www.anna.is
Kenneth Bentley
Behind every great man, is a great woman.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá



Þennan morgun hringdi ég í Brimborg og fékk að tala við framkvæmdarstjórann, Egil. Hann tók mér miklu betur en ég hafði þorað að vona og í símtalinu kom í ljós að Egill er búinn að vera að stíga sín fyrstu skref í bloggheiminum og sagðist lesa mitt þannig að hann kannaðist við Ken og World Domination Corp. Sagði mér að honum fyndist þetta algjör brandari og að ég væri að gera þetta mjög vel. Ég var í skýjunum og taldi líkurnar á að ég fengi að lofa reynsluakstri hafa aukist til muna. Þegar ég spurði Egil að þessu kom smá þögn, svo bað Egill um númerið mitt og sagðist myndi hringja í mig með svar seinna um daginn.

Ég var nú bara frekar vongóð eftir þetta símtal um að fá jákvætt svar og var sannfærð um að þá væri ég komin með þetta extra little something - ef hægt er að kalla Ford GT "little something" - sem mig vantaði sem herslumun til að fá einhvern karlmann til að gera þetta.

Hringdi þessu næst í breska sendiráðið. Þar talaði ég við manninn sem Jim Beam benti á, sagði honum að mig vantaði háan, myndarlegan breta sem hefði mjög góðan húmor og helst upper class framburð. Maðurinn í breska sendiráðinu sagði mér að það væri bara einn breskur karlmaður á Íslandi sem þessi lýsing ætti við og gaf mér símanúmerið þar sem John Powers vinnur. Ég hringdi strax en fékk þær upplýsingar að John væri staddur erlendis og myndi ekki koma heim fyrr en seint á miðvikudagskvöldið. Ég ákvað að hringja í hann á fimmtudaginn. Maðurinn í breska sendiráðinu hafði verið svo viss um að John væri rétti maðurinn fyrir mig - að ég batt miklar vonir við að hann væri the one.

Klukkan rúmlega eitt hringdi Egill hjá Brimborg í mig aftur.

Hann byrjaði á að spyrja mig betur útí hvernig ég sá fyrir mér hlutverk Ken í afmælinu og ég sagði honum í stuttu máli frá handritinu sem ég hafði skrifað. Þá sagði hann mér að vera ekki feimin við að stoppa sig af anytime ef mér fyndist hann vera að ganga of langt. Hann þekkir mig betur núna og veit líklega að "of langt" er term sem ég skil ekki.

Hann sagðist sjá fyrir sér myndband. Ken myndi mæta á bílnum í afmælið mitt (hér varð ég kjaftstopp), spurði mig næst hvort svona mikilvægir menn eins og Ken væru ekki alltaf með stóran svartan lífvarðabíl með sér (ha, j.. jú) og sagði að hann sæi fyrir sér að Ken myndi koma á Fordinum og leggja fyrir utan, fyrir aftan hann myndi stór svartur bíll leggja og svo myndi illþýðir í svarta bílnum koma og taka sér stöðu við Fordinn og opna fyrir Ken. Því næst myndi Ken fara inn á Sólon, við myndum taka leikritið fyrir gestina mína.. þetta yrði allt tekið upp og myndbandinu lekið á netið. Þannig fengi hann óbeina kynningu á fyrirtækinu og ég fengi bíl sem er trúverðugur fyrir mann eins og Ken.

Ég sat í vinnunni og neðri kjálkinn á mér seig hægt niður á bringu á meðan ég hlustaði á hann tala. At no point fannst mér ástæða til að stoppa manninn, það sem hann var að segja var music to my ears, leið eiginlega eins og ég hefði dáið og farið til himna - ég hafði fundið mann sem vildi taka þetta alla leið.

