www.anna.is
Kenneth Bentley
Behind every great man, is a great woman.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá


Ég var með ekkert í höndunum þegar ég mætti á fundinn með Agli og öllum þennan morgun klukkan hálf ellefu. Trúði ekki að ég þyrfti að játa mig sigraða, vildi ekki trúa því. Við ræddum aftur um hvernig við gætum breytt handritinu þannig að bíllinn væri inni en Ken sæist aldrei. Ég sá það ekki ganga upp, því miður.

Og það varð þögn.

"En ef þessi maður sem situr við hliðina á þér er tilbúinn til að gera þetta? Getur hann verið Ken?", spurði Egill.

Ég leit á manninn sem sat við hliðina á mér og jafn dónaleg og ég er, þá sagði ég "já, en þú getur ekki verið með svona skegg". Trúi ekki ennþá að ég hafi sagt þetta við manninn - en þetta var samt satt. Ákvörðunin var tekin, þessi maður, starfsmaður Brimborgar, yrði Ken og við fórum á Sólon til að taka æfingu.

Á Sólon tókum við nokkrar æfingar með blöðum. Þetta var í raun mjög ósanngjarnt gagnvart manninum sem lék Ken, því hann var með "allar línurnar" og þurfti að læra þær NÚNA. Þegar við vorum búin að taka nokkrar æfingar fór Ken með Agli í Boss búðina að fata Ken upp (illmenni eru alltaf vel klædd, það er bara þannig) og ég fór að sækja bolina sem voru tilbúnir úr prentun.

Við hittumst aftur á Sólon seinna um daginn ég og Ken. Við æfðum atriðið sem átti að gerast úti við bílinn uppvið barinn á Sólon og ég sýndi Ken hvernig hann ætti að kyssa mig.

Þegar æfingin var búin fór ég að græja aðra hluti tengda afmælinu sem ég hafði ekki gefið mér tíma í að gera. Á miðnætti hringdi ég í Hörpu vinkonu og sagði henni hvað hafði gerst og að ég væri komin með Ken.

"Harpa.. er ég geðveik?"
"Nei Anna, það er ekki orðið sem mér dettur í hug"
"Takk Harpa, ég held nefnilega að ég sé geðveik að taka sénsinn á þessu. Þetta getur klúðrast svo ÓHUGNANLEGA"
"Blessuð vertu það verða allir svo fullir, taka ekkert eftir því"

Það er svo gott að eiga góða vini. Ég ætlaði aldrei að geta sofnað þetta kvöld en að lokum róaðist ég þegar ég áttaði mig á því að þetta var auðvitað allt Hörpu að kenna - ef þetta myndi misheppnast. Eða þannig..




The Things I Do
Sextán dagar
Nýleg komment

links
blogs
links - web