
Þennan föstudag ákvað ég að skrá lénið worlddomcorp.com hjá networksolutions.com til að renna enn frekari stoðum undir tilvist Ken - þó ég væri ekki ennþá búin að finna mann til að leika hann.
Þar sem ég vinn við að úthluta lénum, vissi ég að 10% af þeim sem ég þekki myndu fletta léninu upp í whois gagnagrunni Networksolutions um leið og ég myndi linka á það.
Þá gekk ekki að hafa það skráð á mig, er það? hehehe
Jim Beam ætlaði að hringja þennan föstudag en gerði það aldrei. Ég velti því alvarlega fyrir mér að go "tourist hunting" niðrí bæ, en fannst það ekki vænlegt til árangurs. Auk þess tók Jim Beam það vel í þetta strax að ég var viss um að hann myndi hringja í mig - og hann gerði það, en ekki fyrr en daginn eftir.