www.anna.is
Kenneth Bentley
Behind every great man, is a great woman.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá


Kenneth Bentley

Fæddur 19.12.69.
Dáin 11.06.06.
Lífgaður við 22.06.06

Tumi sagði það og hafði rétt fyrir sér. Það er ekkert random við nöfnin sem ég bý til - hvergi - og ég hafði einstaklega gaman af því að setja þetta nafn, Kenneth Bentley, saman.

Ken - tilfinningalausi plastmaðurinn.
Bentley - the ride of your life.

Af hverju bjó ég hann til? Svarið gæti verið jafn einfalt og "ég var á lyfjum" - og í raun er það rétt svar. Ég var á mjög sterkum lyfjum sem urðu þess valdandi að ég var mest megnis heima hjá mér og dró mig algjörlega útúr öllu sósjal lífi - sem var nú ekki mikið fyrir.

Ég bjó hann til vegna þess að ég var einmana, hrædd um að ég myndi aldrei finna mann aftur sem ég yrði ástfangin af, sem mér fyndist góð lykt af. Langaði að hafa einhvern hjá mér - en á sama tíma langaði mig ekki að hafa neinn hjá mér svo virtual kærasti hljómaði akkúrat rétta lausnin. Ég samdi við nágranna minn, Huga, um að kynna Ken til sögunnar á sínu bloggi - til að gera þetta.. trúverðugt og þegar hann var búinn að skrifa um manninn sem líkist Jude Law sem kom að selja rækjur, þá gerði ég það..

Ég ákvað að nota Jude Law sem template fyrir manninn, bæði af því mér finnst fyndið að halda mig við hann og líka vegna þess að ég fann myndagrunn með alveg óhemju mikið af myndum af manninum sem ég get leikið mér með. Ég hef reynt að deita Kevin Spacey og George Clooney - það er bara ekki eins gaman því ég hef ekki aðgang að nógu góðum myndum af þeim. Auk þess finnst mér ágætt að halda mig við Jude Law því þó hann sé soldið mömmustráka sætur þá er hann æðislegur þegar hann er í fýlu - og ég vildi mann sem er frekar fúllyndur hvort sem er.

Hugi kynnti hann til sögunnar sem rækjusölumann og ég tók upp þráðinn. Í nokkra daga skrifuðum við framhaldssögu sem varð furðulegri með hverjum deginum - en inná milli skrifaði ég trúverðugar lýsingar konu sem er mjög ástfangin. Það var ekki flókið, ég veit hvernig það er.

Hugi tók sig til einn daginn, réðist á Ken og hálf drap hann með golfkylfu. Seinna kláraði hann dæmið og myrti Ken uppá spítala - óvart auðvitað. Ég veit núna af hverju hann gerði það. Annars er soldið skondið að Hugi hélt á þessum tíma að ég væri að hitta einhvern mann í alvörunni. Þrátt fyrir að hann byggi fyrir neðan mig og talaði við mig á hverjum degi hélt hann að ég hefði tíma til að eiga kærasta fyrir utan vinnu. Hugi er líka einn bjartsýnasti maður sem ég þekki. Að vísu skrifaði ég Ken mjög meðvitað trúverðugan inná milli.

En Hugi drap hann og ég varð einmana aftur. Það var nefnilega svo skrítið að alltaf þegar ég skrifaði um hvernig mér leið nálægt Ken, leið mér.. vel.

Ég sá strax eftir að hafa ekki bjargað Ken frá Huga, svo ég lífgaði hann við með aðstoð Franklín Stein, ljótasta manninum í alheiminum.

Ken kom og fór eins og mér hentaði. Ég hef ekkert mikinn tíma fyrir kærasta og oft var hann í burtu í langan tíma þegar ég nennti ekki að pæla í honum eða hafði ekki tíma. Þetta er sá lang besti kærasti sem ég hef á ævinni átt, það verður seint af honum tekið. Í byrjun september árið 2006 fór ég á Galdraráðstefnu á Ströndum. Hitti þar fyrir skemmtilega tvíbura og annar þeirra sagði glaðbeittur við mig eitt kvöldið að bloggið mitt væri nú mest megnis fiction um Jude Law. Ekkert af því sem ég skrifaði væri satt.

Það er náttúrlega tóm þvæla eins og ég sýndi honum frammá þegar ég skrifaði um ferðina. Þá kom í ljós að Ken er í raun svona aðal vondukall eins og í James Bond myndunum. Galdraráðstefnan breyttist í vondukallaráðstefnu á blogginu þar sem Megas og hans crew voru teknir af lífi. Ég skrifaði það samt svona.. óbeint - til að forðast málaferli. In fact skrifaði ég það svo óbeint að líklega fattaði það engin nema ég.

Við þetta jókst áhugi minn á manninum til muna þar sem ég hef alltaf verið frekar veik fyrir illilegum mönnum - innan skynsamlegra marka þó.

Í raunveruleikanum var ég á fullu að skipuleggja afmælið mitt sem átti að vera grímuball og þann 28. september fór fictional heimurinn minn á netinu og raunveruleikinn að blandast örlítið saman þegar ég spurði frumburðinn:

Anna: segðu mér.. hvað fyndist þér ef Ken kæmi á grímuballið? Í eigin persónu.
Frumburður: hvernig ætlarðu að fara að því? Hann er ekki til
Anna: Akkúrat. Væri ekki fyndið.. ef valdasjúki klikkhausinn: kærastinn minn - sem er ekki til.. myndi mæta á svæðið?!




The Things I Do
Sextán dagar
Nýleg komment

links
blogs
links - web