www.anna.is
Kenneth Bentley
Behind every great man, is a great woman.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá



þriðjudagurinn var alveg óborganlega fyndinn. Egill hringi í mig snemma um morguninn eftir fund hjá hans fólki og sagði að ég myndi ekki trúa honum. Um leið og einn af saga film mönnunum las lýsinguna á Ken og handritið sagðist hann þekkja NÁKVÆMLEGA ÞENNAN MANN. Og kom svo með nafnið á fyrsta manninum sem ég hafði haft samband við. Ég dó úr hlátri, sagði Agli að ég hafi ekki verið að grínast, þessi maður væri bara Ken - ekkert flóknara og gaf honum grænt ljós á að prufa að tæla hann með bílnum, ég veit að þessi gæi elskar bíla og á einn sem kostar rúmar tíu milljónir.

Þar sem ég þekki stelpu sem vinnur með honum beið ég spennt við msn þann dag og sure enough kom hún stuttu síðar online og spurði hvaða vídeó ég væri að fara að gera. Ég spurði til baka hvort FirstChoice væri til í dæmið og hún sagði að hann dreplangaði að gera þetta en því miður ætti hann kærustu sem væri ekki mjög spennt fyrir þessu - helv! Oh.. af hverju skilja konur ekki að ekkert af þessu var for real og þetta var spurning um tuttugu mínútur. Hann myndi aldrei heyra frá mér aftur. Rosalega þurfa konur alltaf að lesa allt of mikið í hlutina. Það er ekki eins og ég hafi verið að biðja um neitt sem er karlmönnum ekki eðlislægt að gera: þykjast vera drullu ástfangnir af konu sem þeim er slétt sama um. Þeir gera þetta ON DEFAULT og mér fannst þetta ekki mikið mál - auk þess sem ég var að biðla til mann sem voru ÞEKKTIR fyrir að skipta konum út eins og nærbuxum þannig að þetta atriði ætti ekki að vefjast mikið fyrir þeim, en ég var bara svo óheppin að þessi maður var búinn að finna stelpu sem hann var í alvöru ástfangin af og vildi ekki rock the boat.

Um leið og vinkona mín sagði mér það bakkaði ég, of course, - boltin byrjaði að rúlla þarna samt því hann benti á annan breta, vin sinn, Jameson.




The Things I Do
Sextán dagar
Nýleg komment

links
blogs
links - web