www.anna.is
Kenneth Bentley
Behind every great man, is a great woman.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá


fimmtudagur, 28. september

Ég hafði fengið hugmynd. Af því Ken er forstjóri fyrirtækisins World Domination Corp lá í augum uppi að afmælið mitt yrði auðvitað í boði fyrirtækisins. Hugmyndin var að fá Ken á svæðið, með lífverði sem yrðu allir í bolum merktum fyrirtækinu og á bakinu myndi standa stórum stöfum HENCHMAN. Ken ætti hinsvegar að mæta á grímuballið sem.. the punisher. Mér fannst það mjög viðeigandi miðað við allar refsingarnar sem hann var búinn að stunda á heimasíðunni.

Þetta var of gott til að sleppa því og ég vissi um akkúrat rétta manninn í hlutverkið.

Það var í raun hann sem gaf mér hugmyndina um að ég gæti actually púllað þetta off því þegar ég hugsa útí það mætti halda að ég sé búin að byggja Ken alfarið á honum frá upphafi, sem er ekki raunin. Ken er ekki byggður á neinum, hann er fictional character frá a til ö. Nema ég sé svona hrifin af þessum manni og ekki búin að fatta það ennþá. Held reyndar að það sé ekki tilfellið.

28. september hafði ég samband við þann sem ég kalla "first choice" FC og útskýrði fyrir honum hvað ég vildi gera. Hann bað um sólarhring til að hugsa málið. Því næst hringdi ég á Sólon og fékk strax leyfi fyrir að allt starfsfólkið uppi yrði í bolum frá mér, það var auðsótt mál.

Það leyndi sér ekkert að stærsta hindrunin sem FC sá var að ég væri búin að byggja karakterinn á Jude Law allan tímann og þessi maður lítur ekki út eins og Jude Law. Hann lítur in fact út eins og Robbie Williams. Það lá ljóst fyrir að ég yrði að spinna þessu með útlitið og ekki seinna en strax svo ég birti færslu sem heitir "To clarify".




The Things I Do
Sextán dagar
Nýleg komment

links
blogs
links - web