The mission objective hjá mér allan tímann var að pródúsera skemmtiatriði fyrir afmælisgestina mína, setja á svið smá leikrit þar sem ég myndi altera raunveruleikanum og breyta honum í þann raunveruleika sem ég hafði skapað á heimasíðunni minni. Einmitt af því sá raunveruleiki er absúrd og gjörsamlega útí hött, það var the punchline. Ég vissi alltaf að fólk myndi fá kast ef Ken kæmi á staðinn.. en að hann kæmi á Ford GT með lífverði í öðrum bíl...

Þetta var svo absúrd og klikkað að mér fannst það gjörsamlega æðislegt! Þetta var eitthvað sem engin, engin gat séð fyrir og með réttu eitthvað sem ég átti ekki að geta gert. Ég hef ekki peninga eða resources til að púlla svona lagað off. Á meðan Egill talaði og eftir því sem kjálkinn á mér seig neðar sá ég fyrir mér að með þessum manni gæti ég sett á svið sjónarspil sem myndi gjörsamlega drepa fólk úr hlátri og undrun - plús.. hann fengi buzz í kringum bílinn og Brimborg fengi athygli með því að framleiða svona óformlega auglýsingu. Allir græða.

ÞETTA - VAR - SNILLD!

Ég samþykkti strax allt sem hann sagði og spurði hvort ég mætti skrifa um bílinn á heimasíðunni. Egill gaf mér grænt ljós á það svo ég birti færslu um bílinn rétt um klukkan tvö. Þetta gefur smá innsýn inní hversu hratt þetta þróaðist og hvað hægt er að gera þegar þú hefur Internetið sem medium.

Seinna um daginn hringdi Egill aftur, búinn að ræða við pr fyrirtækið sitt og Saga film, komin með pródúser í dæmið og bað mig að senda til sín handrit þar sem ég væri búin að skrifa bílinn inn og líka lýsingu á Ken - því hann væri með fólk sem ætti að finna rétta manninn. Ég vissi ekki ennþá hvort ég ætti að þora að trúa því sem var að gerast, þetta var way too good to be true. Við vissum bæði að það yrði mál að finna Ken, þetta varð helst að vera einhver óþekktur svo við gátum eiginlega ekki fengið leikara - en hvorugt okkar var tilbúið að láta það stoppa okkur. Ég sagði honum frá John Powers sem ég fann í gegnum breska sendiráðið og væri væntanlegur til landsins á fimmtudeginum - og að ég væri mjög vongóð með að það væri rétti maðurinn. Egill vildi samt sem áður setja fólk í að finna Ken því það var ekkert garantí fyrir því að John Powers myndi taka þetta að sér.

Ég bloggaði aftur um bílinn um kvöldið, því næst skrifaði ég bílinn inní handritið og lýsingu á Ken fyrir pródúsentana og þá sem áttu að finna mann til að leika hann - sendi þann tölvupóst til Egils rétt fyrir miðnætti.

Tölvupóstur sendur til Egils, 9. október klukkan 23:54
Ideal Ken:
- Miklir persónutöfrar (maður sem á sal þegar hann gengur inn)
- Með bílhlöss af sjálfstrausti
- No-nonsense týpa
- Greindur
- Græjufíkill
- Strangur
- Ákveðinn
- Herramaður
- Í raun og veru er þetta James Bond - bara.. on the wrong fucking side

Útlit og framkoma:
- Útlitslega fyrirmyndin er Jude Law, þegar hann er mjög fúll. Jude er of sætur annars - segjum bara Sean Connery ungur hehe
- Ekki sætur eða "kjút" heldur myndarlegur
- Ekki lágvaxinn en ekki of hávaxinn heldur. 180 - 190 er ideal.
- Fremur dökkur yfirlitum, samt ekki nauðsynlegt
- Á aldrinum 30 til 40
- Fit en má vera smá þrekinn. Alls ekki kraftlyfingarmaður eða þessháttar rugl.
- Talar með upper-class breskum hreim

