www.anna.is
Kenneth Bentley
Behind every great man, is a great woman.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá


Þennan laugardag byrjaði ég að búa til heimasíðu fyrir World Domination Corp. Hugi reddaði mér gjörsamlega með því að vera co writer, ég hefði ekki getað skrifað alla síðuna ein. Bara að finna nógu "evil" nöfn á staffið þarna tók sinn tíma.

Ég var búin að gefa upp alla von á að Jim myndi hringja en um kvöldið hringdi hann nú samt.

Það sem kom mér raunverulega mest á óvart í þessu öllu var að karlmennirnir sem ég talaði við höfðu allir húmor fyrir þessu. Hann var verulega volgur en ég bakkaði um leið og hann gaf í skyn að kærastan hans væri samt ekkert aaallt of hrifin. Það stóð aldrei til að splitta upp pörum eða koma einhverjum í vandræði. That was never the point. Ég var samt running out of options.

Já. Ég ætti kannski að minnast á að ég hefði getað fengið Jude Law til að koma í afmælið og á tímabili alvarlega að hugsa um að hafa samband við hann. En þegar ég fór að hugsa það mál aðeins betur áttaði ég mig á að ég var eiginlega ekkert of spennt að fá Jude Law í afmælið mitt - meina.. við erum hætt saman og ég vil ekki vera að vekja hjá honum falskar vonir, blessuðum manninum. Svo veit ég að hann er blankur síðan hann skildi við Sadie og ekki get ég borgað flugið undir hann. Ljótu helvítis aumingjarnir sem maður er að deita alltaf.

Jim sagði mér hinsvegar að hringja í vin sinn hjá breska sendiráðinu og tékka á hvort hann vissi um einhverja. Ég gat það náttúrlega ekki fyrr en á mánudeginum..




The Things I Do
Sextán dagar
Nýleg komment

links
blogs
links - web