www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Sólskinskaka með karamellukremi
Þriðjudagur, 24. september 2002

Sólskinskaka með karamellukremi120 g smjörlíki
1½ dl sykur
2 egg
2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
35 g möndlur
Karamellukrem II

Hrærið smjörlíki, sykur og egg vel saman. Blandið hveiti, lyftidufti og söxuðum möndlum saman við.
Bakið í hringformi eins og venjulega formköku neðst í ofninum á 180 gráðum í ca 40 mín og hafið ofnin stilltan á blástur. Þegar kakan er orðin köld, er hún hulin með karamellukremi.

Þegar kakan er tekin út úr ofninum og látin kólna passar að byrja á kreminu.

Karamellukrem II:
2 dl. rjómi
120 g sykur
2 msk síróp,
30 g smjör
1 tsk vanilludropar.

Blandið rjóma, sykri og sírópi saman í pott. Hrærið stöðugt í og sjóðið, þar til sleifarfarið sést í kreminu. Bætið þá fyrst smjörinu og vanillunni út í. Ausið kreminu yfir kökuna þegar það er orðið hæfilega kalt (volgt) og látið storkna. Kakan geymist vel. (Væntanlega Sólskinskakan - Það er um 30 mín.verk að þykkja kremið í pottinum minnir mig, amk. tók það ofboðslega langan tíma)

Þessi uppskrift er úr NÝJA MATREIÐSLUBÓKIN, í samantekt Halldóru Eggertsdóttur og Sólveigu Benediktsdóttur. Útg. í Rvík 1961 (Sem sagt dálítið öldruð, en býsna góð.)


| anna | 13:36 |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web