----------------

Mér finnst koma nógu vel fram hvar ég stend í handritinu án þess að ég skýri það eitthvað sérstaklega. Það var skrifað með enskumælandi mann í huga. Ken er við stjórnvölinn þarna, ég kem algjörlega af fjöllum - átti ekkert von á honum þarna. Hann veit nákvæmlega hvað hann er að gera - enda er hann með the upper hand allan tímann. Hann gefur mér ekki tækifæri til að fá skýringu af hverju hann er kominn á staðinn, og í raun er öll atburðarrásin nákvæmlega eins og hann vill að hún sé. Ken er í "the punisher" búningi vegna þess að hann er "refsarinn" (refrens í blogg) - fólkið á staðnum á eftir að fatta það djók. (Væri algjör snilld ef hægt væri að redda svörtum leðurfrakka eða leðurjakka sjá: the punisher - ég læt útbúa hauskúpubolinn)

Handritið byrjar á endanum á ræðunni sem ég held þegar ég er að bjóða fólkið velkomið. Mér finnst mikilvægt að Ken komi ekki inn fyrr en ég er komin þarna í ræðunni því ég þarf að koma öllum þessum upplýsingunum til skila til fólksins svo þetta gangi upp. Fólk býst við einhverju, flestir sjálfsagt að að Ken komi á svæðið, þannig að ég vil byrja á að valda þeim vonbrigðum með því að slá það dæmi alveg af, til þess að fólk verði ennþá meira stunned (eins og ég) þegar hann mætir svo á svæðið eftir allt saman.

Endirinn á ræðunni:

Það er reyndar eitt sem skyggir á gleði mína hér í kvöld, þetta er jú afmælið mitt og ég átti von á mjög sérstökum aðila sem ætlaði að halda uppá þetta með mér. Það vita sjálfsagt flestir hérna inni um hvern ég er að tala en fyrir þá sem koma af fjöllum - eins og mömmu og pabba, þá er ég að sjálfsögðu að tala um kærastann minn, Ken. Mér finnst.. eins og það hafi gerst fyrir mörgum árum en það var víst bara í júní sem hann var að selja færeyskar rækjur í húsinu sem ég bý í og frá því ég opnaði hurðina og leit hann augum var aldrei nein spurning - þetta var maðurinn fyrir mig. Í síðasta mánuði, þegar ég komst að því að hann er valdasjúkur geðsjúklingur - það var áfall - en ég hef ákveðið að vinna bara í kringum það - eru allir með einhvern pakka á bakinu á þessum aldri. Ekkert við því að gera.

Ken hringdi hinsvegar í mig áðan, hann.. hefur verið handtekinn í Svíþjóð, kjarnaoddarnir hans allir gerðir upptækir, tómt rugl.. þannig að hann kemur ekki hingað í kvöld. Hann var í miklu tilfinningalegu uppnámi yfir þessu og til að bæta upp fyrir fjarveru sína sendi hann mér fólk til að létta undir hjá mér, eru þarna á barnum og útí sal, mæli með því að gestir forðist slagsmál eða vesen hérna í kvöld - þetta fólk er vopnað.. og stórhættulegt.

Ég hef ákveðið að láta þessar fréttir ekki brjóta mig niður eða skemma fyrir mér kvöldið í kvöld - hann er jú atvinnuglæpamaður og svona lagað getur víst alltaf komið fyrir. Verð víst að sýna því skilning.

Það breytir því ekki að VIÐ erum hérna og vonandi ætla allir að skemmta sér jafn vel og...

