www.anna.is
Kenneth Bentley
Behind every great man, is a great woman.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá


Ég ákvað að taka sénsinn og blogga þar sem ég lofa uppí ermina á mér einhverju stóru þó ég hefði á þessum tímapunkti í raun ekkert í höndunum - nema boli með nafni world domination corporation og "henchman" á bakinu því þennan dag var ég búin að samþykkja próförkina frá fyrirtækinu sem ætlaði að framleiða bolina fyrir mig og þeir lofuðu að bolirnir yrðu tilbúnir á föstudeginum.

proof.png

Það yrði bara að vera nóg ef Ken fyndist ekki.

Um miðjan dag heyrði ég í Agli sem hafði fengið neitun frá Jameson. Ástæðan? Vinnuveitandi hans vildi ekki lána andlitið á honum í svona promotion, því þetta var náttúrlega orðin auglýsing.

Egill var búinn að redda mönnum fyrir henchmen en aðal númer kvöldsins vantaði ennþá. Ken. Við fórum að reyna að finna leið til að púlla þetta off ÁN ken, en það var trikkí. Ein tillagan var að ég yrði kölluð út og myndi fara og tala við einhvern í bílnum og svo myndi hann keyra í burtu. Ég blés það af vegna þess að einungis fáviti myndi mæta í afmælið mitt, ekki einu sinni hafa fyrir því að stíga útúr bílnum og fara svo í burtu aftur. Þetta hefði getað verið hægt ef ég hefði þá farið uppí bílinn, farið með honum og komið aftur tíu mín seinna - en það var samt ekki gott af tveimur ástæðum

a) þá myndi ég fara úr afmælinu, sem var smá hallærislegt og
b) ég var hreinlega ekki viss um að ég kæmist inní bílinn með þessa vængi á bakinu.

Við héldum áfram að leita að ken og ég batt MIKLAR vonir við John Powers sem við myndum hafa samband við daginn eftir. Daginn eftir. Fimmtudagur. Grímuballið var á laugardegi. Þetta var svo sannarlega mission impossible.

-------

Fékk lánaðan laptop hjá Tóta, komst að því að ég gat ekki flutt tónlistina yfir svo ég ákvað að fara bara með tölvuna niður eftir - risa túbuskjár og alles.




The Things I Do
Sextán dagar
Nýleg komment

links
blogs
links - web