opna og þegar við komum út þá grípur hann í úlpuna sitthvoru megin og breiðir hana út eins og vængi, hleypur áfram og hrópar: "Batmaaaaaan!". Eins og Batman gerir.

Hann skríkir af gleði því honum finnst þetta svo gaman og auðvitað varð ég að prufa þetta líka. Vill svo skemmtilega til að ég á jakka sem ég get notað sem vængi og í gær prufaði ég að breiða út vængina og hrópa með syni mínum þegar við hlupum frá leikskólanum: "Batmaaaaan!" Við Doddi skemmtum okkur konunglega á leiðinni heim ásamt þeim vegfarendum sem urðu á vegi okkar.

Það er bara þannig að þó að maður sé fullorðin þá er algjör óþarfi að haga sér alltaf eins og fullorðnir. Ég þekki allavega engan fullorðin einstakling sem ég vil vera eins og.... nema þá sem haga sér stundum eins og börn.

Ef þú trúir mér ekki... farðu þá í jakka, út á bílaplan, breiddu út jakkann eins og vængi og taktu á rás hrópandi: "Batmaaaaan!" og athugaðu hvort þér líði bara ekki stórvel á eftir!


| anna | 15:05 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web