
Þennan fimmtudagsmorgun vaknaði ég rétt fyrir klukkan níu, hljóp útí bíl hálf vönkuð og keyrði í vinnuna. Á leiðinni stoppaði lögreglan mig, ég keyrði útí kant og beið eftir því að óhugnanlega myndarlegi maðurinn sem stoppaði mig kæmi upp að bílnum. Hann sagði orðrétt: "á 48 km hraða þar sem 30 er hámark og á óskoðuðum bíl. Hysja uppum sig" svo glotti hann og gekk í burtu.
Ég var sofandi en registeraði samt sem áður hversu flottur karlmaður hafði ávarpað mig þarna. Seinna þennan morgun hringdi Egill og sagði mér að John Powers hefði sagt nei alveg um leið.
Fokk. Fokk. Fokk. Annar dead end. Fimmtudagur, engin Ken og grímuballið eftir tvo daga! Ég var orðin verulega mikið desperate. Þetta var orðið aaaallt of stórt til að bakka og ég hreinlega VARÐ að FINNA MANN! Nú veit ég í alvöru hvernig það er að vera desperate og þurfa mann, ég öfunda ekki konur sem eru að komast úr barneign og eru ennþá að leita og þakka mínu sæla fyrir að vera ekki í þeirri stöðu.
Ég hringdi í lögregluna í Reykjavík.
Sagðist vera að leita að manni sem hafi verið við löggæslu við Melaskóla um morguninn og var gefið samband við umferðadeildina. Þar talaði ég við hressan mann, sagði honum að ég væri að leita að myndarlegri mótorhjólalöggu sem hafði stoppað mig við Melaskóla um morguninn. Hann bað mig að lýsa honum og ég sagði að hann hefði verið hávaxinn, dökkhærður með þriggja daga skegg "ertu að segja að mennirnir mínir séu subbulegir?" spurði hann hlæjandi, nei, orðið subbulegur líklega það síðasta sem mér kom í hug þegar ég hugsaði til mannsins sem sagði mér að girða uppum mig. Ég heyrði hann spyrja einhverja hvort þeir hefðu verið við Melaskóla um morguninn og svo rétti hann einhverjum símann. Ég byrjaði á að segja varfærnislega "halló, getur verið að það hafir verið þú sem sagðir konu að hysja upp um sig í morgun við melaskóla?" Eftir stutta þögn svaraði alveg dásamlega djúp og falleg karlmannsrödd "j..já" og þá kom ræðan sem ég var orðin frekar fær í að flytja..
ken.. grímuball.. 35 ára afmæli.. grín.. ford gt.. vídeó..
Þegar ég hafði lokið máli mínu kom löng þögn. Svo heyrði ég hann varpa öndinni léttar áður en hann sagði "shit.. ég hélt að þú værir að fara að hundskamma mig fyrir að segja þetta við þig" Svo byrjaði hann á að spyrja mig hvort ég væri í alvöru 35, því hann hélt að ég væri ekki nema 25 (sætur) svo sagði hann mér að því miður væri barnahelgi hjá honum þessa helgi, en dáðist að því hvað ég væri kjörkuð og áræðin og vonaði að ég myndi finna mann in time.
Another dead end.
Ég hringdi þessu næst í mann sem var boðinn á grímuballið en varð að afboða svo það var allt í lagi að segja honum frá uppákomunni. Hann var strax með á nótunum og fór að leita að Ken fyrir mig. Seinna um daginn hringdi hann og sagði að hann væri með mann sem væri eins líkur Jude Law og hægt væri að komast, mann sem hefði lært í Bretlandi þannig að hann væri með breska hreiminn á hreinu. Þessi maður ætlaði að hringja í mig um kvöldið - ef hann væri game.
Þetta var of gott til að vera satt.
Sent: 12. október 2006 16:13
To: Egill Jóhannsson
Subject: Re: 14 okt - framhald
Ég er currently með Jude Law lookalike sem er að hugsa málið. Hann lærði í Bretlandi þannig að hann er með enskuna og hreiminn á hreinu líka.
Sent: 12. október 2006 16:58
To: Anna Helgadóttir
Subject: Re: 14 okt - framhald
Hæ
Getur þú hitt okkur á morgun t.d. kl. 10:30 til að fara yfir þetta?l
Sent: 12. október 2006 16:59
To: Egill Jóhannsson
Subject: Re: 14 okt - framhald
Já, verð í fríi í vinnunni. Uppí Brimborg?
Sent: 12. október 2006 17:21
To: Anna Helgadóttir
Subject: Re: 14 okt - framhald
Nei, við skulum hittast hjá GCI (Grey Communication International) við
Engjateig 19. Það er beint á móti Nordica Hótel (hinum megin við götuna) í
húsi sem kallast Listhús.
Þú ferð upp stigann alveg vinstra megin og síðan eru svalir og hurðir sem
ganga inn í hvert bil.
Segjum þá 10:30 þarna á morgun.
Kveðja
Egill
Ef Jude gæinn myndi ekki hringja.. þá hefði ég nákvæmlega ekkert í höndunum á þessum fundi.
Hann hringdi aldrei.