[henchman gengur inn gólfið, myndatökufólk og ken. henchmen taka sér stöðu sitt hvoru megin við önnu - sem er speechless]

Anna: what the.. how did you...?
[Ken walks towards Anna - like he owns the place. (He does actually).]
Ken: Hi Bitter Barbie
Anna: H.. hi Ken
[Ken is standing right in front of her]
Ken: sorry i'm late, I've missed you sweetheart
Anna smiles: I've missed you too
[Anna looks ecstatic and still a bit stunned - she's just as surprised as the crowd. Ken turns around and faces the crowd]
Ken: So.. these are your friends?
[doesn't give her time to reply - facing anna]
aren't you suppposed to be dressed up as something you're not in real life?
Anna: that is the general idea, yes
Ken: how come you're dressed as an angel then?
Anna: how come you're dressed as the punisher?
[Ken grins]
Ken: because I know this cheeky angel
Anna: but how did you...?
[Ken interrupts]
Ken: You think I'd miss your birthday baby? Did you sing yet?
Anna: no, we're not going to sing
Ken: oh go on.. [to the crowd] who's with me? [the crowd IS with him and they sing happy birthday to you. In the background a henchman has a little cup cake and he's standing behind Anna to the right - she doesn't see him. He lights a candle on the cake as the crowd sings - and once the crowd has finished singing.. anna is facing Ken, looking at him admiringly]
Ken: Now blow
Anna looks appalled: the hell is wrong with you, i can't do that here
[Ken pauses for a bit, then turns her towards the cupcake]
Ken: out - the - candle (then whispers into the microphone) but i like your thinking
Anna is quite embarrassed, and just as she is about to blow out the candle, the henchman shouts:
SHE'S GONNA BLOW!
[people will clap and once they have finished clapping..]
Ken: did you make a wish?
Anna: yes
Ken: was it about me?
Anna smiles a bit shy, yes
Ken: let's see if i can make it come true then

Ken walks away towards the bar where he gets a red rose and something else. While he does this anna is on stage, bewildered:
Anna: what are you doing?
Anna: carefully again into the microphone: what is he doing?
Ken comes back and hands her the rose, then, facing the crowd:
I've been meaning to do this for some time now
he gets on his knees and hands her a small jewelry case
Ken: You know what this means angel.. what do you think?
[Anna is speechless and stands there motionless]
Ken: If you are leaning towards "no", it's all right. I won't have you killed. That's a promise.
[Anna does not respond]
Ken getting just a bit nervous:
go on angel..
After a few moments Anna breaks out in a big smile:
you are just.. unbelievable! oh i do, yes. i do

[they kiss. the crowd will applaude. The henchmen in the back dry tears from their eyes. Suddenly a henchman hears something in his headset, taps on Ken's shoulder and whispers something into his ear]

Ken looks startled: oh... I'm so sorry angel, i have to go, i really am sorry
Anna is still in seventh heaven:
that's all right honey (all smiles)
Ken to the crowd - in the same fashion a rock star says goodbye after a night's performance:
it was really nice to see you all and i hope you have a great time tonight! (grabs Anna's hand) I'm just gonna steal her for a moment (and leads her towards the enterance)
Anna: i'm just gonna.. - i'll be right back

once they are gone a friend of mine will call out "HANN ER Á FOKKING BÍLNUM" (He's got the car) to lure people out on the balcony and to the windows.

anna and ken go downstairs together, before he enters the car he kisses her one of those Hollywood style kisses leaving her intoxicated - ken drives off and the people at the party are watching through the window and balcony as the cars drive off - if this is working, they will be laughing their asses off

anna goes back upstairs and on stage again

Anna: vá.. þetta var hressandi. Shit.. hvar var ég.. já.. velkomin og góða skemmtun í kvöld!

-----------------------

That's about the size of it.

Endilega láttu mig vita ef eitthvað er óskýrt eða eitthvað vantar uppá lýsingar. Ég er mjög sátt við þetta og held að þetta gæti komið vel út. Þeir örfáu (3) sem ég hef lesið þetta fyrir finnst þetta mjög gott svona.


Við höfðum fimm daga. Priority nr 1 var að finna Ken - án hans myndi ekkert gerast.

Þegar ég var búin að senda handritið til Egils birti ég færslu með lagi úr myndinni Lísu í undralandi. Fannst það viðeigandi því Egill hafði í raun opnað dyrnar að undralandi fyrir mig.




The Things I Do
Sextán dagar
Nýleg komment

links
blogs
links - web